Fréttablaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 10
Landsvirkjun hefur,
að mati vatnsréttarhafa við Jökul-
sá á Dal, sett fram nýja kröfu um
að fá til ráðstöfunar öll vatnsrétt-
indi við Jökulsá á Dal, ekki bara
vatnið sem nýtt er við Kárahnjúka-
stíflu heldur líka yfirfallsvatnið
sem ekkert er nýtt og rennur í far-
veginum til sjávar og öll vatns-
réttindi sem koma neðar í ána. Jón
Jónsson hdl. segir þessa kröfu
koma vatnsréttarhöfum mjög á
óvart.
„Við getum ekki sagt til um
hver ástæðan fyrir þessari kröfu
er en hugsanlega er Landsvirkjun
að huga að frekari virkjunum út
Jökulsá á Dal. Það verða þó nokkr-
ir virkjunarkostir út ána en þá er
þetta mál farið að snúast um allt
annað en það ætti að gera,“ segir
Jón og telur enga nauðsyn eða til-
gang fyrir Landsvirkjun að eiga
þessi réttindi.
„Þetta verður þeim dýrt því
þeir þurfa að leysa til sín meiri
réttindi en þeir þurfa. Þetta hefur
komið okkur mjög á óvart og við
áttum okkur ekki alveg á þessari
kröfu,“ segir hann og telur að
krafan geti ekki náð fram að ganga
með vísan til eignarnámsreglna.
Þórður Bogason hdl., lögmaður
Landsvirkjunar, mótmælir því að
um nýja kröfu sé að ræða. Hann
segir að þarna sé bara verið að
gefa nánari útskýringar að ósk
vatnsréttarhafa. Hann segir að
Landsvirkjun telji að ekki sé unnt
að framselja hluta orkunýtingar-
réttindanna vegna farvegar Jök-
uls-ár á Dal enda gegni þessi far-
vegur áfram hlutverki fyrir
Kárahnjúkavirkjun. Alltaf hafi
verið miðað við það. Hann tekur
skýrt fram að vatnsréttindi í hlið-
arám Jöklu neðan stíflu verði alfar-
ið áfram í eigu vatnsréttarhafa.
„Það eru engin áform mér vit-
anlega um virkjanir í Jökulsá á
Dal og ég dreg í efa að það sé fýsi-
legt, bæði af hagkvæmnisástæð-
um og ekki síður umhverfisástæð-
um,“ segir hann.
Vatnsréttarhafar við Jökulsá
á Dal höfðu gert kröfu um 60
milljarða króna fyrir vatnsrétt-
indin vegna Kárahnjúkavirkjun-
ar og byggðist sú krafa fyrst og
fremst á markaðsverði. Lands-
virkjun hefur boðið 150–375
milljónir króna sem samsvarar
tekjum vatnsréttarhafa af tíu
megawatta smávirkjun. Kára-
hnjúkavirkjun er 690 megawött.
Vatnsréttindamálið er til með-
ferðar hjá matsnefnd og má
búast við að hreyfing komist á
það í byrjun næsta árs.
Landsvirkjun vill öll
vatnsréttindi í ánni
Vatnsréttarhafar við Jökulsá á Dal telja að Landsvirkjun hafi komið fram með
nýja kröfu um öll vatnsréttindi í farvegi Jökulsár á Dal en því mótmælir lög-
maður Landsvirkjunar harðlega. Málið er til meðferðar hjá matsnefnd.
Stofnun framhalds-
skóla í Rangárvallasýslu er ekki
fremst í forgangsröð nýrra
framhaldsskóla í landinu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra greindi frá
því á Alþingi í vikunni.
Björgvin G. Sigurðsson
Samfylkingunni spurði ráðherra
hvort til stæði að stofna fram-
haldsskóla í sýslunni og fékk þau
svör að svo væri ekki. Stafaði það
bæði af góðum samgöngum í
Rangárvallasýslu og fámennum
árgöngum á svæðinu.
Björgvin var ekki ánægður
með svörin og hvatti til að málið
yrði skoðað betur.
Ekki fremst í
forgangsröð
Yfirstjórn Landspít-
alans virti í engu meðalhófsreglu
stjórnsýslulaga og framganga
hennar gegn Stefáni E. Matthías-
syni var ólögmæt. Yfirmenn LSH
beittu Stefán jafnframt einelti.
Svo segir í ályktun Læknafé-
lags Íslands um samskipti yfir-
stjórnar LSH og Stefáns, en hann
var áminntur og síðar rekinn úr
starfi á grundvelli þess að hann
lokaði ekki einkastofu sinni, þrátt
fyrir að starfa á sjúkrahúsinu.
Magnús Pétursson, forstjóri
LSH, svarar því til að sjúkrahúsið
hafi margsinnis reynt að koma til
móts við Stefán, þótt honum hafi
verið gerð grein fyrir því við ráðn-
ingu að sem yfirlæknir þyrfti
hann að loka stofu sinni. Einnig
var samkomulag gert við Stefán
til þess að hann gæti flutt starf-
semi stofu sinnar yfir á spítalann.
Stefán hafi hins vegar ekki efnt
sinn hluta samkomulagsins. Að
tveimur árum liðnum, síðasta
sumar, var Stefáni boðin önnur
staða við sjúkrahúsið. Stefán hafi
ekki svarað tilboðinu.
Annars vill Magnús ekki tjá sig
um ályktun Læknafélagsins, nema
að hún virðist fáum rökum studd.
„Læknafélagið er búið að álykta
æði mikið að undanförnu og þessi
yfirlýsing er umhugsunarverð.
Sérstaklega má þar nefna orð eins
og „einelti“. Það væri gott að vita
hvað þeir meina með því.“
Læknafélag ályktar æði mikið
Múslimi var í
fyrsta sinn kosinn á þjóðþing
Bandaríkjanna í Washington á
þriðjudaginn.
Keith Ellison er
lögfræðingur
frá Minneapolis
og hefur setið á
ríkisþinginu í
Minnesota.
Í kosninga-
baráttunni talaði
hann lítið um
trúmál og stærir
sig af því að hafa notið stuðnings
jafnt múslima, kristinna, gyðinga
sem og og búddista.
Hann krefst þess að Banda-
ríkjaher verði þegar í stað
kallaður heim frá Írak.
Kosinn á þing
fyrstur múslima
Arnold Schwarzen-
egger vann sætan sigur í Kali-
forníu þegar hann var endurkjör-
inn í ríkisstjóraembættið með
yfirgnæfandi meirihluta og situr
því annað kjörtímabil.
„Ég hef gaman af að gera
framhaldsmyndir,“ sagði hann á
sigurfagnaði í Beverly Hills, og
bætti við: „Þetta er tvímælalaust
uppáhaldsframhaldið mitt.“
Fyrir ári naut Schwarzenegger
lítilla vinsælda, en sneri þá við
blaðinu og hefur forðast flesta
helstu leiðtoga Repúblikana-
flokksins í kosningabaráttunni.
Hann gerði samninga við
demókrata á ríkisþinginu, til
dæmis um harðar aðgerðir gegn
losun gróðurhúsalofttegunda.
Schwarzenegg-
er snýr aftur
fylgir hverri
OROBLU vöru
Kaupauki
á n‡ju vetrarvörunum frá
OROBLU í Lyf og heilsu
í dag og á morgun:
KYNNINGAR
TRIOMPHE
sokkabuxur
Föstudag, kl. 13-17
í Domus
Föstudag, kl. 13-17
í Mjódd
Laugardag, kl. 12-16
í Kringlunni
PEARL
hl‡rabolur
CAJ P’S HELGARSTEIK