Fréttablaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 83
Sjónvarpskonan góðkunna Vala
Matt hefur gengið til liðs við dæg-
urmálaþáttinn Ísland í dag á Stöð 2.
„Ég er byrjuð að vinna efni og er
bara mjög spennt. Þetta er eigin-
lega allt fólk sem ég hef unnið með
áður og það hefur verið að gera frá-
bæra hluti. Þess vegna verður þetta
virkilega spennandi og skemmti-
legt. Ég er líka vön því að gera
spennandi hluti og finnst gaman að
breyta reglulega til,“ segir Vala,
sem var áður á Stöð 2 í vetur með
þáttinn Veggfóður. „Ég hefði samt
viljað taka Hálfdán með mér því
mér finnst hann frábær sjónvarps-
maður og ég hef virkilega notið
þess að vinna með honum.“
Vala mun einnig leggja fram
smáefni í morgunþáttinn Ísland í
bítið auk þess sem hún mun skrifa í
tímaritið Veggfóður þar sem hún
mun væntanlega halda áfram að
fræða fólk um hönnun og innan-
hússarkitektúr eins og henni einni
er lagið.
Vala Matt í Íslandi í dag
Fyrrverandi kon-
ungur poppsins,
Michael Jackson,
mun flytja lagið
Thriller á heimstón-
listarverðlaunahá-
tíðinni sem verður
haldin í London í
næstu viku. Þetta
verður í fyrsta sinn
í níu ár sem Jackson
treður upp í Bret-
landi.
Lagið er að finna
á samnefndri plötu
Jacksons frá árinu
1982 sem hefur selst
í yfir fimmtíu millj-
ónum eintaka. Fékk platan átta
Grammy-verðlaun á sínum tíma.
Jackson mun í
London taka á móti
heiðursverðlaunum
sem eru veitt þeim
listamönnum sem
hafa selt meira en
hundrað milljónir
platna.
Hinn 48 ára Jack-
son hefur að undan-
förnu dvalið í
Bahrain og á Írlandi,
þar sem hann hefur
tekið upp lög á næstu
plötu sína. Er hann
óðum að jafna sig
eftir að hafa verið
sýknaður af ákæru
um kynferðislegt ofbeldi gagnvart
ungum dreng.
Syngur Thriller
Hinn ungi leikari Daniel Radcliffe,
sem er þekktastur fyrir túlkun
sína á galdrastráknum Harry
Potter, vill gerast ljóðskáld í nán-
ustu framtíð.
Þessi sautján
ára gamli leik-
ari er til í að
leggja leiklist-
arframann á
hilluna ef hann
„fyndi andann
koma yfir sig“
eins og hann
orðar það.
Radcliffe seg-
ist einnig ekki
vilja fara í
háskóla því
hann sé bara
fyrir fólk sem
veit ekki hvað
það langar til
að gera í lífinu. „Ég veit hvað mig
langar að gera og því sé ég enga
ástæðu til þess að fara í háskóla.“
Vill verða
ljóðskáld