Fréttablaðið - 10.11.2006, Qupperneq 94
Sífellt fleiri íslenskir karlmenn eru
skeggjaðir. Þetta er sérstaklega
algengt meðal þekktra Íslendinga
en almennt má segja að komið sé í
tísku að vera með skegg. Logi Berg-
mann Eiðsson var með þeim fyrstu
sem reið á vaðið og í kjölfarið birt-
ist Haukur Hólm með myndarlegt
skegg. Fleiri virðast vera að bætast
í hópinn.
Hárgreiðslumaðurinn Gummi á
Mojo segist verða meira var við að
karlmenn safni skeggi. „Það er ein-
hver Baltasars-fílingur í gangi,“
segir Gummi og vísar þar til leik-
stjóra Mýrarinnar sem ósjaldan
skartar myndarlegu alskeggi.
„Þetta er nú líka veðurtengt enda
eru menn síður með skegg þegar
sól er hátt á lofti,“ bætir hann við.
Misjafnt er hvort menn safni
skeggi starfs síns vegna, eins og
fjölmargir leikarar, eða einfald-
lega til að hressa upp á útlitið.
Meðal annarra kunnra skeggapa
má nefna Daníel Ágúst Haraldsson
og Ingvar E. Sigurðsson.
Guðmundur segir
jafnframt að skeggið
geti verið karl-
mennskudæmi en
ekki sé mikið um sítt
skegg. „Sumir hafa
kannski verið
önnum kafnir, ekki nennt að raka
sig og svo líkað vel við það sem
þeir sáu í speglinum. „Ég veit það
líka af eigin reynslu að þegar
maður tekur sköfuna fram og lætur
skeggið fjúka lítur þú út eins og
tólf ára drengur,“ segir
Gummi og því gæti hér
verið um ráð til að sýn-
ast ábyrgðarfyllri. „Ég
veit um lækni sem
safnaði alltaf skeggi
áður en hann fór á fundi
hjá stjórnendum spít-
ala til að sýnast
grimmari,“ bætir
Gummi við.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
… fær Sandra Birgisdóttir fyrir
framtakssemi sína og drifkraft,
en í næstu viku keppir hún á
heimsmeistaramóti í pool, fyrst
Íslendinga.
„Þetta er rétt, ég er
mjög ósáttur,“ segir
Egill Helgason,
stjórnandi Silfurs
Egils.
Á bloggsíðu Steingríms Sæv-
arrs Ólafssonar er því haldið fram
að Egill sé afskaplega ósáttur við
það hversu lítils stuðnings Silfrið
nýtur meðan allt er lagt í nýjan
þátt, Pólitík, sem fjallar um hlið-
stætt efni og Egill hefur haft til
umfjöllunar. Egill sagðist í samtali
við Fréttablaðið ekki hafa lesið
blogg Steingríms en svo virðist
sem bloggarinn fari býsna nærri
um sannleikann.
Sigmundur Ernir Rúnarsson,
fréttastjóri Stöðvar tvö, vildi ekki
tjá sig um málið á þessu
stigi utan þess sem hann
sagðist ekki kannast
við neina óánægju af
hálfu Egils. Hann
bætti einnig við að
öll samtöl sín við
starfsmenn Stöðvar-
innar væru trúnaðar-
mál.
Egill vildi
ekki staðfesta
neitt í þá ver-
una að hann
væri á leið frá
365 enda væri
enn ýmislegt á
huldu um
hvernig málum yrði háttað.
Ljóst er að ef Egill
hættir á Stöð 2 er sjón-
varpsstöðin búin að
missa öflugan mann
nú þegar kosningar
eru á næsta leiti enda
fáir jafnvel inni í þeirri
kosningabaráttu sem nú
er hafin og Egill Helga-
son.
Egill telur að sér vegið á Stöð 2
Mörgum blöskrar að jólaskreyt-
ingar skuli vera komnar upp, jóla-
lög fari bráðum að hljóma á öldum
ljósvakans og jólin séu hreinlega
komin í byrjun október eða miðjan
nóvember. Atli Týr Ægisson hefur
opnað netsíðuna atli.askja.org/jol/
þar sem hann birtir nöfn þeirra
fyrirtækja sem hafa gerst sek um
að flýta öllu því sem tengist jólun-
um. „Ég er ekki beint að mótmæla
jólunum heldur frekar ótímabær-
um jólaundirbúningi,“ segir Atli
en þetta er þriðja árið í röð sem
hann hefur þennan háttinn á og
hefur síðan notið mikilla vinsælda
en þar geta gestir fengið afnot af
borða sem á stendur. „Jólin mín
byrja í desember – jól á réttum
tíma“. Á heimasíðunni segir Atli
að þessi ótímabæri jólaundirbún-
ingur spilli fyrir hinum alvöru
jólum og að margir séu hreinlega
orðnir dauðþreyttir á þeim þegar
þessi hátíð ljóss og friðar gengur í
garð.
Meðal þeirra fyrirtækja sem
nefnd eru á listanum má nefna
Kringluna sem Atla telst til að hafi
verið skreytt með jólaskrauti í lok
október og IKEA sem hóf að selja
jólavörur 12. október. „Þetta er svo-
lítið þreytandi,“ segir Atli. „Menn
mættu svona aðeins fresta þessu
fram til loka nóvember eða byrjun
desember,“ bætir Atli við og segist
ekki ætla að versla við þau fyrir-
tæki sem hafi þennan háttinn á, að
flýta jólunum. Hann segist þó ekki
vita til þess að útvarpsstöðvar séu
farnar að spila jólalög en það stytt-
ist örugglega í það.
Atli er ekki sá eini sem berst
gegn þessari þróun því sambæri-
leg samtök má finna í Noregi sem
heita „Gi oss jula tilbake“ eða
Gefið okkur jólin aftur og er þar
harðlega mótmælt þeirri brjáluðu
efnishyggju sem fylgi jólahaldi. Á
Íslandi eru jafnframt samtökin um
gleðileg jól starfrækt í Hafnar-
firði en þar eru bæjarstarfsmenn í
óða önn að koma upp jólaskreyt-
ingum þótt ekki hafi verið kveikt á
þeim. Atli stundar söngnám við
Tónlistarskólann í Hafnarfirði hjá
Guðlaugi Viktorssyni og segist
söngvarinn ekki vera farinn að
æfa jólalögin. „Ekki enn í það
minnsta,“ segir hann og hlær.
Skeggbylgja meðal íslenskra karlmanna
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
PAKKAFERÐIR
VIÐ ALLRA HÆFI
Öll verð miðast við að tveir séu saman í herbergi.
Tottenham–Wigan
58.900 kr.24.–27. nóv.
27.–29. nóv.
George Michael
69.900 kr.
Berlín í jólaundirbúningi
51.900 kr.24.–27. nóv.
Aðventuferð til Trier
59.900 kr.8.–11. des.
Sheraton Real de Faula
Verð frá 59.180 kr.Valfrjálst
Arsenal–Man. City
54.900 kr.30.–31. jan.
Chelsea–Arsenal
69.900 kr.9.–11. des.
Arsenal–Portsmouth
59.900 kr.15.–17. des.
Óli Palli og The Pogues
59.180 kr.16.–18. des.
Liverpool–Everton
84.900 kr.2.–4. feb.
Keisari Rokklands á Rás 2, Óli Palli, ætlar að
sjá um Rokklandsferðir Express Ferða í vetur.
Í desember fer Óli Palli með góðan hóp til
London og verður farið á tónleika með The
Pogues. Innifalið: Flug með sköttum, hótel í 2
nætur með morgunverði, rúta til og frá flug-
velli, íslensk fararstjórn og miði á tónleikana.
Önnur ferð Tottenham-klúbbsins á Íslandi. Sú
fyrri var afar vel heppnuð og er engin ástæða
til að ætla að svo verði ekki þegar Spurs taka
á móti Wigan. Heimamenn ætla sér sigur og
ekkert annað á White Hart Lane. Innifalið:
Flug með sköttum, hótel í 3 nætur, íslensk
fararstjórn og miði á leikinn.