Fréttablaðið - 10.11.2006, Page 56
stelpubögg með
Siggu Dögg
K lamidía, kynfæravörtur, herpes, HIV, lekandi, lifrarbólga, sveppir,
sárasótt, flatlús; höfum við einungis
áhyggjur af þungun?
Það vekur undrun mína hversu erfitt
það er að fá stráka hér á landi til að
nota smokkinn. Ég hef heyrt allar
afsakanirnar í bókinni, „þeir eru svo
þröngir“, „latex ofnæmi“. Vandamálið
liggur í smáborgarahætti; flestar
stelpur eru á „pillunni“ og því þarf ekki
að hafa neinar áhyggjur. Ef svo
óheppilega vill til að við smitumst þá
þarf bara að taka eina töflu og málinu
er reddað. Hvað ef smitið greinist ekki
og það leiðir til ófrjósemi eða dauða,
er þá hægt að vera vitur eftir á?
H eimurinn er að breytast og Ísland með. Kröfurnar í
makavali aukast með aldrinum og því
þarf oft að kyssa þó nokkra froska til
að finna prinsinn. Mér finnst alltof fáar
stelpur gera kröfu um verjunotkun og
ef þær gera það þá gerist eftirfarandi:
Stelpan: „Ertu með smokk?“
Strákurinn: „Ha. Nei, bíddu, ertu ekki
á pillunni? Ertu með kynsjúkdóm?“
Ef stelpa setur kröfu um gúmmíverjur
þá er hún álitin sóðastelpa með
óhreinan kjallara. Spurningin vekur því
upp óþægilegar aðstæður fyrir báða
aðila. Auðveldara er að loka augunum
og njóta næstu þriggja mínútna.
V inkona mín var að gramsa í töskunni minni um daginn og
fann smokk. Þessi fundur vakti
ómælda kátínu hjá henni og upphófst
mikið grín um mitt samlíf. Vinkonan
náði loks að jafna sig og horfði á mig
spurnaraugum „ertu að hitta einhvern
útlending?“ Þetta er viðhorf íslenskra
stelpna í hnotskurn, það eru bara
„útlendingar“ sem geta verið
smitberar sjúkdóma. Á augabragði
var ég orðin sóðastelpa.
V ið lifum ekki lengur í samfélagi þar sem allir vita allt um alla.
Sætu íslensku strákarnir fara með sitt
kærulausa viðhorf hverja einustu helgi
á skemmtistaðina, hvort sem er á
Benidorm eða Reykjavík. Það sama
gildir um stelpurnar. Kynsjúkdómar
gera ekki greinarmun á útliti þótt
tölfræðilega séð ættu þeir sem eru
myndarlegri að vera líklegri smitberar.
Sóðatyppin leynast víða og eina
leiðin til að umgangast þau er að
geta varið sig.
Þ að voru Bandaríkjamenn sem opnuðu augu mín. Drengirnir
þar eru heilaþvegnir frá blautu
barnsbeini að nota verjur. Þeim hefur
verið gerð grein fyrir dýrum afleiðing-
um kæruleysis; enginn smokkur =
ekkert kynlíf. Þetta er viðhorf sem við
mættum taka okkur til fyrirmyndar.
Það eru því ekki útlendingarnir sem
við þurfum að vara okkur á, það eru
þeir sem við teljum okkur þekkja svo
vel.
É g get ein borið ábyrgð á mér og mínu kynlífi. Sem upplýst ung
kona þá ætla ég ekki að láta verjuleysi
hans eða óöryggi mitt stoppa mig, ég
ætla sjálf að sjá um mína vörn. Sá
sem ekki smellir sér í „regnkápu“ fær
ekki að heimsækja minn „helli“.
Sjálfsvörn
Designed for arctic exploration.
Great when waiting for a bus.
kjavík: Kringlan, Bankastræti 5, Faxafen 12
abær: Miðhraun 11 Akureyri: Glerárgata 32
avík: Airport and retailers across Iceland.
w.66north .com Klæddu þig vel
Hver sem sagði að það skiptust á skin og
skúrir hefur aldrei verið á Íslandi í desember.
Eða janúar. Eða febrúar. Eða mars.