Tíminn - 01.04.1979, Page 3
Sunnudagur 1. aprll 1979
3
EMMA GOLDMAN.hugsuður
Emma átti oft erfitt meB að
hafa i sig og á. Hið mikla starf
hennar í þágu stjórnleysingja var
illa launað. Hún vann i verk-
smiðjum, saumaði fyrir fólk, var
hjúkrunarkona, gætti barna fá-
tækra innflytjenda, var nuddkona
hjá þeim riku, og ritstýrði tima-
ritinu Móðir jörð (Mother Earth).
Lífsþráin
Emma er merkilegust fyrir það
hvernig hún fylgdi þeim boðum,
sem hún setti fram, i einkalifi
sinu. Hún sagði, að frelsið verði
ekki fellt i fjötra stjórnmála-áætl-
ana eða samfélags-siðgæðis.
Frelsið verður að vera veruleiki
hér og nú. Eitt sinn er hún var
yngri dansaði hún af mikilli gleði
á samkomu stjórnleysingja. Ung
ur, alvarlegur maður ávitaði
hana fyrir slika hegðun, sem ekki
samrýmdist háleitum markmið-
um. Atferli hennar hlyti að skaða
hreyfinguna. Emma sagði: ,,Ég
var bálreið við piltinn fyir að sýna
þvilika ósvifni. Ég sagði honum
að sjá um sig, — ég væri hundleið
á að heyra sifellt klifað á
Málefninu. Ég gæti ekki skilið, að
mikilsverð hugsjón eins og
stjórnleysisstefnan og frelsi
undan oki hindurvitna og for-
dóma, krefðist þess, að maður
nyti ekki gleðinnar yfir að lifa.
Ég sagði, að hugsjón okkar
heimtaði ekki að ég gerðist
nunna og að hreyfingin breyttist i
klaustur. Ef hreyfingin krefðist
þess. þá hefði ég ekkert i henni aö
gera. Ég vildi lifa hugsjón mina i
verki, hugsjón stjórnleysisstefn-
unnar, i trássi við allan heiminn,
fangelsi, ofsóknir, allt. Já, jafnvel
þótt nánustu félagar minir of-
sæktu mig ætlaði ég að gera
hugsjón mina að veruleika”.
Tveir menn
Emma stóð i langri og harðri
baráttu við karlmenn. A yngri
árum reyndi hún að búa með
tveimur körlum samtimis. A efri
árum reyndi hún að fá karlmenn
til að virða stjórnmálastarfsemi
sina. Hvort tveggja mistókst, og
hún varð alltaf að velja á milli
ástarinnar og stjórnmálastarfs-
ins. Hún valdi stjórnmálin, — en
ekki i gleði og baráttuvilja,
heldur eftir mikla umhugsun. A
gamalsaldri barðist hún fyrir
rétti öldunga til ástalifs og i
löngum bréfum ræddi hún um
gildi tilfinninganna i stjórnmála-
lifinu. ,,Ef þú ekki finnur til i
sambandi við mál, færð þú aldrei
skilið merkingu þess,” sagði hún.
endursögn á grein
eftir Anita Goldman
Lögreglan tók myndir af Emmu og lét þær hanga vlða á lögreglustöðvum, svo yfirvöld gætu varað sig á
þessari konu. Hún sagði, að ef einhvern skorti upplýsingar um sig, væri ekkert auðveldara en að fá þær
á næstu lögreglustöð.
Mjög margt af hugmyndum
Emmu Goldman gengur eins og
rauður þráður i gegnum kven-
réttindabaráttu undanfarinna
ára. Einnn kvenréttindahópur
Bandarikjanna kallaði sig „Her-
deild Emmu Goldman”. Kven-
réttindahreyfingin á dögum
Emmu var ekki hrifin af henni.
Emma lagði alltaf áherslu á, að
öll kvennahreyfing væri barátta
gegn öllu misrétti, öllum rikis-
stjórnum, gegn öllu valdi.
„Kosningaréttur og jafnrétti að
lögum er ágætt, en frelsun kon-
unnar hefst hvorki i kjörklefanum
eða i réttarsalnum, heldur i huga
konunnar”.
Og eitt sinn hrópaði hún á
fundi: „Þaömá ekki fórna ástinni
fyrir jafnrétti. Getum við ekki
elskað karlmenn, getum við ekki
elskað, öðlumst við aldrei
frelsi?”.
Vísað land úr landi
En það er ekki heldur unnt að
fórna einstaklingnum fyrir sam-
félagið. Hún var flutt til Sovét-
rikjanna árið 1919 ásamt 247 öðr-
um stjórnleysingjum. Bandarikin
höföu fengið nóg af Emmu Gold-
man. Hún hefði getað fengið góöa
stöðu i Sovétrikjunum. En henni
féll ekki kúgunin i hinu nýja riki
sameignarsinna. Hún flúði hið
nýja ófrelsi i Rússlandi og fór til
Sviþjóðar. En hún var of hættuleg
fyrir Svia. Um tveggja áratuga
skeið bjó hún landflótta i
Englandi og Frakklandi. 1940
lést hún i Kanada, en þangað
hafði hún farið til að safn fé handa
spænsku þjóðinni.
Það er margt
sem þér likar vel
íþeim
nýju amerisku
Aflmikil 5,7 lítra 8 cyl. vél
Sjálfskipting
Vökvastýri
Aflhemlar
Styrkt fjöðrun
Sæti fyrir 12 manns
Millibil hjóla 125”
Burðargeta 2,400 kg
Úrval lita, innan og utan
Chevrolet Sport Van kr.6.000.000. til sendibílstjóra
Þetta er það sem þeir nýju
frá General Motors snúast allir um
Chevrolet Sport Van til annarra kr. 8.2Ö0.0ÖÖ.
Motors
CUEVROII I
CONTIAl
CX DSMCXIH I
BUK'K
AnnrAT"'
,1féladeild
i Sambandsins
Ármúla 3 Rcyk/avik Simi 38900
ogbaráttu-
kona