Tíminn - 01.04.1979, Side 1
Sunnudagur 1. apríl 1979
77. tölublað—63. árgangur
Emma Goldman -
kvenréttindakona á undan
sinni samtíö • Sjá bls. 2
Siðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik ^ Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 ■ Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
§£SM£
Fagnaöarfundir... þeir Högni Torfason og Einar S. Einarsson, forseti Skáksambandsins, sjást hér taka á móti Karpov á Keflavikurflugvelli á laugardagsmorgun-
inn' (Timamynd Róbert)
Karpov á íslandi
Ætlar að
hnekkja heimsmeti Horts
I fjöltefli I
Sigtúni i
dag kl. 3.
Þaö er ánægjuiegt aö vera kom-
inn til íslands — skákþjóöarinnar
miklu, sagöi Anatoly Karpov,
heimsmeistarinn snjaiii i skák,
sem kom óvænt i stutta heimsókn
til tslands i gær (laugardags-
morgun), en hann ákvaö aö koma
hingaö á leið sinni til Kanada, þar
sem hann verður meöal þátt-
takenda I sterkasta skákmóti
allra tima, sem fer fram I
Montreal um næstu helgi.
Karpov sagöi, aö aöalástæöan
fyrirþviað hann kæmi hingaönú,
væri að semja um þátttöku í
,,Friöri ks mó t i nu ”, sem
fýrirhugaö væri hér i mai' — Þvi
miður sé ég mér ekki fært að
taka þátt I mótinu en væntanlega
mun ég tefla hér siöar á árinu.
Forystumenn Skáksambands
íslands tóku á móti Karpov á
Keflavikurflugvelli — þeir Einar
S. Einarsson, forseti skáksam-
bandsins og Högni Torfason,
varaforseti samandsins og voru
miklir fagnaðarfundir.
,,Spennandi mót — og
geysisterkt”
— Veröur mótiö f Kanada ekki
þaöallra sterkasta, sem þú hefur
tekiö þátt i?
— Jú, þaöer hægt aö segja þaö
— það veröur geysilega sterkt og
reikna ég fastlega meö þvi, aö
það veröi spennandi og tvisýnt.
Það er erfitt aö vera heimsmeist-
ari i' þvi, þar sem allir þátttak-
endur veröa ákveönir aö leggja
mig að velli.
Heimsbikarmótið „World
Chess Cup” i Montreal er i hæsta
styrkleikaflokki — og taka 10 af
sterkustu skákmönnum heims
þátt i þvi og veröur tefld tvöföld
umferö.
Þeir sem taka þátt i' mótinu
eru: Anatoly Karpov, heims-
meistari (2705) Sovétrikjunum,
Boris Spassky, fyrrverandi
heimsmeistari (2640), Sovétrlkj-
unum, Lajos Portisch (2640) Ung-
verjalandi, Jan Timman (2625)
Hollandi, Bent Larsen (2620)
Danmörku, Mikhail Tal (2615)
Sovétrikjunum, Vlastimil Hort
(2600) Tékkóslóvakiu, Robert
Hubner (2595) V-Þýskalandi,
Ljubomir Ljubojevic (2590),
Júgóslaviu og Lubomir Kavalek
(2590) Bandarikjunum, sem er
jafnframt einn af aöalskipuleggj-
endum mótsins.
Verölaun eru svimandi há
miöaöviö þaösem venjulega er á
skákmótum eöa $25.000 i 1.
verölaun (Isl. kr. 9.999.999), en
$4000 i 10. verölaun (Isl. kr.
1.500.000)
Ætlar að hnekkja heims-
meti Harts
Einar S. Einarsson, forseti
Skáksambandsins, sagöi aö þaö
væri mjög ánægjulegt aö Karpov
hafi komiö til Islands til aö ræöa
málin — í sambandi viö „Friö-
riksmótiö”. — Eftir að viö höfum
rætt viö Karpov, þá gerum viö
okkur miklar vonir um, aö hann
komi hingaö I desember og taki
hér þátt I fjögurra manna móti —
ásamt Friðrik, Larsen og Hort.
Þá getur fariö svo, aö þeir Hubn-
er og Timman taki einnig þátt i
því móti, en ég mun ræöa viö þá i
Kanada um þaö.
Þá sagöi Einar, aö Karpov hafi
ákveöiö aö reyna aö hnekkja
heimsmeti Horts i fjöltefli, sem
hann setti hér fyrir tveimur
árum. — Það hefur veriö ákveöiö
aö fjöltefliö hefjist á morgun
(sunnudag) i' Sigtúni viö
Suöurla ndsbraut og hefjist þaö kl.
3. Viö höfum nú þegar safnað
saman 800 manns, en alls geta
llOOmanns tekið þátt I fjölteflinu.
Þeir sem hafa áhuga aö vera meö
eru beðnir aö mæta tímalega og
hafa meö sér töfl, sagði Einar.
1 Tímanum á þriöjudaginn
veröur einkaviötal Timans viö
Karpov.
Þursaflokkurinn með
hljómleika i
Alþingishúsinu
Sjá Nútímann bls. 22-23
„Mórallinn er mikið
að breytast”
— viðtal við Óskar Friðriksson,
starfsmann S.Á.Á.
■ Sjá bls. 16-17
Viðtal við Ásgeir
Bjarnþórsson,
listmálara
— Sjá bls. 10 og 11