Fréttablaðið - 10.11.2006, Síða 90
Þýski varnarmaðurinn
Frank Posch er genginn í raðir
Stjörnunnar í Garðabæ. Posch
lék með Fram í sumar við góðan
orðstír og lék alla leiki liðsins, en
Fram vann fyrstu deildina með
þó nokkrum yfirburðum.
Frank Posch lék því aðeins
eitt tímabil með Fram en hann
gekk í raðir félagsins í vor og
samningur hans við Fram var að
renna út.
Lárus Guðmundsson þjálfari
Stjörnunnar hefur verið dugleg-
ur að safna liðsstyrk upp á
síðkastið því fyrr í vikunni gekk
unglingalandsliðsmaðurinn Elvar
Freyr Arnþórsson til liðs við
Stjörnuna frá Val.
Frank Posch
yfirgefur Fram
Enska knattspyrnusam-
bandið hefur farið af stað með
rannsókn í kjölfar vísbendinga
sem borist hafa um meint
veðmál nokkurra framkvæmda-
stjóra í úrvalsdeildinni. Stjór-
arnir eiga að hafa veðjað um
úrslit leikja í úrvalsdeildinni.
„Við munum kanna hvort
einhver brot á okkar reglum
hafa verið framin og tökum
glaðir við öllum vísbendingum í
þessu máli,“ sagði talsmaður
enska knattspyrnusambandsins í
gær.
Ekki hefur komið fram hvaða
framkvæmdastjórar þetta eru
en samkvæmt reglum enska
knattspyrnusambandsins er
framkvæmdastjórum og
leikmönnum óheimilt að veðja á
leiki sem þeir eru tengdir á
einhvern hátt.
Rannsókn á
veðmálum
New York Knicks
hefur samþykkt að greiða Larry
Brown 1.258 milljónir vegna þess
að félagið rak hann þegar Brown
átti fjögur ár eftir af samningi
sínum við félagið.
Knicks ætlaði sér stóra hluti er
það réð Brown til starfa en hann
stóð engan veginn undir vænting-
um og var strax rekinn. Undir
hans stjórn vann Knicks 23 leiki
en tapaði 59. Á þessu eina tímabili
prófaði Brown 42 mismunandi
byrjunarlið en árangur liðsins
undir hans stjórn var sá slakasti
frá árinu 1986.
Fær rúman
milljarð
DHL-deild kvenna:
Evrópukeppnin í körfu:
Valur vann öruggan
sigur á FH í DHL-deild kvenna í
gær þegar liðin mættust í Kapla-
krika í gær. Lokatölur urðu 21-30
en Valsstúlkur gerðu út um leik-
inn í fyrri hálfleik.
Það var ljóst frá fyrstu mín-
útu leiksins í hvað stefndi, en
Valsstúlkur náðu strax undirtök-
unum í leiknum. Vörnin hjá Val
vann vel saman og í kjölfarið
fylgdi góð markvarsla frá Jólöntu
Slapikiene, sem varði tólf skot í
fyrri hálfleik, og ógrynnin öll af
hraðaupphlaupum.
FH liðið virtist missa fljótt
dampinn í sínum leik, sóknir þess
gengu ekki sem skyldi og þær
réðu ekkert við hraðaupphlaup
Valsstúlkna. Það var engu líkara
en Linn Mångset væri með
algjört skotleyfi í fyrri hálfleik
því hún skaut án afláts en skor-
aði þó einungis tvö mörk í ellefu
skotum sínum í fyrri hálfleikn-
um, sem er ótrúlegur árangur út
af fyrir sig.
Valsstúlkur leiddu í hálfleik,
16-6, og allt stefndi í stórsigur
gestanna. Leikurinn róaðist
mikið í síðari hálfleik og það var
eingöngu spurning um hve stór
sigur Vals yrði. Ágúst Jóhanns-
son, þjálfari Vals, tók á það ráð
að leyfa stelpum sem sátu mest-
megnis á bekknum í fyrri hálf-
leik að spreyta sig í þeim síðari
og við það jafnaðist leikurinn.
Markamunurinn minnkaði þó
lítið sem ekkert og hélst á bilinu
níu til ellefu mörk. Þó að munur-
inn hafi verið mikill gáfust FH-
stúlkur ekki upp og héldu áfram
að sækja.
Leikurinn fjaraði þó út og níu
marka sigur Vals varð staðreynd
í leik þar sem gestirnir kláruðu
leikinn í fyrri hálfleik með
góðum varnarleik, markvörslu
og hraðaupphlaupum.
„Ég átti von á FH-stelpunum
grimmum og þær byrjuðu frekar
slappar en þær gáfust ekkert
upp og náðu góðum seinni hálf-
leik út úr þessu. Engu að síður þá
erum við með betri mannskap og
áttum að vinna þennan leik,“
sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari
Vals og hann var ánægður með
fyrri hálfleikinn hjá sínu liði.
„Við vorum að spila fína vörn
í fyrri hálfleik en svo kom smá
losarabragur á þetta í seinni hálf-
leiknum. Það er stutt í næsta leik
og við náðum að hvíla okkur
ágætlega í seinni hálfleiknum,“
bætti Ágúst við.
„Það var fullt af jákvæðum
hlutum í þessu, sérstaklega í síð-
ari hálfleiknum. Stelpurnar
gáfust ekkert upp en við töpuð-
um þessum leik á fyrstu 20 mín-
útunum. Mórallinn var mjög
góður í seinni hálfleiknum og við
sýndum að við getum þetta
alveg,“ sagði Halldór Kristjáns-
son þjálfari FH eftir leikinn í
gær.
FH sá aldrei til sólar gegn Val
Fyrsti leikur Hauka-
stúlkna í Evrópukeppninni fór
fram á Ásvöllum í gær er Íslands-
meistararnir tóku á móti spænska
liðinu Gran Canaria. Fyrirfram
var ljóst að það yrði við ramman
reip að draga enda spænska liðið
mjög sterkt.
Spænska liðið tók strax völdin í
leiknum og hafði sjö stiga forystu
eftir fyrsta leikhlutann, 12-19.
Þær spænsku héldu áfram að
keyra á Haukastúlkur í öðrum
leikhluta og þegar flautað var til
leikhlés var munurinn fimmtán
stig, 33-48.
Þessi munur hélst í þriðja leik-
hluta en þær spænsku bættu
aðeins við sig í lokaleikhlutanum
og lönduðu að lokum verðskulduð-
um 20 stiga sigri, 72-92.
Helena Sverrisdóttir átti stór-
leik hjá Haukunum með 25 stig, 10
stoðsendingar og 7 fráköst. Ifeoma
Okonkwo var einnig sterk með 16
stig og 11 fráköst.
Tuttugu stiga tap hjá
Haukum gegn Canaria