Fréttablaðið - 30.11.2006, Blaðsíða 79
Á þessum árstíma er til siðs að rit-
höfundar kveðji sér hljóðs á
ýmsum vettvangi og kynni verk
sín enda er nú árleg vertíð hjá
bókafólki. Vitað er af höfundum
sem þeysast nú um fjallvegi lands-
ins með skottin stútfull af jólabók-
um og bíða lesendur á landsbyggð-
inni án efa spenntir eftir
nýjungunum. Nýlega fréttist af
líflegum upplestri í Edinborgar-
húsinu á Ísafirði þar sem úrval
höfunda messaði bókmenntaboð-
skapnum yfir Vestfirðinga sem
gerðu að honum góðan róm en
upplestrarkvöld undir yfirskrift-
inni „Opin bók“ eru árlegur við-
burður þar í bænum.
Nú stendur svo til að kynna
Austfirðingum brot af jólaútgáf-
unni en hin árlega „rithöfunda-
lest“ brunar um landsfjórðunginn
á næstu dögum. Lest þessi er
skipulögð af Menningarmiðstöð-
inni Skaftfelli á Seyðisfirði, Kaup-
vangi á Vopnafirði og Gunnars-
stofnun á Skriðuklaustri.
Þátttakendur að þessu sinni eru
Einar Kárason sem lesa mun úr
ferðasögunni Úti að aka, Eiríkur
Guðmundsson sem kynnir skáld-
sögu sína Undir himninum, Hall-
dór Guðmundsson kynnir ævisög-
una Skáldalíf, Ingunn Snædal sem
les úr verðlaunaljóðabókinni Guð-
lausir menn – hugleiðingar um
jökulvatn og ást og Þórunn Valdi-
marsdóttir sem kynnir ævisögu
sína um Matthías Jochumsson.
Höfundarnir hefja lesturinn á
Skriðuklaustri í kvöld kl. 20. Síðan
liggur leiðin til Vopnafjarðar á
morgun, föstudag, en endastöðin
verður í menningarmiðstöðinni
Skaftfelli á Seyðisfirði á laugar-
dagskvöld.
Lestin brunar
Tilkynnt var í gær, miðvikudag, að
samningar hafi tekist milli Rétt-
indastofu Eddu útgáfu hf. og UFA
Fernsehproduktion GmbH í Berl-
ín um sölu á réttinum til gerðar
sjónvarpsmyndar og sjónvarps-
þátta byggðra á sögunni Morðið í
hæstarétti eftir Stellu Blómkvist.
UFA Fernsehproduktion fær einn-
ig forkaupsrétt að öðrum útkomn-
um glæpasögum Stellu Blómkvist
með það að markmiði að þróa sjón-
varpsmyndir og sjónvarpsþáttar-
aðir upp úr bókunum. Undirbún-
ingur að framleiðslunni er þegar
hafinn og gert er ráð fyrir hluti
hennar fari fram hér á landi. Þetta
er í fyrsta sinn sem erlent kvik-
mynda- og sjónvarpsframleiðslu-
fyrirtæki tryggir sér rétt á íslensk-
um skáldsögum í þessu skyni, þó
fyritæki hafi sýnt skáldsagnaröð
Arnalds Indriðasonar um Erlend
og kó áhuga.
UFA Fernsehproduktion GmbH
er hluti af framleiðslufyrirtækinu
UFA Holding GmbH sem aftur er
hluti af fjölmiðlaveldinu Bertels-
mann. Það er eitt elsta og virtasta
kvikmyndaframleiðslufyrirtæki í
Evrópu og var í fararbroddi á sínu
sviði þegar á fyrstu áratugum
kvikmyndalistarinnar, einkum á
þriðja áratugnum framleiddi
myndir á borð við Bláa engilinn
eftir Josef von Sternberg og Metr-
opolis eftir Fritz Lang.
UFA Fernsehproduktion sér-
hæfir sig í framleiðslu leikinna
sjónvarpsmynda og er með helstu
framleiðsluaðilum í þeim geira í
Evrópu auk þess að framleiða
leiknar sjónvarpsþáttaraðir og
kvikmyndir. Þasð er verulegur
hvalreki fyrir íslenskan kvik-
myndaiðnað ef hugmyndir þeirra
UFA -manna verða að veruleika og
skemmtilegt fyrir kerlinguna
Stellu, hver sem hún er að ná þess-
ari fótfestu í hörðum bransa sjón-
varpsgerða í Evrópu.
Verður erfitt fyrir höfundinn
að leynast mikið lengur en dul-
nefni hennar er best varðveitta
leyndarmál í íslenskri útgáfu fyrr
og síðar, fyrir utan höfund Njálu.
Kæmi til framleiðslu þáttaraðar
sem nýtti íslenskar aðstæður en
með þýskum leikurum væri það
happ íslenskum þjónustufyrir-
tækjum, styrkti enn ímynd lands
og þjóðar á þýskumælandi mark-
aði og hefði víðtæk áhrif.
Útgáfurétturinn á öllum bókum
Stellu Blómkvist hefur verið seld-
ur til Þýskalands, til þýska útgáf-
urisans Bertelsmann. Nú þegar
eru allar fyrstu bækur Stellu
komnar út á þýsku: Morðið í
stjórnarráðinu (1997), Morðið í
sjónvarpinu (2000), Morðið í
hæstarétti (2001) og Morðið í
alþingishúsinu (2002). Væntanleg-
ar eru Morðið í Drekkingarhyl
(2005) og nýjasta bókin Morðið í
Rockville (2006) sem var að koma
út og þýska forlagið keypti fyrir-
fram.
Stella Blómkvist í sjónvarp