Fréttablaðið - 30.11.2006, Blaðsíða 41
Vertíð ilmvatnsframleiðenda er
framundan. Jólin á næsta leiti og
víst að ekki er tilviljun að ilm-
vötn hafa streymt út á markað-
inn að undanförnu. Þekkt lausn
fyrir þá sem eru í vandræðum
með gjafahugmyndir. Í það
minnsta eyðast ilmvötnin og von
til að það sem gefið var í fyrra sé
á þrotum.
Guerlain var lengi vel þekkt
fyrir hágæða ilmvötn en svo
keypti tískusamsteypan LVMH
Guerlain og arður vék fyrir
gæðum. Nú hafa stjórnendur
vaknað upp við vondan draum
og reyna að endurvinna glatað
traust viðskiptavina. Nýjasta
afurðin er Insolence. Hvert
fyrirtæki fær svo sína stjörnu í
auglýsingaherferðina til að selja
drauminn um fágun, kynþokka
og fegurð og hjá Guerlain er það
Óskarsverðlaunaleikkonan Hill-
ary Swank sem auglýsir ilmvatnið
– ekki mjög franskt.
Givenchy sendir frá sér Ange
ou Demon (engill eða djöfull) og
fyrirsætan er Marie De Villepin
sem er andlit Givenchy, sem væri
ekki í frásögur færandi nema af
því að hún er dóttir forsætis-
ráðherrans Dominique de Villep-
in. Hjá Yves Saint Laurent er það
svo kærasti Kylie Minogue, leik-
arinn Olivier Martinez sem kynnir
nýja herrailminn, L´Homme.
Ilmvatnið er eins konar tákn
hvers hönnuðar og kannski þess
vegna sem tískuhús Lanvin, sem
um nokkurt skeið hefur notið
mikillar velgegni eftir að Alber
Elbez tók við hönnuninni, hefur
skapað ilminn Rumeur eða
orðróm. Þannig er hægt að klæð-
ast Elbez frá toppi til táar.
Það er orðin gömul hefð að
hvert tískuhús blandi sér sitt ilm-
vatn. Gabrielle Chanel var á
margan hátt brautryðjandi bæði
sem kona og tískuhönnuður. Hún
fleygði lífstykkinu og frelsaði
konur úr þessari spennutreyju,
notaði tauefni í handtöskur og
svo mætti áfram telja. Hún var
einnig fyrst til að búa til ilmvatn
og selja í tískuhúsi sínu.
Það var árið 1920 sem Coco
Chanel kynntist Ernest Beaux.
Hann var fransk-rússneskur
greifi sem blandaði ilmvötn
keisarafjölskyldunnar rússnesku
en flúði frá Rússlandi af því að
hann hafði tekið þátt í morðinu á
Raspútín. Mademoiselle Chanel
bað hann um að blanda ilmvatn
handa sér. Beaux blandaði saman
22 ilmum en flaska númer 5 var
sú sem heillaði Coco mest. Þannig
varð til hið fræga númer 5 sem í
fyrstu var aðeins fyrir Coco
sjálfa en viðskiptavinirnir vildu
allir fá að vita hvaðan hann kæmi
þessi einstaki ilmur. Þess vegna
byrjaði Coco að selja ilminn árið
1924 í tískuhúsinu. Enn í dag er
þetta mest selda ilmvatn í heimi,
85 árum eftir að það var skapað.
Ekki að ástæðulausu að Marilyn
Monroe notaði ilmvatn númer 5 í
staðinn fyrir náttkjól, enda ilm-
vatnið tákn kvenleika. Nær allir
tískuhönnuðir hafa síðan fylgt í
fótspor Mademoiselle Chanel og
skapað sitt eigið ilmvatn.
Jakkar
Ný sending
REYKJAVIK STORE
LAUGAVEGI 86-94, S: 511-2007
NÝJAR OG SPENNANDI
VÖRUR FYRIR JÓLIN.