Fréttablaðið - 10.11.2006, Side 82
Kröfur á kröfur ofan!
Kvikmyndafyrirtækið
Labrador hefur staðið í
ströngu undafarið en hér
á landi hefur tökulið frá
breska raunveruleikaþættin-
um Make Me a Supermodel.
Að sögn Selmu Karlsdóttur, fram-
kvæmdarstjóra Labrador, hafa
hátt í fimmtíu manns starfað við
þessar tökur en starfsmennirnir
komu í þremur hópum, tveir frá
London og svo komu hingað tísku-
ljósmyndarar frá New York til að
festa herlegheitin á mynd. Tökulið-
ið hefur farið víða, var lengi uppi á
Mýrdalsjökli þar sem fyrirsæturn-
ar sátu fyrir í efnislitlum fötum og
háhæluðum skóm. „Þær stóðu sig
reyndar eins og hetjur og ein þeirra
lagðist á snæviþaktan jökulinn og
faðmaði hann,“ segir Selma og
hlær. „Þær eru líka að keppa þannig
að þær voru tilbúnar til að leggja
ýmislegt á sig,“ bætir hún við. Þá
var ferðinni einnig heitið á
skemmtistaði borgarinnar, í Perl-
una og Bláa lónið þar sem tökunum
lauk.
Þátturinn með efninu frá
Íslandi er sendur út á bresku sjón-
varpsstöðinni Channel Five og
sendu framleiðsluaðilarnir efni
daglega í gegnum gervihnött til
Bretlands. Tracy Manser, fram-
leiðandi þáttanna, átti ekki orð
yfir hversu vel hefði til tekist.
„Þetta hefur bara verið ótrúlegt,
allir eru mjög sáttir við þá þjón-
ustu sem okkur hefur verið veitt
og við komum alveg örugglega
aftur hingað,“ sagði Tracy.
Sérstök dómnefnd velur bestu
fyrirsætuna en í henni eiga meðal
annars sæti Dylan Jones, ritstjóri
GQ, tískuljósmyndarinn Perou og
ofurfyrirsætan Rachel Hunter.
Þættirnir njóta mikilla vinsælda í
Bretlandi en þeim svipar mjög til
hinna geysivinsælu þátta Ameri-
ca‘s Next Topmodel.
Myndskeið með Heather
Mills hafa verið klippt út af
tónlistarmynddiski sem
Paul McCartney gefur út á
næstunni og ber heitið The
Space Within Us. Á honum
verða upptökur af tónleika-
ferð kappans um Bandarík-
in og herma fregnir að ekk-
ert verði minnst á Mills
sem þó ferðaðist vítt og
breitt um Bandaríkin með
McCartney og sást meðal
annars láta hann hafa gítar
á sviði fyrir framan þús-
undir áhorfenda á einum
tónleikunum. Þetta hefur
nú allt verið fjarlægt vegna
hörkunnar sem færst
hefur í skilnað þeirra.
Hjónakornin fyrrver-
andi hafa látið lítið fyrir
sér fara undanfarna daga
eftir allt fjölmiðlafárið
sem ríkti í kringum skiln-
aðinn en ásakanir um
vafasama hegðun í hjóna-
bandinu gengu á víxl. Í
bresku pressunni er því
haldið fram að Mills sæk-
ist eftir 80 milljónum
punda sem samsvarar tíu
milljörðum íslenskra
króna, en eignir McCartn-
eys eru metnar á rúma
130 milljarða.
Heather klippt út
Kevin Federline ætlar einnig að
krefjast forræðis yfir sonum sínum
tveimur sem hann átti með söng-
konunni Britney Spears. Britney
sótti um skilnað við hann í gær og
krafðist forræðis yfir sonunum,
sem eru eins árs og tveggja mán-
aða.
Sólarhring síðar sótti Federline
einnig um forræði auk þess sem
hann fór fram á fjárhagslegan
stuðning frá Britney.
Að sögn lögfræðings Federline
er rapparinn tilbúinn til að gera
allt sem í hans valdi stendur til að
vernda og ala upp börnin. Mun
hann ekki láta ógna sér á nokkurn
hátt eða afvegaleiða sig til að ná
sínum markmiðum.
Vinur Britneyjar segir að söng-
konan hafi flúið heimili þeirra í
Malibu í síðustu viku eftir að Fed-
erline brjálaðist og tók að henda
húsgögnum út um allt og lemja
veggina. Hafði Britney víst gert
grín að eiginmanninum fyrir til-
burði hans á tónlistarsviðinu.
„Kevin hefur verið undir miklum
þrýstingi. Það hefur verið baulað á
hann á verðlaunahátíðum og tón-
leikar hans hafa verið illa sóttir,“
sagði vinur Britneyjar. „Britney
hefur hlegið að Kevin. Hann virtist
vera búinn að byrgja reiðina inni í
sér. Hún vissi að hann myndi hvorki
meiða hana né börnin en hún varð
að komast í burtu.“
Fed krefst forræðis