Fréttablaðið - 30.11.2006, Page 52
Kvenlegar listir er nafn á
nýrri verslun í Hlíðasmára
15 í Kópavogi. Þar er úrval af
flestu því sem þarf til útsaums
og annarra hannyrða.
Útsaumsvörur, prjónagarn og
spennandi nýjungar í þrykki er
meðal þess sem hin nýja verslun
Kvenlegar listir hefur á boðstólum.
Eigandi hennar er Halldóra Arnórs-
dóttir og með henni innanbúðar er
Erla Hrönn Sigurðardóttir textíl-
kennari. Prjónagarnið í versluninni
er danskt með merkinu Isager eftir
þekktan danskan hönnuð Marianne
Isager sem hannar litina. „Þetta er
gæðagarn sem gaman er að prjóna
úr,“ fullyrðir Halldóra.
Það vekur athygli að útsaums-
vörurnar eru nokkuð annarrar gerð-
ar en þær sem áður hafa sést hér á
landi. Upprunalandið er Ástralía og
blöð og bækur með hugmyndum og
mynstrum eru líka þaðan.
„Við kappkostum að vera með
vandaðan efnivið. Það gerir eftir-
leikinn svo miklu auðveldari því öll
sköpun úr þeim efniviði verður svo
skemmtileg,” segir Halldóra.
„Konur í Ástralíu hafa setið árum
saman á söfnum við að rannsaka
hvernig handavinna var gerð fyrir
langa, langa löngu og margt af því
sem hér sést í útsaumsmynstrum er
árangur þeirrar vinnu. Eins og sjá
má er þetta allt upphleyptur saum-
ur,“ segir hún og vekur athygli á
rósum, vínberjaklösum og jarðar-
berjum sem allt er eins og nýsprott-
ið í náttúrunni. Sumar rósirnar eru
jafnvel aðeins festar með fínlegum
gullvír við efnið. En kann nokkur
með þetta að fara hér á landi?
„Við kennum aðferðirnar ef með
þarf,“ segir Erla Hrönn. „Hér verða
sett upp námskeið í útsaum, prjóni
og þrykki enda góð vinnuaðstaða í
búðinni. Síðan verður hægt að
kaupa sér tímakort sem við klipp-
um á fyrir hvern byrjaðan klukku-
tíma og þá er hægt að koma hingað,
sitja hér og sauma.“
Halldóra hlær þegar haft er orð
á að eflaust muni skapast notaleg
stemning í Kvenlegum listum þegar
þar verður kominn hálfgerður
saumaklúbbur og búið verður að
renna á könnuna. „Já, þannig vilj-
um við hafa það,“ segir Halldóra.
„Þetta á að verða lifandi búð þar
sem alltaf er eitthvað að gerast.“
Lifandi búð með sauma-
klúbbsstemningu
• Skúringafatan úr sögunni
• Alltaf tilbúið til notkunar
• Gólfin þorna á augabragði
• Fljótlegt og þægilegt
Dagar gömlu skúringarfötunar eru taldir
Magnaða moppuskaftið
Sölustaðir: Húsasmiðjan
Byko - Pottar og prik Akureyri
Áfangar Keflavík - Brimnes Vestmannaeyjum
Fjarðarkaup - Litabúðin Ólafsvík - Parket og gólf - Rými
SR bygginagarörur Siglufirði - Rafsjá Sauðárkróki - Skipavík
Stykkishólmi - Nesbakki Neskaupstað. Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf.