Fréttablaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 16
www.tm-software.com
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
6
08
83
Microsoft Dynamics CRM gerir sölu- og markaðsfólki kleift
að beina sérsniðnum skilaboðum til núverandi og væntan-
legra viðskiptavina, stytta söluferlið og auka söluna.
• Styrktu tengslin við viðskiptavinina
• Framkvæmdu snjallara markaðsátak
• Haltu betur utan um verkefnin
• Breyttu ábendingum um sölu í tækifæri
• Breyttu upplýsingum í mikilvæg markaðsgögn
TM Software er alþjóðlegt hugbúnaðarfyrirtæki með skrifstofur í 11 löndum
og um 450 starfsmenn. Fyrirtækið þjónar yfir 1.800 viðskiptavinum í rúmlega
20 löndum í fjórum heimsálfum. TM Software hefur ítrekað verið heiðrað
sem eitt af framsæknustu fyrirtækjum Evrópu á „Europe´s 500” listanum.
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við söludeild
í síma 545 3200 eða á netfangið sala@maritech.is
Maritech
Styttu söluferlið
og auktu söluna
Vátryggingafélag Íslands greiddi viðskiptavinum sínum
alls um 6,5 milljarða króna í trygg-
ingabætur á árinu 2005 og ætla
má að bótaupphæðin verði að
minnsta kosti 7,4 milljarðar króna
á árinu sem er að líða. Ljóst er því
að margir urðu því miður fyrir
tjóni en fá sem betur fer tjón sín
bætt, að svo miklu leyti sem unnt
er að bæta skaða með fjármunum.
Starfsfólk VÍS fær ófáar tölvu-
póstsendingar og upphringingar
frá viðskiptavinum sem þakka
fyrir þjónustu félagsins þegar á
hana reynir. Þær raddir berast
hins vegar ekki jafn víða og eru
ekki eins háværar og raddir
þeirra sem af einhverjum ástæð-
um eru óánægðir með uppgjör
vegna tjóna.
Margir líta á tryggingar sem
kvöð fremur en nauðsynlega
vernd og öryggi gegn hvers konar
vá. Fólk greiðir iðgjald fyrir til-
tekna vátryggingu og kaupir sér
þannig vernd gagnvart tjóni sem
það kann hugsanlega að verða
fyrir en vonar auðvitað að aldrei
reyni á slíkt. Eðli vátrygginga er
að tryggingatakinn fái bættan
skaða sem hann verður fyrir,
hvorki meira né minna. Sumir
telja sig bera skarðan hlut frá
borði við tjónauppgjöf og spyrja
sem svo: „Fyrir hvað hef ég eigin-
lega borgað öll þessi ár ef ég fæ
svo ekkert út úr tryggingunum
þegar á þarf að halda?“ Þarna
gætir misskilnings varðandi eðli
trygginga. Menn líta alltof oft á
tryggingariðgjald sem einhvers
konar innistæðu í tryggingafélag-
inu sem þeir „eigi rétt á að fá til
baka“ í formi tjónsuppgjörs. Það
er auðvitað ekki svo heldur borg-
ar tryggingartaki tryggingafélag-
inu fyrir að
taka á sig
áhættu og
skuldbinda
sig til að
greiða
bætur ef
viðkom-
andi verður
fyrir tjóni
sem trygg-
ingin nær
yfir. Tjóns-
uppgjör eru mjög mismunandi,
allt frá kostnaði sem nemur
nokkrum þúsundum króna upp í
tugi milljóna króna. Fæstir gera
sér til dæmis grein fyrir því að
greiðslur vegna ökutækjanna
sjálfra eru aðeins brot af heildar-
upphæð bóta þegar bílar lenda í
árekstri og fólk slasast það mikið
að leiði til varanlegrar örorku.
Slysabætur geta skipt milljónum
króna, jafnvel tugum milljóna
króna í alvarlegustu tilvikunum.
Slysabætur er ekki staðlaðar
greiðslur heldur miðast þær við
flókna útreikninga þar sem tekið
er tillit til aldurs og tekna viðkom-
andi. Fyrir nokkrum árum, áður
en ég réðst til starfa hjá Vátrygg-
ingafélagi Íslands, heyrði ég um
harðan árekstur tveggja bíla á
Suðurlandsvegi. Þar slösuðust
fjórir ungir menn lífshættulega
og þrír þeirra hlutu varanlega
örorku. Ekki datt mér í hug að
áreksturinn kæmi verulega við
fjárhag tryggingafélagsins, sem
reyndar var VÍS. Annað kom á
daginn. Heildartjónabætur vegna
þessa eina umferðarslyss voru
áætlaðar um 60 milljónir króna!
Það gefur því auga leið að þurft
hefur mörg tryggingariðgjöld og
sterkan sjóð til þess að standa
undir þeim kostnaði.
„Tryggingafélagið vísaði í smáa
letrið og kom sér undan að borga,“
segja gjarnan þeir sem lýsa
óánægju sinni. Hvað VÍS varðar
er staðreyndin sú að í trygginga-
skilmálunum er alls ekkert „smátt
letur“ að finna. Skilmálar ein-
stakra trygginga á okkar vegum
eru vel skilgreindir og útskýrðir á
sérstökum blöðum og í bækling-
um sem viðskiptavinir fá afhenta
þegar þeir kaupa tryggingar. Sé
skilmálum síðan breytt er við-
skiptavinum undantekningarlaust
sent bréf þar að lútandi til kynn-
ingar og útskýringar. Við teljum
hreint ekki eftir okkur að upplýsa
viðskiptavini okkar enda sýnir
reynslan að fæstir kynna sér
tryggingaskilmála nægilega vel
og halda oft að vátryggingavernd-
in sé víðtækari en þar er kveðið á
um. Algengt er til dæmis að fólk
rugli saman skilmálum innbús-
tryggingar annars vegar og hús-
eigendastryggingar hins vegar og
telji að innbústrygging nái til tjóns
á teppi eða parketi. Staðreyndin er
hins vegar sú að engin innbús-
trygging bætir tjón á gólfefnum
heldur kemur þar til kasta húseig-
endatryggingar.
Tryggingastarfsemi er í eðli
sínu áhættusöm atvinnugrein og
aldrei að vita hvað morgundagur-
inn ber í skauti sér. Langan tíma
getur tekið að gera upp tjón af
ýmsu tagi, til dæmis geta liðið
nokkur ár frá slysi þar til endan-
lega er kveðið upp úr með örorku
þeirra sem slösuðust. Þá fyrst
kemst á hreint hve miklar bætur
falla á tryggingafélagið. Þess
vegna eru það sjálfsögð og aug-
ljós búhyggindi að áætla strax, og
leggja til hliðar, fjárupphæð fyrir
slíkum útgjöldum. Viðskiptavinir
verða að geta treyst því að
vátryggingafélag þeirra standi
undir þeim skuldbindingum sem á
það falla ef eitthvað bjátar á.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Vátryggingafélags Íslands.
Smátt letur og tryggingabætur
Frjálslyndi flokkur-inn hefur lagt fram
þingsályktunartillögu
um að fela stjórnvöld-
um að hefja undirbún-
ing þess að afnumin
verði verðtrygging
húsnæðislána.
Helstu rök fyrir
afnámi verðtryggingar lána eru
þau að hún kemur í veg fyrir að
vaxtahækkanir sem Seðlabank-
inn beitir til að slá á þenslu virki
sem skyldi.
Fylgjendur verðtryggingar
hafa talið að með verðtryggingu
lána á Íslandi sköpuðust forsend-
ur fyrir lægri vöxtum og stöðug-
leika en sú hefur alls ekki orðið
raunin. Íslendingar búa við hæstu
vexti í Evrópu og frá því að gríð-
arleg hækkunarhrina stýrivaxta
hófst í maí 2004 hafa stýrivextir
hækkað um 264% en verðbólga
hefur fjórfaldast á sama tíma.
Þetta sýnir að hækkun stýri-
vaxta hefur alls ekki tilætluð
áhrif, enda bera langtímalán
jafnan fasta verðtryggða vexti.
Breyting stýrivaxta hefur lítil
sem engin áhrif á verðtryggðu
lánin og þar með hefur umrædd
hækkun stýrivaxta lítil áhrif til
að minnka þenslu. Einu merkjan-
legu áhrif stýrivaxtahækkana
varða minni fyrirtæki og ein-
staklinga sem tekið hafa skamm-
tímalán. Búast má við að stýri-
vaxtahækkunin snerti einkum þá
sem standa hvað lakast að vígi
við öflun lánsfjár.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins,
tekur í nýju frétta-
bréfi samtakanna
undir sjónarmið
Frjálslynda flokksins
um að hagstjórnar-
tæki Seðlabankans
virki ekki sem skyldi.
Íslenskt fjármálakerfi
er orðið hluti af alþjóðlegu
umhverfi og þess vegna þarf að
aðlaga reglur þess og kjör því
sem almennt gerist í vestrænum
ríkjum. Lánskjör íbúðalána til
almennings eru einn þeirra þátta
sem þarf að aðlaga en í Evrópu
heyra verðtryggingar til algerra
undantekninga.
Það er mjög mikilvægt að hafa
í huga að afnám verðtryggingar
mun ekki skerða hag lánveitenda
eins og lífeyrissjóðanna til lengri
tíma litið. Afnám verðtryggingar
yki á stöðugleika í efnahagslífinu
þar sem lánastofnanir þyrftu í
auknum mæli að taka tillit til
stýrivaxta Seðlabankans í öllum
ákvörðunum sínum.
Við afnám verðtryggingar
gæti lánveitandi ekki varpað allri
ábyrgð á verðbólguáhættu á lán-
takandann og það mundi ýta
undir ábyrga efnahagsþróun. Við
breytinguna mundi einnig skap-
ast þrýstingur til lækkunar
vaxtastigs í landinu þar sem lán-
veitendur og lántakendur yrðu að
taka mið af raunhæfum vaxta-
kröfum.
Höfundur er þingmaður Frjáls-
lynda flokksins.
Afnemum
verðtrygginguna