Fréttablaðið - 10.11.2006, Side 88

Fréttablaðið - 10.11.2006, Side 88
 Breskir og bandarískir fjölmiðlar sögðu frá því í gær að bandaríski táningurinn Freddy Adu væri væntanlegur á æfingu hjá Manchester United 18. nóvem- ber en enska liðið sendi frá sér yfirlýsingu snemma í gær þar sem félagið neitaði þessum sögusögn- um. Síðar í gær sendi Manchester United frá sér aðra tilkynningu þar sem fram kom að liðið væri í viðræðum um að fá strákinn til æfinga hjá félaginu. Adu er ekki nema 17 ára gamall og hefur lengi verið orðaður við stærstu félagslið í heimi. Adu hefur leikið með DC United und- anfarin þrjú ár en hann hóf að leika í bandarísku atvinnumanna- deildinni 14 ára gamall. Adu er þó ekki samningsbund- inn DC United heldur er hann með samning við deildina sjálfa, Major League Soccer. Samningur hans við MLS rennur út eftir eitt ár en strákurinn má ekki yfirgefa bandaríska liðið fyrr en hann hefur náð átján ára aldri, en það mun gerast í júní á næsta ári. Sir Alex Ferguson, fram- kvæmdastjóri Manchester Unit- ed, er líklegur til að bjóða í leik- manninn ef Adu nær að heilla stjórann en vitað er af áhuga Chel- sea á stráknum. Freddy Adu hefur lýst yfir áhuga sínum á að spila í Evrópu innan fárra ára. „Markmið mitt er að fara til Evrópu og ef það tæki- færi býðst fljótlega mun ég grípa það tækifæri,“ sagði Adu. Í viðræðum um Adu Real Madrid hefur gengið frá kaupum á vinstri bakverðinum Marcelo frá brasilíska liðinu Flu- minense, samkvæmt spænskum blöðum. Kaupverðið er talið vera um sex milljónir evra, eða um 522 milljónir íslenskra króna. Sevilla var einnig með auga- stað á Marcelo en nú virðist Real Madrid hafa haft betur. „Strákurinn vill bara koma til Madrid. Það má vel vera að aðrir hafi verið að bjóða í Marcelo en hann vill aðeins verða leikmaður Real Madrid,“ sagði heimildar- maður innan félagsins. Marcelo er 18 ára gamall og er talinn vera upplagður arftaki Roberto Carlos bæði hjá brasil- íska landsliðinu og nú hjá Real Madrid. Marcelo mun ganga í raðir Real Madrid í janúar. Real Madrid búið að kaupa arftaka Roberto Carlos Baráttaun um völdin í West Ham vekur mikla athygli í Bretlandi og fjölmiðlar þar í landi virðast á einu máli um að Eggert Magnússon og félagar leiði kapp- hlaupið um völdin í félaginu. Breska blaðið The Independent greinir frá því að líklegt sé að Eggert leggi fram formlegt tilboð í næstu viku þegar hans fólk verð- ur búið að skoða bókhald félags- ins. Það er einnig athyglisvert að fram kemur í grein The Independ- ent í gær að gamla markamaskín- an Tony Cottee hafi verið í fjár- festahópi Eggerts í upphafi en hafi síðan verið látinn róa af. Tony Cottee hefur lengi verið orðaður við félagið og samkvæmt blaðinu íhugar hann að gera tilboð í félag- ið með nýjum aðilum. Fram kom í fjölmiðlum á mið- vikudag að breyting hefði orðið á fjárfestahópi Eggerts sem væri nú norrænn. Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans, er aðalbakhjarl Eggerts og það þykir styrkja stöðu þeirra félaga að Björgólfur hyggst greiða fyrir félagið með eigin peningum en ekki peningum Landsbankans. Eggert var í slagtogi með Tony Cottee en lét hann síðan róa Svo gæti farið að Rafael Benitez, stjóri Liverpool, yfirgæfi félagið ef tilboð bærist frá stóru félagi í Evrópu. Þetta var haft eftir umboðsmanni framkvæmdastjórans, Manuel Garcia Quilon. „Benitez myndi falla vel að ítalska boltanum og leikstílnum þar í landi og hann er einn af þremur bestu framkvæmdastjór- um í heimi. Ef áhugavert tilboð bærist frá stóru félagi þá myndi Benitez klárlega íhuga það. Ef þessi staða kæmi upp þá gæti hann jafnvel yfirgefið Liver- pool,“ sagði umboðsmaðurinn í gær. Gæti yfirgefið Liverpool Gareth Southgate, stjóri Middlesbrough, hefur fengið grænt ljós frá enska knattspyrnu- sambandinu til að stýra liðinu áfram í ensku úrvalsdeildinni. Reglur sambandsins segja til um að fram- kvæmda- stjórar verði að vera með svokallað UEFA Pro leyfi til að fá að stýra liðum. Southgate var með undanþágu frá þessari reglu þar sem hann hefur ekki enn klárað það stig þjálfunar og sú undanþága rann út í gær. „Gareth Southgate er staðráðinn í því að klára þetta stig þjálfunar eins fljótt og auðið er og hann mun gera það. Þangað til mun hann halda áfram að stýra Middlesbrough,“ sagði Keith Lamb, stjórnarformaður Middles- brough. Reglum breytt fyrir Southgate

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.