Fréttablaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 88
!óíbí.rk054
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
CASINO ROYALE kl. 6 og 9 B.I. 14 ÁRA
HNOTUBRJÓTSPRINSINN ÍSL. TAL kl. 3 og 6
HÁTÍÐ Í BÆ kl. 3, 5.50, 8, 10.10
THE NATIVITY STORY kl. 8 B.I. 7 ÁRA
MÝRIN W.ENGLISH SUBTITLES kl. 3, 6 og 10 B.I. 12 ÁRA
BORAT kl. 8 og 10
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 3
THE HOLIDAY kl. 5.10, 8 og 10.45
CASINO ROYALE kl. 5, 8 og 10.50 B.I. 14 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 2, 5, 8 og 10.50
HNOTUBRJÓTSPRINSINN ÍSL. TAL kl. 1.30 og 3.20
HÁTÍÐ Í BÆ kl. 1.30, 3.40, 5.50, 8 og 10.10
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 1.50 og 3.40
BORAT kl. 3 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 5.40 og 8 B.I. 12 ÁRA
THE HOLIDAY kl. 8 og 10.30
CASINO ROYALE kl. 5.20 B.I. 14 ÁRA
HNOTUBRJÓTSPRINSINN ÍSL. TAL kl. 2 og 3.40
HÁTÍÐ Í BÆ kl. 2, 4 og 6
SAW III kl. 8 og 10.15
!óíbí.rk054
Gildir á allar sýningar í
Borgarbíó merktar með rauðu
80þúsund gestir
MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
I
5 edduverðlaun
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA ER HAFIN Á MIDI.IS - ATH: EINNIG ER HÆGT AÐ VERSLA MIÐA Í FÖRSÖLU Í KVIKMYNDAHÚSUM
Jólamyndin 2006
40þúsund gestir
DAVID EDWARDS, DAILY MIRROR
AUBRAY DAY, TOTAL FILM
“SIGUR”
“MÖGNUД
“FRÁBÆR”
DEBORAH ROSS, THE SPECTATOR
“STÓRFENGLEG”
CHARLES GANT, HEAT
JONATHAN ROSS, FILM 2006
ZOO
MARK ADAMS SUNDAY MIRROR
MATTHEW BOND, THE MAIL ON SUNDAY
Frábær jólamynd fyrir alla fjölskylduna!
W.ENGLISH SUBTITLES
IN REGNBOGINN
Samkvæmt jólahefð kvikmynda-
húsanna verður boðið upp á stór-
myndir í bíó þegar líða fer að
jólum. Þetta árið munu væntan-
lega ævintýramyndin Eragon og
stríðsmyndin Flags of Our Fath-
ers bera hæst enda almennur
áhugi fyrir þeim báðum.
Eragon er ekta ævintýramynd
um sígilda baráttu góðs og ills auk
þess sem drekar koma við sögu en
þeir virðast með öllu ómissandi í
barna- og unglingaævintæyrum
þessi árin.
Eragon byggir á fyrstu bókinni
í þríleik eftir Christopher Paolini.
Önnur bókin í flokknum kom út á
íslensku nýlega og trónir nú í efsta
sæti sölulista barna- og unglinga-
bóka og fyrsta prentun, 7.000 ein-
tök, er við það að seljast upp hjá
útgefanda. Það er því lítil hætta á
öðru en ungir bókaormar muni
skunda í bíó þegar myndin verður
frumsýnd á föstudaginn.
Flags of Our Fathers var að
hluta til tekin upp á Íslandi og það
fór tæpast fram hjá nokkrum
þegar Eastwood mætti með
stjörnufans til landsins. Þetta mun
sjálfsagt kynda enn frekar undir
áhuga á myndinni um amerísku
kempurnar sem reistu þjóðfána
sinn eftir að hafa hrakið Japana-
frá Iwo Jima í seinni heimsstyrj-
öldinni.
Myndin verður frumsýnd á
öðrum degi jóla og verður því
sannkölluð jólastórmynd á
Íslandi.
Spennufíklar þurfa ekki að fara
í jólaköttinn þar sem nýjasta mynd
Tony Scott, Deja Vu, er einnig
væntanleg. Þar leikur Denzel
Washington mann sem rannsakar
sprengjutilræði um borð í ferju og
er fyrr en varir kominn í þá stöðu
að þurfa að bjarga hundruðum
mannslífa með hjálp vísbendinga
sem virðast koma úr fortíðinni.
Smáfólkið verður heldur ekki
skilið út undan þar sem Artúr og
Minímóarnir byrjar á öðrum degi
jóla. Þetta er teiknimynd frá
franska leikstjóranum Luc Besson
en hann byggir myndina á barna-
bókum sem hann hefur sjálfur
skrifað.
Poppstjörnurnar Madonna og
David Bowie eru á meðal þeirra
sem ljá persónum raddir sínar
ásamt Miu Farrow.
Íslenska spennumyndin Köld
slóð verður svo frumsýnd í lok
árs, þann 29. desember, en hún
fjallar rannsókn blaðamanns, sem
Þröstur Leó Gunnarsson leikur, á
morði föður hans.
Jólahlaðborð kvikmyndahúsanna
Við fyrstu sýn virðist sem svo að
frumburður Helga Rafns sé metn-
aðarfyllsta plata sem Ædolstjarna
hefur gefið út hérlendis. Þegar
betur er að gáð virðist sú stað-
reynd vera á rökum reist. Öll kurl
eru þó langt frá því komin til graf-
ar þó að metnaðurinn leyni sér
ekki. Strax við fyrstu hlustun upp-
götvar maður nefnilega að Helgi
Rafn er fyrsta Ædolstjarnan sem
syngur ekki vel og enskuhreimur-
inn hans er óþægilega slæmur.
Hreimurinn er þó langt frá því
það eina sem er kjánalegt við plöt-
una. Helgi til dæmis tileinkar eitt
laganna Seltjarnesinu og fólki sem
þar býr (jafnframt eina lagið sem
er tileinkað einhverju/einhverj-
um). Stílisti Helga er líka sérstak-
lega titlaður á plötunni (skil samt
ekki alveg hvað stílistinn var að
pæla þegar hann lét Helga setja
maskara á hýjunginn sinn). Á
flytjendalistanum aftast í bækl-
ingnum sem fylgir með plötunni
fær Helgi síðan pláss neðarlega á
lista, á eftir stjörnum á borð við
Sigtrygg Baldursson, Kippa Kan-
ínus (titlaður fyrir „elektróník og
skrítnum hljóðum“!), Karl Olgeirs-
son og Pétur Ben, og þar stendur
að eina sem Helgi hafi gert á plöt-
unni hafi verið að spila á píanó í
laginu The Song (hugsanlega
kjánalegasta lagaheiti frá upphafi
tíma). Hver syngur þá eiginlega
öll lögin?
Aftur á móti er marga ágætis
hluti hægt að finna á plötunni og
metnaðurinn skín í gegn. Lög Pét-
urs Ben og Karls Olgeirssonar eru
afar frambærileg, útsetningarnar
koma vel út og mörg laganna eru
grípandi flott, For the Stars (sem
heitir reyndar Heading for the
Stars inni í bæklingnum), Mr. Cod-
eine og Innuendos eru ágætis
dæmi um fín lög á plötunni. En
eins og áður segir fær Helgi Rafn
falleinkunn fyrir flutninginn og
þar stendur hnífurinn í kúnni.
Einum of kjánaleg
Samkvæmt breska blaðinu Daily
Mail er jólabrúðkaup í vændum
hjá stjörnuparinu Brad Pitt og
Angelinu Jolie. Parið mun vera
búið að leigja hús rétt fyrir utan
Jóhannesborg í Suður-Afríku og
mun athöfnin vera hefðbundin
nema með afrískri tónlist.
Pitt og Jolie vilja víst hafa
athöfnina eins kyrrláta og hægt er
og eru búin að taka fyrir alla ljós-
myndara og fjölmiðlaumfjöllun
því þau vilja ekki að þetta verði
eins og brúðkaup Tom Cruise og
Katie Holmes fyrir stuttu á Ítalíu.
Gestalisti brúðkaupsins inni-
heldur nöfn leikarans George
Clooney og nýjustu Bond-stjörn-
unnar Daniel Graig. Oprah Win-
frey mun einnig mæta til Afríku
til að verða viðstödd en hún var að
stofna skóla ekki fjarri staðnum
þar sem brúðkaupið fer fram.
Brad Pitt og Angelina Jolie eiga
saman eina dóttur og deila síðan
forræði yfir tveimur ættleiddum
börnum.
Jólabrúðkaup í vændum?