Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.11.2006, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 30.11.2006, Qupperneq 6
A R G U S / 06 -0 55 2 Debetkort með kreditheimild* – vaxtalaus og án nokkurs kostnaðar! Kynntu þér DMK Debetkort og aðra þjónustuþætti DMK á spron.is * skv. útlánareglum SPRON Dagsbrún tapaði 3,2 milljörðum króna á þriðja fjórðungi ársins. Þetta er nokkuð meira en greiningardeild Glitnis reiknaði með en hún spáði 2,8 milljarða króna tapi á fjórðungnum. Þá nam tap félagsins tæpum 4,7 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 554 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. Í uppgjöri Dagsbrúnar segir að tekjur Dagsbrún- ar (nú 365 hf.) hafi numið 36,1 milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins sem er rúm þreföldun frá síð- asta ári en þá námu þær rúmum 10,8 milljörðum króna. Tekjur á þriðja ársfjórðungi námu tæpum 16 milljörðum króna, sem er 12,1 milljarðs króna aukn- ing á milli ára. Rekstrarhagnaður (EBITDA) af reglulegri starf- semi fyrir óvenjulega liði fyrstu níu mánuði ársins nam tæpum 3,8 milljörðum króna samanborið við rétt rúma 2,3 milljarða króna í fyrra. Handbært fé Dagsbrúnar frá rekstri án vaxta nam 26 milljónum króna fyrstu níu mánuði ársins sem skýrist af miklum óvenjulegum kostnaði í fjórðungn- um og aukningu á rekstrartengdum eignum og skuld- um. Á sama tíma í fyrra nam þessi liður tæpum 1,9 milljörðum króna, að því er segir í uppgjörinu. Heildareignir félagsins í septemberlok námu 87,6 milljörðum króna samanborið við 22,8 milljarða króna í lok síðasta árs. Dagsbrún tapaði 3,2 milljörðum Bæta þarf þjónustu við aldraða til muna segir Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, blaðamaður hjá tímaritinu Ísafold, sem villti á sér heimildir þegar hún réði sig á elliheim- ilið Grund í vikutíma og skrifaði grein um aðbúnað vistmanna þar. Það hefur ekki gerst áður hér á Íslandi að blaðamaður beiti slíkum vinnubrögðum. Fyrri hluti greinarinnar birtist í blaðinu Ísa- fold sem kemur út í dag. Reynir Traustason, ritstjóri Ísafoldar, segir að slík vinnubrögð séu ekki siðferðilega röng. „Þetta er eina leiðin til að komast að raunveruleikanum. Við viljum vita hvort við séum að fara nógu vel með gamla fólkið, hvernig því líður í raun inni á þessari stofn- un,“ segir Reynir. Að sögn Reynis var öllum nöfnum vist- manna breytt í greininni og því komi umfjöll- unin sér ekki illa fyrir neinn. Spurður segir Reynir að vissulega hafi Ingibjörg villt á sér heimildir, því þeir sem réðu hana í starfið vissu ekki að hún ætlaði að skrifa grein um reynslu sína í starfinu. Reynir segir að menn muni sjá meira af slíkum greinum í Ísafold. „Ef við ætlum að fylgja öllum siðferðisreglum þá munu fullt af hneykslismálum aldrei koma upp á yfirborð- ið,“ segir ritstjórinn og kallar þessi vinnu- brögð „hina nýju blaðamennsku“. Júlíus Rafnsson, framkvæmdastjóri Grundar, sagði í Kastljósi Sjónvarpsins í gær að sú mynd sem Ingibjörg dregur upp af elli- heimilinu sé nöturleg og að vinnubrögð Ísa- foldar séu vafasöm. Hann sagði að ekki væri hægt að líða að Ingibjörg hafi logið sig inn í starfið og ýjaði að því að Grund myndi leita réttar síns fyrir dómstólum. Blaðamaður réði sig til starfa á Grund Hefur þú dottað undir stýri? Gefur þú blóð? Tveir karlmenn reyndu að stela þrjú hundruð kílóa hraðbanka úr útibúi Landsbank- ans að Kletthálsi í Reykjavík á miðvikudagsmorgun. Mennirnir losuðu hraðbankann, mjökuðu honum að hurð bankans og veltu honum á hliðina. Öryggis- kerfi bankans fór í gang og tóku myndavélar í anddyrinu aðfarirn- ar upp á myndband. Þegar örygg- isvörður kom á vettvang lá hrað- bankinn í dyragættinni en mennirnir höfðu hypjað sig. Öryggisvörðurinn gerði lög- reglunni viðvart laust fyrir klukk- an átta og kom hún á vettvang og rannsakaði vegsummerki eftir ránstilraunina. Mennirnir voru ekki með nein verkfæri þegar þeir reyndu að fremja ránið og bendir það til að um skyndiákvörðun hafi verið að ræða. Haukur Þór Haraldsson, fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs Landsbankans, segir að mennirnir hafi líklega ekki áttað sig almenni- lega á því hvað þeir voru að gera; að þeir væru í beinni útsendingu meðan þeir böðluðust á hraðbank- anum. „Ef þeir hefðu litið upp og séð myndavélina þá hefðu þeir áttað sig á því að þetta var vonlaus tilraun,“ segir Haukur og bætir því við að hraðbankar í landinu hafi yfirleitt verið látnir í friði. Að sögn Hauks var hraðbank- inn illa festur, hann var ekki bolt- aður niður í gólfið, sem venjulega er gert til að festa slíka hraðbanka. Ástæðan er sú að það er hiti í flís- unum í anddyri útibúsins sem gerir það ómögulegt að festa hrað- bankann með boltum því þeir eyði- leggi hitamottuna undir flísunum. „Í þessu tilfelli var hraðbankinn festur með lélegustu festingunum okkar.“ Haukur segir að hugsanlega hafi tæknibúnaður inni í hrað- bankanum skemmst en að líklega sé ekki um mikið tjón að ræða fyrir bankann. Starfsmaður lögreglunnar í Reykjavík segir að ekki sé gáfu- legt að stela slíkum hraðbönkum því yfirleitt séu ekki miklir pen- ingar í þeim. Hann segist eingöngu muna eftir einu slíku ráni. Það átti sér stað í anddyri Kennaraháskól- ans fyrir nokkrum árum. Þá náðu þjófar að nema hraðbanka á brott og gómaði lögreglan mennina og var hraðbankinn í bíl þeirra. Lögreglan rannsakar nú ráns- tilraunina og býst við því að hand- taka þjófana fljótlega ef þeir gefa sig þá ekki fram áður. Ætluðu að stela 300 kílóa hraðbanka Tveir menn reyndu að fremja klaufalegt rán í gær. Ránið var í beinni útsend- ingu. Starfsmaður Landsbankans segir hraðbankann hafa verið illa festan.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.