Fréttablaðið - 14.11.2006, Blaðsíða 10
Kjósendur í Suður-Ossetíu samþykktu
nánast einróma í atkvæðagreiðslu á sunnudaginn að
lýsa yfir formlegu sjálfstæði héraðsins, sem tilheyrir
Georgíu en hefur þó notið sjálfstæðis í reynd í meira
en áratug.
Samkvæmt bráðabirgðatölum greiddu 99 prósent
kjósenda sjálfstæði atkvæði sitt. Suður-Ossetíumenn
virðast almennt vilja sameinast Rússlandi þegar fram
líða stundir. Sjálfstæði héraðsins frá Georgíu er fyrst
og fremst hugsað sem áfangi í þá átt.
Meira en þúsund manns létu lífið í harðvítugri
borgarastyrjöld aðskilnaðarsinna við Georgíuher á
árunum 1991 til 1992, sem braust út í beinu framhaldi
af falli Sovétríkjanna.
Stjórn Suður-Ossetíu er í nánum tengslum við
Rússland, sem viðurkennir ekki heldur formlega sjálf-
stæði héraðsins en hefur veitt íbúum þess leyfi til að
ganga með rússnesk vegabréf.
Rússneska rúblan er sá gjaldmiðill, sem notaður er
í Suður-Ossetíu, og rússneski fáninn blaktir víðast við
hún við hlið héraðsfánans. Kosningarnar á sunnudag-
inn breyta í sjálfu sér engu um formlega stöðu Suður-
Ossetíu vegna þess að Georgía viðurkennir ekki
sjálfstæði héraðsins og þar með ekki heldur lögmæti
kosninganna.
Skoðið
Gagnvirkt efni og leikir – heima og í skólanum
Það er leikur að læra á vef Námsgagnastofnunar
má finna ýmislegt fróðlegt
og skemmtilegt fyrir krakka á
öllum aldri. Vefurinn er opinn
fyrir alla.
Á www.nams.is
NÁMSGAGNASTOFNUN
Fargjöld Icelandair og
Iceland Express hafa hækkað um
10–12 þúsund krónur á þremur
árum, eða um 50 prósent.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, segir skatta og
gjöld Icelandair
og Iceland
Express hafa
hækkað um 147
prósent á síðustu
þremur árum.
„Nú er svo komið
að Icelandair og
Iceland Express
innheimta rúm-
lega tvöfalt
hærri upphæð
undir heitinu
skattar og gjöld
en þau skila til
flugvalla.
Sem dæmi má
nefna að Iceland
Express rukkar
farþega um 7.290
krónur í skatta
og gjöld á flug-
leiðinni til Alicante, sem er marg-
föld skattaupphæð á þessari leið.“
Runólfur segir að önnur flugfélög,
eins og Heimsferðir, innheimti
mun lægri upphæð í skatta og
gjöld á þessari leið.
Runólfur segir merkilegt að
afkoma Icelandair og Iceland
Express hafi batnað þrátt fyrir
hátt olíuverð. Nýlega kom fram að
áætlaður hagnaður Iceland
Express væri um 600 milljónir
króna á þessu ári og hefur aukist
um 100 prósent frá síðasta ári.
„Vissulega er það góðs viti ef félög
skila góðum rekstri en hækkanir
félaganna á þjónustugjöldum eiga
sér ekki hliðstæðu í raunveruleik-
anum og því má draga þá ályktun
að þannig sé hluti hagnaðarins til-
kominn.“
Runólfur segir að þessum upp-
lýsingum verði beint til sam-
keppnisyfirvalda ekki síst í ljósi
þess að nú sé hægt að sjá eigna-
tengingu á milli Icelandair og Ice-
land Express eftir að hluthafar í
Icelandair eignuðust meirihluta í
Iceland Express.
Birgir Jónsson, forstjóri Ice-
land Express, segir eignatengsl
þessara félaga ekki eins mikil og
látið sé af og að þetta mál sé nú
þegar í skoðun hjá samkeppniseft-
irlitinu.
Birgir segir lækkun á gengi
íslensku krónunnar og olíuhækk-
un hafa sett mikinn strik í reikn-
inginn á árunum 2003 og 2004 og
því hafi þurft að hækka fargjöld-
in. „Þá er Leifsstöð mjög dýr flug-
völlur og þar eru innheimt 2–3
sinnum hærri gjöld miðað við aðra
flugvelli sem Iceland Express
flýgur um.“
Birgir segir betri afkomu fyrir-
tækisins tilkomna vegna meiri
hagkvæmni í rekstri og segir sam-
keppni milli flugrekstraraðila
mikla á Íslandi.
Eru samstiga í
verðhækkunum
Ástand á vinnu-
markaði er gott. Skráð atvinnu-
leysi var eitt prósent í október eins
og september, samkvæmt upplýs-
ingum frá Vinnumálastofnun.
Vísbendingar eru um að ástandið
muni versna á næstunni, eftir því
sem fram kemur á vef ASÍ.
Atvinnuleysi hefur aukist
lítillega á landsbyggðinni meðal
karla og kvenna og hjá körlum á
höfuðborgarsvæðinu en minnkað
meðal kvenna á höfuðborgarsvæð-
inu. Vinnumálastofnun gerir ráð
fyrir að um tíu þúsund erlendir
ríkisborgarar hafi komið til starfa
á íslenskum vinnumarkaði það sem
af er ári.
Um eitt prósent
atvinnuleysi
Nú er svo komið að
Icelandair og Iceland
Express innheimta rúmlega tvö-
falt hærri upphæð undir heitinu
skattar og gjöld en þau skila til
flugvalla.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI