Fréttablaðið - 30.11.2006, Page 91
Rapparinn Snoop Dogg var hand-
tekinn fyrir að hafa í fórum sínum
byssu og eiturlyf er hann yfirgaf
upptökuver NBC-sjónvarpsstöðv-
arinnar þar sem hann hafði komið
fram í kvöldþætti Jay Leno.
Snoop, sem heitir réttu nafni
Calvin Broadus, og tveir félagar
hans voru handteknir eftir að leit
hafði verið gerð á heimili hans og
bíl.
Snoop, sem hélt tónleika í Egils-
höll í fyrra, þarf að mæta fyrir
dómstólum hinn 12. desember
vegna málsins. Hann þarf að gera
slíkt hið sama 4. desember eftir að
hann var handtekinn 27. septemb-
er fyrir að hafa í fórum sínum
hættulega kylfu á John Wayne-
flugvellinum í Bandaríkjunum.
Handtekinn
með eiturlyf
Safn tileinkað sænsku hljómsveit-
inni ABBA verður opnað í mið-
borg Stokkhólms árið 2008. Þar
verða til sýnis föt og hljóðfæri
sem sveitin notaði á farsælum
ferli sínum, auk verðlauna, hand-
skrifaðra laga og texta. Einnig
verður þar hljóðver þar sem gest-
ir geta tekið upp sín eigin ABBA-
lög.
Aðstandendur safnsins fengu
hugmyndina eftir að hafa kynnt
sér Bítlasafnið í London. Það tók
þá aftur á móti næstum tvö ár að
sannfæra fyrrum meðlimi sveit-
arinnar, þau Benny Anderson,
Björn Ulvaeus, Agnetha Faltskog
og Anni-Frid Lyngstad, um að
safnið væri góð hugmynd. „Það er
gaman að einhver vilji notast við
tónlistarferil okkar á þennan
hátt,“ sagði ABBA í yfirlýsingu
sinni. ABBA hefur selt yfir 370
milljónir platna. Jafnframt hafa
yfir 27 milljónir séð söngleikinn
Mamma Mia! sem þeir Björn og
Benny sömdu saman.
ABBA-safn í
Svíþjóð
Ásgeir Davíðsson á Gold-
finger hefur gefið út
dagatal með myndum af
súludansmeyjum staðarins
sjötta árið í röð. Hann segir
það ekki markmiðið að
stúlkurnar sýni allt á mynd-
unum, það geri þær bara á
Goldfinger.
„Ég hef nú sagt það áður að þetta er
jólagjöf mín til íslenskra sjómanna
enda eru þeir uppáhaldsmennirnir
mínir og ég vil helst koma þessu í
hvert einasta skip,“ segir Ásgeir
Þór Davíðsson, eigandi súlustaðar-
ins Goldfinger, um dagatal fyrir
árið 2007 sem hann gaf út nýlega.
Dagatalið er það sjötta sem
Geiri sendir frá sér og að venju
skartar það myndum af stúlkum
sem stíga súludans á Goldfinger.
Geiri segir dansmeyjarnar sjá
sér hag í því að sitja fyrir í dagatal-
inu, ekki síst þar sem þær fá mynd-
irnar af sér brenndar á geisladiska
og noti þær þegar þær sækja um
vinnu á öðrum álíka klúbbum úti í
hinum stóra heimi.
„Stelpan sem er á forsíðunni
hefur dansað hjá mér af og til síð-
ustu sex ár og það ætti að segja sína
sögu um hvað stúlkunum finnst
gott að vinna hjá mér,“ segir Geiri
og bætir því við að dagatalið
fái alltaf jafn góðar viðtökur.
„Ég prenta það alltaf í
5.000 eintökum í fyrsta versi
og það hefur komið fyrir að
þegar líður á árið þurfi að
prenta meira þannig að yfir-
leitt fer þetta í 7.000 ein-
tökum. Einu lætin sem ég
man eftir í kringum þetta
voru þegar það var fárast
yfir því að vélskólanemar
báru það út fyrir mig. Ég
skil nú ekki alveg hver
munurinn er á því að fá
fólk sem komið er
yfir tvítugt til að
bera almanak-
ið út eða
biðja það
um að leiða
sig niður
Laugaveginn í Gay Pride-göngunni.
Ég átta mig ekki alveg á hvar sið-
ferðiskenndin liggur í þessu en mér
finnst þetta allt eiga rétt á sér.“
Stúlkurnar eru fáklæddar í
dagatalinu og eitthvað er um að
myndirnar þyki full siðprúðar
miðað við þá starfsemi sem alman-
akinu er ætlað að vekja athygli á en
Geiri á skýringar á því. „Ég fer
ekki að sýna allt á almanakinu enda
er ætlast til þess að menn komi svo
hingað upp eftir til að fá að sjá allt.“
Geiri gefur sjómönnum jólagjöf