Fréttablaðið - 30.11.2006, Side 12

Fréttablaðið - 30.11.2006, Side 12
Losun kolefnis í formi koltvísýrings út í andrúms- loftið hefur aukist um 2,5 pró- sent á ári frá árinu 2001 en losun- in jókst um eitt prósent árlega fram til ársins 2000. Þetta kemur fram á bloggsíðu Einars Svein- björnssonar, aðstoðarmanns umhverfisráðherra, www.esv. blog.is. Ástæðan fyrir því að losunin hefur aukist svo hratt er rakin til þess að meira er brennt af kolum en áður. Skýringin er að hluta til verðhækkun á olíu upp á síðkast- ið en stórir orkuframleiðendur hafa skipt frá olíu yfir í kol sem menga meira. „Einnig hafa fleiri brugðið á það ráð að taka upp heimilis- kyndingu upp á gamla mátann með eldivið og öðrum álíka orku- gjöfum. Upp úr 1970 virtist sem heimsbyggðin væri að ná tökum á losun kolefnis þar sem elds- neytisnotkunin minnkaði og breyttist,“ segir Einar og telur líkast til vísað til aukinnar notk- unar á kjarnorku sem hafi orðið á þessum árum og notkunar á nýjum jarðgaslindum sem hafi útrýmt kolum að mestu. „En nú sem sagt eykst þessi bruni hratt á nýjan leik. Og auk þeirrar ástæðu sem áður er talin eiga fjölmenn nýhagvaxtarlönd með Kína í fararbroddi sinn þátt í þessari aukningu. Samkvæmt þessum upplýsingum er því gróð- urhúsavandinn enn stærri og ill- viðráðanlegri en áður var talið. Eða hvað?“ spyr hann. Ástæðan er verðhækkun olíu Benedikt sextándi páfi lýsti sig í gær fylgjandi því að Tyrkland fái aðild að Evrópu- sambandinu. Páfi er í opinberri heimsókn í Tyrklandi í þeim til- gangi að lægja reiðiöldur mús- lima gagnvart sér og stuðla að sáttum milli kristinna og mús- lima. Hugsanleg aðild Tyrklands að Evrópusambandinu er vægast sagt umdeild, jafnt í Tyrklandi sem í aðildarríkjum Evrópusam- bandsins. Tyrknesk stjórnvöld hafa á síðustu árum sótt það stíft að fá aðild að Evrópusambandinu, en strandað hefur á ýmsu, nú síðast á kröfu Evrópusambandsins og Kýpur-Grikkja um að Tyrkir veiti Kýpur-Grikkjum aðgang að höfnum og flugvöllum í Tyrk- landi. Í gær lagði Olli Rehn, sem fer með stækkunarmál ESB í fram- kvæmdastjórn sambandsins, að aðildarviðræðum við Tyrkland verði að hluta frestað vegna deil- unnar, þar sem Tyrkir hafa til þessa ekki viljað veita Kýpur, sem er fullgilt aðildarríki í Evr- ópusambandinu, þennan aðgang. Endanleg ákvörðun um hvort aðildarviðræðum verði frestað vegna þessarar deilu verður þó ekki tekin fyrr en á leiðtogafundi Evrópusambandsins um miðjan desember. Recep Tayyin Erdogan, for- sætisráðherra Tyrklands, brást í gær ókvæða við þessari tillögu Rehns. „Við látum engan troða á réttindum okkar,“ sagði hann. Erdogan æfur vegna frestunar PANTAÐU Í SÍMA WWW.JUMBO.IS 554 6999 SAMLOKUBAKKI | TORTILLABAKKI | BLANDAÐUR BAKKI ÞÚ GETUR PANTAÐ GIRNILEGA VEISLUBAKKA FRÁ OKKUR MEÐ LITLUM FYRIRVARA
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.