Fréttablaðið - 10.11.2006, Síða 48

Fréttablaðið - 10.11.2006, Síða 48
Það eru þrjár stórglæsilegar, ólíkar stelpur sem eru langatkvæðamestar í íslenska tískuheiminum. Ákvarðanir þeirra hafa ótrúleg áhrif á klæðaburð íslensku þjóðar- innar. Samt eru þær svo ólíkar. Svava í NTC rekur fimmtán verslanir og hefur verið lengur í bransanum en flestir. Sara í Nakta apanum selur föt eftir sjálfa sig og unga fatahönnuði í 101. Íris í GK keypti verslun- ina fyrir einu og hálfu ári og hefur hún blómstrað á Laugaveginum síðan. Sirkus hitti stelpurnar og ræddi við þær um tískuna, bissn-essinn og tískuborgina Reykjavík. Fyrsta spurningin er til Írisar. Af hverju keyptirðu eiginlega GK? „Ég leit fyrst og fremst á þetta sem viðskiptatækifæri. Ég er alls ekkert tískug- úru heldur er þetta fyrst og fremst spenn- andi fyrirtæki sem ég er að byggja upp. Þar að auki er ég með frábært fólk sem aðstoðar mig, Arnar Gauta framkvæmda- stjóra og Heiðu Agnarsdóttur verslunar- stjóra. Saman erum við að fara að hanna nýja GK-línu sem Indriði klæskeri mun sjá um að framleiða fyrir okkur. Þessi lína verður tilbúin næsta vor.“ Sara hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir verslun sína, Nakta apann, á Lauga- veginum. Verslunin hennar er samnefnari fyrir litríka og skapandi tískubylgju sem gengið hefur yfir 101 og er smátt og smátt að hafa áhrif víðar. Hvernig byrjaði þetta allt hjá þér? „Ég hef alltaf verið að hanna og sauma föt. Síðan fór ég að starfa við hönnun og framleiðslu og fékk þá fullvissu um að ég gæti gert þetta sjálf. Ég lít ekki á mig sem listamann, eða einhvern svaka hönnuð heldur er ég að nýta hæfileika mína til þess að geta lifað á þeim. Maður vinnur hart að því að láta fyrirtækið vaxa og dafna.“ Sara hjálpar líka ungum hæfileikaríkum hönnuðum að koma sér á framfæri með því að selja vörur þeirra í búðinni hjá sér. „Ég hef reynt að hjálpa þessu fólki að finna út hvernig það getur komið sínu til skila.“ Nú hefur oft heyrst sú klisja að við Íslendingar séum vel klæddir og fylgjumst vel með því sem er að gerast. Er þetta rétt? „Já. Algjörlega. Íslendingar hugsa rosalega mikið um útlitið og tískuna. Við viljum vera fyrst í öllu og erum einhvern veginn alltaf á tánum. Bíómyndir eru til dæmis oftast sýndar fyrst hérna og eins er þetta með tískuna,“ segir Sara og Íris bætir við: „Ég hef til dæmis ekki séð svona flottar konseptbúðir í nágrannalöndunum eins og eru hér. Ef þær eru til þá þarf þvílíkt að leita að þeim en hérna eru þær bara á Lauga- veginum.“ Sara segist til dæmis aldrei hafa komið til New York eða Tókýó en mikið af fólki þaðan sé hrifið af búðinni hennar. „Maður heldur náttúrlega alltaf að það sé allt stærra, flottara og betra í útlöndum. En það er ekkert endi- lega þannig. Við erum bara mjög sérstök, sterk, dugleg og sjálfstæð og það skilar sér.“ Nú reka allar stelpurnar þrjár verslanir á Laugaveginum. Er hann eitthvað að breytast? „Ég tek náttúrlega bara við GK á Laugaveg- inum og hún virkar þar. Og myndi örugglega gera hvar sem er. Ég sé samt enga ástæðu til þess að breyta því þótt okkur hafi verið boðið að færa hana og stækka, en ég hef engan áhuga á því.“ „Ég held hann sé bara að styrkjast og dafna,“ segir Sara og Íris bætir við: „Ef fólk er að versla á Laugaveginum þá er það að versla. Það leggur bara bílnum og fer og kaupir eitthvað. Í Kringlunni er fólk meira að kíkja og fá sér kaffi og svona.“ „Á svo bara að vera einkaviðtal við mig,“ kallar Svava hlæjandi úr sminkinu þar sem hún situr og lætur fara vel um sig. Svava hefur skoðanir á þessum umræðum um Laugaveginn enda rekur hún bæði verslanir þar og í Kringlunni. „Ég held þetta sé rétt að hluta til en þó alls ekki að fólk fari bara í Kringluna til að fá sér kaffi, þar fer eflaust fram mesta sala per fermetra á landinu – Kringlan er alveg svakalega skemmtilegt og vel heppnað verslunarhús en það er líka mikil uppbygging á Laugaveg- inum og á öllum pörtum hans. Þó sérstak- lega efst á Laugaveginum hjá okkur í Galleri-húsinu og EVU. Þessi kafli var síðasti áfangi borgarinnar í að endurgera gangstétt- ir og götur og svo á sama tíma var Stjörnu- bíói breytt í 6 verslana- og íbúðarhús auk 200 bílastæðahúss sem hefur heppnast mjög vel.“ Svava segir einnig að hún hafi gaman af þessum ólíka kúltúr sem einkennir Laugaveg- inn. „Það er þetta; Kaffibarinn, Kron Kron, Nakti apinn, Spútnik og sú markaðsstemning sem ég hef mjög gaman af. Það verður að vera þessi tegund verslana í hverri miðborg.“ „Þeir sem vilja ekki fara í verslunarmiðstöðv- arnar og kaupa það sem er til í mörgum eintökum geta komið á Laugaveginn og fundið sér eitthvað meira sérstakt, segir Sara.“ „Það er bara til fullt af fólki sem er sjálfstætt og með sinn eigin stíl. Þess vegna virka „second hand“-búðir. Ég verð nú samt bara að viðurkenna það að ég hef ekki farið svona neðarlega á Laugaveginn, nema þá bara að kvöldi til á einhvern bar,“ segir Svava og hlær. SVAVA Í SAUTJÁN, ÍRIS Í GK OG SARA Í NAKTA APANUM ERU KRAFTMIKLAR KONUR Í TÍSKUBRANSANUM Konurnar sem klæða þjóðina SIRKUS10.11.06 8 viðtalið Framhald á síðu 10 „Mér finnst konur sem þekkja sinn vöxt og vita hvað klæðir sig vera smart.“ Svava í Sautján Tískudrottningin „Ég er alls ekkert tísku- gúru heldur er þetta fyrst og fremst spennandi fyrirtæki sem ég er að byggja upp.“ Íris í GK Viðskiptakonan
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.