Fréttablaðið - 30.11.2006, Page 55
Hönnun Lene Bjerre er glæsileg og rómantísk eins og
sést vel á jólaskrautinu hennar.
Lene Bjerre er kona á besta aldri sem á áttunda áratugn-
um hóf að hanna lampaskerma úr veggfóðursafgöngum
og er nú einn þekktasti og vinsælasti hönnuður Danmerk-
ur. Hönnun hennar er mjög rómantísk og það sést vel á
jólaskrautinu hennar sem er einstaklega glæsilegt.
Skrautið er bæði kúlulaga og í ýmsum öðrum formum og
gert úr gleri með gylltu munstri eða litað og blásið.
Undanfarin ár hafa verið framleiddar nýjar gerðir af jóla-
kúlum en það fer allt eftir því hvað Lene sjálfri hugnast að
gera hvað verður á markaðnum. Vonandi verða kúlurnar
fleiri. Gegnsæju glerkúlurnar stafa frá sér einföldum hrein-
leika og það getur verið afar róandi að stara inn í þær og
gleyma stund og stað um hríð.
Þetta skraut fæst eingöngu í Lene Bjerre, Bæjarlind.
Rómantískt og róandi
jólakort }
Símar: 660 4753 • 534 6250
www.tindur.is •
tindur@internet.is • tindur@tindur.is
Barnabiblía er góður kostur til að kynnast
boðskap Biblíunnar og fylgja sögunni þar
sem Guð talar við allar kynslóðir, þær sem
lifðu söguna og þær sem komu á eftir.
Hún kemur sér vel í biblíulestri fullorðinna,
fermingarbarna og allra barna og þeirra
sem vilja lesa fyrir þau hina dýrmætu
kristnu trú.
Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir.
Lesum fyrir börnin
Þýðandinn, Þorbjörg Daníelsdóttir,
les úr Barnabiblíunni fyrir barnabörn sín.
Að þekkja efni Biblíunnar er lykill að skiln-
ingi á kristnum trúar- og menningararfi.
Þessi bók er fengur fyrir þá foreldra sem
vilja leggja alúð við þennan þátt í uppeldi
og menningu barna sinna, að ekki sé talað
um þá foreldra sem auk þess vilja leggja
alúð við trúarlegt uppeldi barna sinna.
Sr. Sigurður Pálsson, fyrrv. náms-
stjóri í kristnum fræðum.