Fréttablaðið - 30.11.2006, Síða 86
Mataráhugi Íslendinga virðist ekki fara dvínandi, ef
marka má vefsíðuna matseld.is. Hún hefur verið í loft-
inu í um þrjá mánuði, og er þegar komin með yfir 800
notendur og 500 uppskriftir. „Síðan er eiginlega ekki
farin af stað. Við höfum ekkert kynnt hana, og það er
enn verið að vinna í forrituninni,“ sagði Jens Kristjáns-
son, matgæðingurinn á bak við matseld.is. Að sögn
hans vantaði matreiðsluvef við hans hæfi. „Það er til
haugur af matarvefjum, en þeir virðast allir vera meira
og minna reknir af hagsmunaaðilum og gera ekki út á
þennan almenna notanda. Á matseld.is er enginn sem
stjórnar. Ég lagfæri stafsetningarvillur og svona, en að
öðru leyti eru þetta bara notendur að koma sínu á fram-
færi,“ sagði Jens. „Fólk getur gert það sem því hentar:
birt uppskrift, tekið þátt í umræðum eða skrifað grein
um eitthvað. Þetta er í raun bara stór matreiðslubók og
þankagangs-skráningarmaskína,“ sagði hann kátur.
Uppskriftir á vefnum koma úr öllum áttum. Þar má
meðal annars finna indverskan mat, rússneska fiski-
súpu, afrískan pottrétt, brauðrétti, pottrétti og hvað
sem hugurinn, eða maginn, girnist og því engin ástæða
til að festast í sama farinu í matseldinni.
Matreiðslubók á netinu
… að örbylgjuofninn gagnast í margt annað
en að poppa. Skelltu sítrónunni inn í 15 sek-
úndur og þú uppskerð mun meiri safa þegar
þú kreistir. Veittu hvítlauki sömu meðferð
og ysta lagið rennur af honum.
Suður-Afríka hefur vakið mikla athygli fyrir framsækna víngerð
síðustu tvo áratugina og hefur framrás landsins verið mikil eftir að
aðskilnaðarstefnan leið undir lok og landið opnaðist fyrir erlendum
viðskiptum. Höfuðþrúga suður-afrískrar víngerðar er pinotage. Vín úr
henni eru jafnan djúprauð, kröftug og heit. Sumum finnst þau minna á
brennt gúmmí, á jákvæðan hátt þó! Pinotage er blendingsþrúga sem
var búin til fyrir tæpri öld, bræðingur pinot noir og cinsaut. Prófessor
Abraham Izak Perold gerði tilraunir til að bæta gæði pinot noir
þrúgunnar á víngarði við Góðrarvonarhöfða árið 1925. Ekki er ljóst
hverju prófessorinn vildi ná fram, hann skildi engar skýrslur eftir sig.
Flestir telja að hann hafi verið að reyna að bæta pinot noir þrúguna
með tilviljunarkenndum hætti því cinsaut er mjög ólík þrúga en hefur
þá kosti að vera auðræktanleg og sjúkdómalaus. Niðurstaðan var
óvænt, móðurþrúgurnar eru báðar heldur litlausar en afkvæmið
pinotage djúprautt.
Glen Carlou víngerðin, sem David Finlayson stjórnar og viðtal er birt
við hér á síðunni notar, öfugt við flesta vínframleiðendur Suður-Afríku,
franskar vínþrúgur en ekki heimaþrúguna pinotage. Ástæðan er sú að
stofnandinn, Walter Finlayson, lærði sitt fag í Frakklandi og hreifst af
öllu sem gert er þar í víngerð.
Flestar algengustu vínþrúgur heims eru ræktaðar í Suður-Afríku.
Lengi var chenin blanc sem heimamenn kalla steen
mikilvægasta hvíta þrúgan. Gaf yfirleitt af sér ódýr vín
en hefur verið að ná sér á strik og gerðar hafa verið
ýmsar athyglisverðar tilraunir sem hafa gefið af sér
sérstök vín. Stór og mikil chardonnay-vín hafa vakið
athygli, gjarnan nokkuð eikuð. Vín úr sauvignon blanc
hafa vakið einna mesta athygli. Þykja einhverjir glæsi-
legustu fulltrúar þeirrar þrúgu utan Evrópu. Fínustu vín
eru gerð úr cabernet sauvignon, gjarnað blönduð með
öðrum þrúgum, t.d. upp á klassíska franska mátann
eins og David Finlayson gerir. Mestu möguleikarnir í
rauðu vínunum virðast búa í syrah-þrúgunni. Svalari
héruð geta framleitt syrah nær frönskum stíl, en
heitari héruð liggja nær áströlsku línunni.
Ekki bara pinotage
Borðaði impala-antílópu í Afríku
David Finlayson, stjórn-
andi Glen Carlou-víngerð-
arinnar, var á leiðinni á
Decanter-vínsýninguna í
London þegar hann hafði
viðkomu hér á Íslandi fyrir
skemmstu. Einar Logi Vign-
isson ræddi við hann.
Finlayson virkar við fyrstu kynni
fremur hlédrægur og fíngerður en
fljótlega kemur í ljós að undir niðri
leynist dæmigerður kraftmikill
Suður-Afríkumaður sem hefur
sterkar skoðanir á víngerð, efna-
hagsmálum og íþróttum en þetta
þrennt var fyrirferðarmikið í sam-
tali okkar.
Hann er fyrrum brimbretta-
kappi en segist í vonlausri þjálfun
sem er þó ekki vonlausari en svo að
hann stundar fjallahjólreiðar af
krafti en sú íþrótt hefur hingað til
ekki þótt fyrir nema heldur vel
þjálfað fólk. „Meginástæðan fyrir
að ég lagði brettinu er sú að ég á
tvö lítil börn og þetta er heldur
hættulegt sport. Svo spilar inn í að
maður verður að vera alveg í topp-
æfingu til að ráða við stærstu öld-
urnar og það var farið að fara í
taugarnar á mér að ég réði ekki við
það sama og í gamla daga. Þannig
að ég læt hjólreiðar og veiði duga
og er alveg hættur að keppa. Ég
ætla að koma aftur til Íslands næsta
sumar og fara í lax. Faðir minn var
grænn af öfund þegar ég sagði
honum að ég væri á leið hingað og
spurði mig hvort ég gerði mér
minnstu grein fyrir því hversu
stórkostlegar árnar á Íslandi væru.
Árnar í Suður-Afríku eru flestar
minni en hér á landi og erfitt að
komast að þeim. Þær eru ekki eins
miklar fiskiár og þið búið yfir en á
móti kemur að náttúran er stór-
brotin og mikið ævintýri að koma
sér á bestu veiðistaðina. Oft förum
við á kajak eða hjólabátum og synd-
um svo síðasta spölinn. Stundum
mæta veiðimönnum hlébarðar og
aðrar skepnur sem þú vilt helst
ekki hitta þegar hættulegasta vopn-
ið sem þú ert með er flugustöng!“
Glen Carlou víngerðin var stofnuð
árið 1985 af Walter Finlayson
föður Davids. Hann hafði starfað
sem víngerðarmaður hjá bestu
vínframleiðendum Suður-Afríku
en lært víngerð í Frakklandi og
frönsk áhrif eru áberandi í vín-
gerðinni. Nafn fyrirtækisins er
fengið úr nöfnum dætra Walters,
en þær heita Lena, Carol og Lou-
ise. Syninum David var hins vegar
fljótlega falið að stjórna víngerð-
inni en hann hafði menntað sig í
víngerð í háskóla í Suður-Afríku
en jafnframt dvalið langdvölum í
Bordeaux og í Ástralíu hjá Peter
Lehmann.
„Það er ótengt núverandi eign-
arhaldi að ég fór til Lehmanns,“
segir David en Hess Group á bæði
Glen Carlou og Peter Lehmann í
dag. „Faðir minn hitti Peter fyrst
á áttunda áratugnum og mikill vin-
skapur tókst með fjölskyldum
okkar. Peter er alveg rosaleg týpa,
dæmigerður Ástrali sem virkar
hrjúfur en er með risastórt hjarta.
Hann lét mig vinna alveg svaka-
lega mikið, 16 tíma á dag í fjóra
mánuði en ég lærði gríðarlega
mikið hjá honum. Ástralski stíll-
inn í víngerð er ansi tæknilegur á
meðan franski stíllinn er tilfinn-
ingalegur þar sem sagan og hefð-
irnar ráða för. Það var því
skemmtilegt fyrir mig að kynnast
þessum tveimur ólíku hefðum og
ég hef reynt að taka það besta úr
hvorum stílnum í víngerð okkar.“
„Efnahagslífið gengur vel og nýja
svarta millistéttin sem ekki var til
áður er drifkraftur samfélagsins.
Hún er mikilvæg fyrir okkur vín-
framleiðendur því áður höfðum
við fjórar milljónir hvítra sem
drukku vín en nú hafa 44 milljónir
svartra bæst við og mikið af fólk-
inu er vel menntað. Við glímum
auðvitað við ýmsa erfiðleika, mis-
skiptingin er enn þá gríðarleg og
fátæktin yfirþyrmandi sumstaðar.
En framtíðin er björt og knatt-
spyrnuáhugamenn þurfa ekki að
hafa áhyggjur af því að HM 2010
klikki. Allt er á fullu í uppbygg-
ingu og Þjóðverjarnir sem skipu-
lögðu keppnina sl. sumar eru
mættir niður eftir til að klára
þetta með okkur. Það eina sem ég
hef áhyggjur af er hvernig okkur
mun ganga að taka á móti öllum
þeim ferðamönnum sem koma á
keppnina. Flugfélögin þurfa að
endurskipuleggja sig og auka þarf
gistirými.“
Björt framtíð í Suður-Afríku