Fréttablaðið - 30.11.2006, Blaðsíða 32
hagur heimilanna
Notar útivistarbolinn alla daga
Ari Matthíasson leikari hefur lært
það af reynslunni að best sé að fá iðn-
aðarmenn til að sjá um endurbætur.
Nú fer í hönd sá tími sem
fólk fer að huga að jóla-
gjöfum handa vinum og
vandamönnum hérlendis og
erlendis. Þeir sem hyggjast
senda jólagjafir út fyrir
landsteinana geta valið úr
nokkrum fyrirtækjum sem
bjóða upp á sendingarþjón-
ustu.
Anna Katrín Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri markaðs- og sölu-
sviðs hjá Póstinum, segir alltaf
mest að gera á þeim degi þegar
fresturinn til að senda pakka og
póst rennur út. „Viðskiptavinir
okkar senda sjötíu prósent allra
pakka til Norðurlandanna og Norð-
ur-Evrópu. Fyrir jólin í fyrra send-
um við átta þúsund pakka út og
var meðalþyngd þeirra um þrjú
kíló.“ Anna segir að það kosti 2.495
krónur að senda tveggja kílóa
pakka til Bretlands og sama þyngd
til Danmerkur kostar 1.750 krón-
ur.
Pósturinn reiknar ekki út
ákveðinn dagafjölda fyrir send-
ingar en miðar við að sendingarn-
ar komist til skila fyrir jól séu þær
ekki sendar síðar en á síðasta
sendingardegi fyrir jól.
Anna segir þá sem panta vörur
að utan, til dæmis af netbóksöl-
unni Amazon, ættu að bæta nokkr-
um dögum við þann afhendingar-
tíma sem gefin er upp á vefnum
því hann sé oft knappur.
Kolbrún Sigtryggsdóttir, deild-
arstjóri útflutnings hjá UPS, segir
sendingar yfirleitt aðeins taka
einn dag til Evrópu og Bandaríkj-
anna en utan þessara svæða séu
vörur yfirleitt komnar eftir tvo til
fjóra daga. „Það hefur færst í auk-
ana að fólk notfæri sér þjónustu
okkar, sérstaklega þegar það þarf
að senda matvæli. Heimurinn
skiptist í átta verðsvæði og er verð
breytilegt eftir þjónustustigi, en
boðið verður upp á sérstök tilboð í
desember.“ Ef miðað er við tveggja
kílóa sendingu til Bretlands og
Danmerkur er verð á henni 5.593
krónur.
Kolbrún segir að pakkinn sé
sóttur til sendanda og viðtakandi
fái hann síðan sendan heim að
dyrum. „Þeir sem búa úti á landi
þurfa að koma sendingunni til höf-
uðborgarinnar en við getum síðan
sótt hana hvert sem er innan borg-
armarkanna.“
Haukur Óskarsson, þjónustu-
stjóri hjá DHL á Íslandi, segir
sendingartíma stuttan, aðeins einn
dag ef allt gengur upp. „Þeir sem
senda geta fengið kassa og lím-
band hjá okkur en einnig er hægt
að sækja pakkann heim og hann er
síðan fluttur heim til viðtakanda.
Flutningsgjald fyrir tveggja kílóa
pakka til Bretlands er 2.750 krón-
ur og er verðið svipað til Banda-
ríkjanna en til Danmerkur er
kostnaðurinn 3.462 krónur.
Þeir sem senda mat til útlanda
þurfa að skila inn heilbrigðisvott-
orði og þeir sem senda matvæli til
Bandaríkjanna geta lent í því að
sendingin sé stoppuð í tollinum,
sérstaklega ef um er að ræða reyk-
tan lax eða hangikjöt.“ Haukur
bendir fólki á að vera tímanlega
með sendingar til að minnka líkur
á því að þetta gerist.
Kristbjörn Eydal, þjónustufull-
trúi Fedex hraðflutninga, segir
sendingartíma til Evrópu og
Ameríku vera einn til tvo daga og
að mest sé sent út af jólagjöfum
og hangikjöti. „Við sjáum nokkra
aukningu á milli ára og greinilegt
að fleiri senda vinum og ættingj-
um erlendis jólaglaðning.“ Krist-
björn segir sérstakt jólatilboð í
gangi núna sem miði við tvær
stærðir af kössum. „Minni kassinn
rúmar fimm kíló en flutningur á
honum kostar 5.775 krónur. Stærri
kassinn rúmar 9-14 kg en sending-
arkostnaður hans er 9.775 krónur.
Þess skal getið að sendingarkostn-
aður er sá sami óháð áfangastað.“
Kristbjörn segir Fedex sækja
pakkana til sendanda og að viðtak-
andi fái þá síðan afhenta heim til
sín.
Þúsundir jólapakka til
útlanda á ári hverju
Atlantsolía - Vesturvör 29 - Sími 591 3100
atlantsolia@atlantsolia.is
Engar tapaðar
kvittanir
Nú er hægt að tengja Dælulykilinn
við netfang þannig að um
klukkustund eftir dælingu
kemur sjálfkrafa pdf- kvittun
með tölvupósti.
Kvittun í tölvupósti
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
6
0
7
0
6
RSK
Skráning í síma: 591-3100