Fréttablaðið - 30.11.2006, Side 98

Fréttablaðið - 30.11.2006, Side 98
DHL-deild karla Iceland Express deild kv. Enska úrvalsdeildin UEFA-bikarkeppnin Forkeppni HM kvenna Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar Gareth Southgate, knattspyrnustjóri Middlesbrough, hefur staðfest að hann muni leyfa Spánverjanum Gaizka Mendieta að yfirgefa herbúðir félagsins í janúar. Mendieta hefur verið hjá félaginu í þrjú ár og oftar en ekki verið meiddur. Fyrir vikið fær hann mjög lítið að spila. „Ég er viss um að maður á hans aldri vill vera hjá liði þar sem hann fær að spila reglulega,“ sagði Southgate um hinn 32 ára gamla Spánverja. Athletic Bilbao hefur þegar verið orðað við miðjumanninn knáa. Fær að fara frá Middlesbrough Spænski framherjinn Albert Luque segist gjarna vilja snúa aftur til heimalandsins en hann hefur engan veginn komist í takt við enska boltann eftir að hann gekk í raðir Newcastle frá Deportivo la Coruna fyrir 10 millj- ónir punda. Barcelona, Real Madrid, Real Betis, Real Mallorca og Bordeaux eru öll talin hafa áhuga á Luque og nú hefur Villarreal bæst í slaginn. „Ég veit að Villarreal hefur spurst fyrir um mig sem og fleiri félög frá Spáni en það er ekki komið formlegt tilboð frá neinu þessara félaga,“ sagði Luque. „Lífið hefur ekki verið mér hlið- hollt á Englandi. Ég fæ lítið að spila og fyrir vikið er ég ekki mjög hamingjusamur. Ef tækifærið gefst vil ég gjarna snúa aftur til Spánar.“ Vill fara aftur til Spánar Donovan McNabb, leikstjórn- andi Philadelphia Eagles, verður frá æfingum og keppni næstu átta til tólf mánuðina eftir að hafa gengist undir aðgerð á hné en hann sleit flest sem hægt var að slíta í hnénu í leik á dögunum. Meiðslin eru gríðarlegt áfall fyrir Eagles enda hafði McNabb farið á kostum með liðinu í vetur en það eygir litla von um árang- ur án hans. Hugsanlega frá í heilt ár Fram saxaði verulega á forskot HK og Vals í DHL-deild karla í gærkvöldi með öruggum fimm marka sigri á Fylki. Gest- irnir úr Árbænum fengu að líta tvö rauð spjöld í leiknum og eru komnir í alvarlega fallbaráttu. Framarar byrjuðu mun betur í gær og komust strax í 7-2 forystu. Þrátt fyrir það átti Hlynur Mort- hens, markvörður Fylkis, sinn besta leikkafla í upphafi leiksins þar sem hann varði fimm skot. En Fylkismenn náðu að nýta sér ein- beitingarleysi Framarar eftir þessa öflugu byrjun og minnkuðu muninn í 9-7. En það reyndist aðeins um stundarsakir þar sem Framarar gáfu vel í á nýjan leik og komust í sex marka forystu þegar flautað var til hálfleiks, 17- 11. Það hafði sitt að segja að Fylk- ismenn misnotuðu þrjú vítaköst í fyrri hálfleiknum sem og að Arn- ari Þór Sæþórssyni var vikið af velli með rauða spjaldið eftir um stundarfjórðungsleik. Dómurinn kom í kjölfar brots Arnars á Dan- íel Berg Viktorssyni en Fylkis- menn mótmæltu dómnum mjög. Eins og gefur að skilja voru Íslandsmeistararnir öflugir í sóknarleik sínum og dreifðust mörkin vel á milli manna. Harald- ur Þorvarðarson nýtti sín færi vel eins og reyndar fleiri leikmenn Fram. Sigur Framara var aldrei í hættu í síðari hálfleik og greini- legt að Fylkismenn létu mótlætið fara í taugarnar á sér. Haukur Sigurvinsson fékk að líta rauða spjaldið fyrir olnbogaskot og Fylkisliðið orðið heldur þunnskip- að. Niðurstaðan var fimm marka sigur, 34-29, og því fjórði sigur Fram í DHL-deild karla í röð orðin staðreynd. Íslandsmeistarnir eru farnir að láta vita af sér svo um munar. Stefán Stefánsson var besti maður Fram en hann skoraði sex mörk í leiknum. Þorri B. Gunnars- son stóð einnig fyrir sínu sem og Björgvin Gustavsson í markinu. Fjórði deildarsigur Framara í röð Arsenal tapaði í gær í fyrsta sinn fyrir Fulham síðan Englendingar urðu heimsmeistar- ar í knattspyrnu árið 1966. Það var á nýársdegi það ár sem það gerð- ist og því biðin langa á enda komin fyrir stuðningsmenn Fulham. Ekki byrjaði kvöldið vel hjá Arsenal en liðið fékk á sig tvær hornspyrnur strax í upphafi leiks. Úr þeirri síðari skoraði Biran McBride eftir að Jens Lehman, markvörður Arsenal, misreiknaði fyrirgjöfina. Markið verður óneit- anlega að skrifast á þann þýska. Útlitið var enn dekkra fyrir Ars- enal-liðið er Tomas Radzinski skoraði annað mark Fulham á 19. mínútu eftir fyrirgjöf Luis Boa Morte. Markið var þó ekki sárs- aukalaust því Radzinski var á svo mikilli siglingu að hann klessti á auglýsingaskilti og þurfti aðhlynn- ingu í kjölfarið. Robin van Persie færði stuðn- ingsmönnum Arsenal von með lag- legu vinstrifótarskoti utan teigs. Staðan því orðin 2-1 eftir 35 mín- útna leik. Þrátt fyrir þetta héldu leik- menn Bolton áfram að sækja en höfðu ekki erindi sem erfiði í fyrri hálfleik. Arsenal byrjaði betur í síðari hálfleik og var óheppið er mark Thierry Henry var þó réttilega dæmt af vegna rangstöðu. En hinum megin á vellinum lenti Boa Morte í því sama eftir skrautlega skógarferð Lehman. Phillipe Senderos fékk svo að líta rauða spjaldið eftir aðra áminningu sína sem hann fékk fyrir að brjóta á Boa Morte rétt utan teigs. En það breytti litlu og stóðu leikar óbreyttir til leiksloka. Heið- ar Helguson lék síðasta stundar- fjórðunginn fyrir Fulham og átti eitt ágætt færi. Ryan Giggs var ekki í byrjun- arliði Manchester United í gær og herma sögusagnir að það sé vegna ósættis hans og Sir Alex Fergu- son, knattspyrnustjóra liðsins. Opinbera skýringin á fjarveru hans voru að hann væri meiddur á kálfa. Giggs átti afmæli í gær og fylgdist með leiknum úr stúkunni. Það var einnig sérstök stemn- ing að sjá að Neville-bræðurnir væru fyrirliðar sinna liða. Gary vitanlega hjá United og Phil hjá Everton en þetta er í fyrsta skipti sem bræður eru fyrirliðar liða sem mætast í ensku úrvalsdeild- inni. Cristiano Ronaldo kom United yfir í leiknum í lok fyrri hálfleiks er hann fylgdi eftir skoti Michael Carrick sem Nuno Valente varði en hélt ekki. Patrice Evra og John O‘Shea skoruðu svo mörk United í síðari hálfleik. Chelsea vann 1-0 sigur á Bolton á útivelli í gær og fylgir því enn fast á hæla Manchester United. Andryi Shevchenko hefur mikið verið gagnrýndur fyrir mar- kaleysi sitt síðan hann kom til Chelsea en hann var í byrjunarlið- inu og átti frábært skot að marki sem Jussi Jaaskaleinen varði frá- bærlega. En upp úr horninu skor- aði hinn nýliðinn hjá Chelsea, Michael Ballack, með fallegu skallamarki. Markaþurrð Liverpool hélt áfram í gær og í þetta sinn gegn Portsmouth á heimavelli. Þá vann Manchester City góðan 3-1 útivall- arsigur á Aston Villa sem fyrir leikinn í gær hafði aðeins tapað einum leik á tímabilinu. Fulham vann í gær sigur á Arsenal í fyrsta sinn síðan Englendingar urðu heimsmeistarar í knattspyrnu og boðar það lítið gott fyrir Arsene Wenger og hans menn. Manchester United og Chelsea unnu sína leiki.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.