Fréttablaðið - 10.11.2006, Side 35

Fréttablaðið - 10.11.2006, Side 35
Gústav Hannesson er matgæð- ingur mikill enda eru það hans ær og kýr að finna girnilegt hráefni fyrir landann. Síðastliðið sumar fór Gústav ásamt fríðu föruneyti kokka og sölumanna í hráefnisleit suður til Ítalíu. Gústav fór á vegum Ekr- unnar, en fyrirtækið flytur inn mikið af matvörum frá Ítalíu. „Þetta eru vörur eins og pasta, vín, lúxuskaffi og tómatvörur, og við erum alltaf að leita að nýju góðu hráefni,“ segir Gústav. Með það að leiðarljósi fór hóp- urinn til Bologna og sem leið lá niður með strönd Adríahafsins. Ýmis matvælaframleiðsla var skoðuð en áherslan var lögð á minni fyrirtæki í sveitaþorpum. „Ítalirnir voru ótrúlega gestrisn- ir og stöðugt var verið að elda dýrindis mat ofan í okkur. Allan daginn drukkum við ólífuolíu og rauðvín á milli þess sem við borð- uðum pasta. Við byrjuðum að borða klukkan tíu á morgnana og vorum að til fjögur. Þá lögðum við okkur í tvo tíma og byrjuðum svo aftur að borða um níuleytið,“ segir Gústav og hlær. Gústav vill meina að matar- menning Ítala sé á allt öðru plani en hér heima. Einfaldleikinn sé í hávegum hafður og allt kapp lagt á gott hráefni og hollustu. „Við sáum varla feitt fólk. Við spjöll- uðum við eina þriggja barna móður sem sagði okkur að þegar hún var í menntaskóla var þetta kennsluefni, samsetning í fæðu- tegundum. Hún veit nákvæmlega hvað börnin hennar þurfa og hún sér til þess að þau fái það.“ Fyrir utan að skoða það sem kalla mætti hefðbundin hráefni var framleiðsla jarðsveppa könn- uð. Jarðsveppir vaxa eingöngu villtir og djúpt í jörðu en notast er við svín eða hunda til að þefa þá uppi. Fyrirtækið sem skoðað var á sér merkilega sögu en það var stofnað af bréfbera nokkrum á eftirlaunum. Hann lagði bréfin á hilluna, fékk sér hund og lagði af stað í sveppaleit. Fyrirtækið dafnaði og óx og vinnur nú hálf ættin hans í fyrir- tækinu. „Þetta er algjört gull,“ segir Gústav. „Kílóið af jarð- sveppunum kostar nefnilega 360.000 krónur.“ Eitt kíló á 360.000 krónur Saltfiskur Guðrúnar á Jómfrúnni Barónspöbbinn

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.