Fréttablaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 69
Það er alveg ljóst að íslenska samfélagið er að breytast.
Margir eru farnir að taka eftir
breytingunum og meira að segja
sumir orðnir áhyggjufullir. Menn
eru að velta fyrir sér hvort þeir
sem hér koma eru hryðjuverka-
menn, mafíósar, nauðgarar, morð-
ingjar eða hreinir glæpamenn.
Litla samfélagið Ísland er í hættu
og það þarf eitthvað að gera strax.
Stjórnmálaflokkur nokkur er allt í
einu að breytast í þjóðernisflokk?
Sumir ætla að skipta um flokk
meira að segja.
Gott og vel en hvað er málið
gott fólk? Eflaust er það alltaf við
hæfi að hafa skynsamlega stefnu
fyrir þennan málaflokk en menn
þurfa virkilega að gæta orða sinna.
Svo þurfa menn líka að kynna sér
staðreyndirnar vel áður en þeir
tjá sig.
Á síðustu árum hefur
íslenska efnahagslífið
breyst mikið og krefst
það vinnuafls sem væri
einfaldlega ekki í boði ef
erlendra verkamanna
nyti ekki við. Þetta er
staðreynd hvort sem
mönnum líkar eður ei.
Fólk kemur þá til að
manna stöðurnar og eng-
inn getur sannað að þetta
fólk steli vinnu frá inn-
fæddum. Ef fólk á miðj-
um aldri fær ekki vinnu eins og
pólitíkusar nokkrir halda fram því
að atvinnurekendur vilja ráða
ódýrt vinnuafl þá þurfa yfirvöld
að skoða hvort sumir eru einfald-
lega að misnota breytingarnar. En
það er algjörlega óþarfi að koma
með ummæli sem skapa
fordóma, fælni, óþarfa
áróður eða jafnvel hatur
í garð fólks af erlendum
uppruna í samfélaginu.
Svo er það ekki skyn-
samlegt að koma með
þessar athugasemdir
um málefni innflytjenda
án þess að koma með til-
lögur sem virka því að
þá er þetta eintómt ein-
hliða tal sem hjálpar
ekki. Þeir sem eru að
hrópa Ísland fyrir Íslendinga
þurfa að gera sér grein fyrir því
að í dag eru um 30.000 Íslendingar
búsettir erlendis og er Ísland stór
partur af svokölluðu alþjóðlegu
samfélagi. Væri þetta betra eða
þægilegra ef innflytjendur væru
allir frá Vestur-Evrópu eða Norð-
urlöndunum?
Þeir sem tala um glæpagengi
frá Austur-Evrópu eða annars
staðar frá þurfa að gera sér grein
fyrir því að bestu aðgerðirnar eru
fyrir lögregluna að styrkja sig og
fylgjast með alþjóðlegum glæpa-
samtökum. Eitthvað sem íslenska
lögreglan er svo sannarlega að
gera en í litlum samfélögum eins
og okkar geta glæpagengi af ein-
hverju tagi ekki þróað sína starf-
semi. Að kanna hvort fólk er með
sakaferil áður en því er leyft að
koma til landsins virkar á mjög
takmarkaðan hátt en það hefur
verið prófað án mikils árangurs í
sumum löndum. Ég er á þeirri
skoðun að yfirvöld leyfi þann
fjölda fólks sem við getum höndl-
að, aðstoðað til að aðlagast vel og
vera sjálfbjarga og íþyngir ekki
samfélaginu á neinn hátt. Við
verðum að hætta að alhæfa og
gæta að því hvað við segjum og
hugsum. Við getum byggt upp
betra samfélag sem þjónar öllum
óháð uppruna. Við græðum ekkert
á því að skapa vandamál sem eru
ekki til staðar og þar af leiðandi
skapað óþarfa ótta, óþægindi og
óhug. Við þurfum öll að leggja
okkar af mörkum til góðs og forð-
ast staðalímyndir.
Hættum nú að tala út í loftið og
komum með ábendingar sem
styrkja samfélagið og forðumst
óþarfa ótta.
Höfundur er formaður Ísland
Panorama-samtakanna.
Eru innflytjendur að yfirtaka Ísland?
Ég er á þeirri skoðun að yfir-
völd leyfi þann fjölda fólks sem
við getum höndlað, aðstoðað
til að aðlagast vel og vera sjálf-
bjarga og íþyngir ekki samfé-
laginu á neinn hátt.
vaxtaauki!
10%