Fréttablaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 20
Þ egar blaðamaður hitti Lovísu á kaffi- húsi í miðborginni voru tvær til þrjár stundir liðnar frá því hún var vakin með þeim fréttum að hún hefði hlotið fjórar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir nýút- kominn frumburð sinn – Please don’t hate me. „Ég er ennþá hálf rugluð yfir þessu,“ segir hún. „Ég var alveg steinhissa þegar ég fékk fréttirnar í morgun. Miðað við við- tökurnar leyfði ég mér að vona að ég yrði kannski tilnefnd sem bjartasta vonin [sem hún er hins vegar ekki, merkilegt nokk] en þetta kom mér algjörlega á óvart.“ Stjarna Lovísu hefur risið hratt að undanförnu. Fyrir örfáum mánuð- um samdi hún nokkrar blússkotn- ar laglínur á gítar, tók upp og setti á MySpace-síðuna sína undir nafninu Lay Low. Í kjölfarið kom útgáfufyrirtækið Cod Music að máli við hana og bauðst til að gefa út plötu. Fyrir nokkrum vikum leit frumraunin dagsins ljós og í dag er Lay Low á hvers manns vörum; hún lék fyrir troðfullri Fríkirkju á útgáfutónleikum á dögunum og platan rýkur úr plötubúðum. Ekki ónýtt ársverk hjá 24 ára gamalli stúlku. „Það var nánast tilviljun að ég fór að syngja blús; ég byrjaði vegna þess að þetta er þægileg tónlist til að syngja við, ég get ekki sungið hvað sem er, og setti það á netið. Ég fékk ágæt viðbrögð sem gaf mér meira sjálfstraust og ég bætti nokkrum lögum við. Áður en ég vissi af höfðu Cod Music sam- band og buðu mér að gefa út plötu. Eftir það varð ekki aftur snúið.“ Hún kveðst vitaskuld himinlif- andi yfir að sér gangi vel en í sömu andrá sé það líka skrýtið. „Það stóð aldrei til að þetta færi svona. Ég var bara eitthvað að læðast með tónlistina mína á netinu. Nú er ég búin að gefa út plötu og fullt af fólki veit hver ég er og það hefur verið dálítið sérstakt að meðtaka það.“ Eðli málsins samkvæmt hefur árið líka verið annasamt; Lovísa hætti í Listaháskóla Íslands til að geta tekið upp plötuna, en er nú í fullri vinnu í Skífunni á Lauga- vegi. Nánast hver einasta frístund er frátekin fyrir tónleika og kynn- ingarstarf og hún játar að síðustu vikur og mánuðir hafi verið strembnir. „Ég var dálítið sein að klára plötuna út af flensu sem hefur dregist endalaust á langinn. Ég var ekki orðin nógu góð þegar ég tók upp plötuna en ákvað að láta slag standa. Eftir vinnu fer ég yfirleitt að spila einhvers staðar og svo kannski á æfingu strax á eftir, þannig það er ansi mikið að gera þessa stundina. Mér finnst þetta mjög gaman en það er ekki möguleiki á að vera í skóla á sama tíma.“ Hún segir að útgáfutónleikarn- ir í Fríkirkjunni hafi verið hápunkt- urinn hingað til. „Ég vissi ekkert við hverju átti að búast. Í fyrstu fannst mér Fríkirkjan vera alltof stór en svo seldust miðarnir upp í forsölu. Veikindin voru enn að há mér og ég dældi í mig penisilíni og sterum fyrir tónleikana. Þegar ég mætti var ég í stresskasti og viss um að ég myndi fá hóstakast og ekki getað sungið, ég er bara ekki nógu vön söngkona ennþá. Og það skánaði ekki þegar ég kom inn í kirkjuna. Ég er vön að spila á börum og stöðum þar sem er reykt og skvaldur í salnum. Þarna var hins vegar grafarþögn, sem var nánast vandræðalegt til að byrja með. En svo byrjaði ég að spila og stressið minnkaði og eftir á var ég mjög ánægð með þessa tónleika og ótrúlega sátt með hvað margir mættu.“ Hún viðurkennir að vera stressuð og gagnrýnin á sjálfa sig en þó innan heilbrigðra marka. „Þetta heldur mér frekar á tánum en aftur af mér; ég passa mig á því að vera alltaf vel undirbúin og þótt ég sé stundum óánægð með einhverja tónleika er ég líka ánægð þegar ég veit að ég hef staðið mig vel.“ Lovísa kveðst vissulega vera þakklát fyrir viðtökurnar sem hún hefur hlotið en segir líka að í kjöl- far hinnar óvæntu velgengni finn- ist henni hún standa frammi fyrir ákvörðunum sem hún var ekki við- búinn að þurfa að taka. „Þetta hefur gerst svo hratt að ég er enn að reyna að átta mig á hvað ég er búin að koma mér í og hvert ég vil fara. Ég veit ekki ennþá hvað ég vil verða þegar ég verð stór en líður dálítið eins og ég þurfi að ákveða það núna. Ég á ábyggilega alltaf eftir að hlusta á tónlist en ég veit ekkert hvort ég eigi eftir að spila það sem eftir er.“ Lovísa Elísabet fæddist í London. Hún er íslensk í móðurættina en faðir hennar er Breti af srílönksku bergi brotinn. Tveggja ára gömul flutti hún heim til Íslands með móður sinni, bjó í Kópavogi til átta ára aldurs en þaðan í frá í Laugar- dalnum. Þótt hún hafi byrjað að læra á píanó ung að aldri segist hún ekki hafa verið sérstaklega listhneigð sem barn og unglingur. „Ég var bara ósköp venjuleg þegar ég var yngri, dálítill strákur í mér og alltaf að gaurast í körfubolta, en hlustaði á Take That og Blur og var með plakat af Whitney Houston uppi á vegg. Mamma sendi mig hins vegar í píanónám og þegar ég var tólf eða þrettán ára byrjaði á að spila á bassa og gítar og var í nokkrum hljómsveitum.“ Lovísa gekk í Menntaskólann við Hamrahlíð og tónlistaráhug- inn óx með árunum. Fyrir þremur árum byrjaði hún í hljómsveitinni Benny Crespo’s Band, en það var ekki fyrr en tiltölulega nýlega sem hún fann hjá sér þörf til að semja og spila eigið efni. „Ég hef lengi hlustað á blústónlist, gospel-tónlist og gamal kántrí, menn á borð við Hank Williams, og þetta hefur sjálfsagt bara þróast með mér í gegnum árin.“ Veikindi hafa sett strik í reikning- inn hjá Lovísu. Upp úr tvítugu fékk hún heilaæxli sem hrjáði hana í tvö ár og segir hún að það hafi haft áhrif á sig til frambúðar. „Þetta var frekar ömurlegur tími. Ég var orðin hálfgerður öryrki; gat ekki unnið eða verið í skóla eða keyrt bíl. En þegar mér batn- aði áttaði ég mig á hvað það er mikils virði að vera heilbrigður. Það hljómar kannski eins og klisja en maður lærir að meta lífið upp á nýtt, taka því ekki sem sjálfsögðu, og ég reyni að gleyma því ekki. Og þetta á kannski líka sinn þátt í því að ég fór að gera eigin tónlist.“ Veikindin urðu meðal annars til þess að hún fór að læra geisla- fræði í Háskóla Íslands. „Ég vissi ekki einu sinni að stétt geislafræð- inga væri til fyrr en ég veiktist. Þá kynntist ég faginu og fannst það áhugavert og skráði mig í háskól- ann. Ég hætti hins vegar eftir rúmt ár því ég fann að verklegi þátturinn átti ekki við mig. En þetta var gagnlegt og áhugavert nám, ég veit til dæmis miklu meira um líkamann en ég gerði.“ Það er orðið algengara en ekki að íslenskir tónlistarmenn reyni fyrir sér utan landsteinanna eftir að hafa getið sér góðan orðstír heima fyrir. Lovísa er engin undantekn- ing og heldur utan strax eftir ára- mót í lítið tónleikaferðalag. „Ég hef aldrei spilað úti áður svo það verður mjög spennandi. Ég hef líka mikinn áhuga á ferðalögum en hef ekki ferðast jafn mikið og ég vildi.“ Faðir Lovísu og föðurfjölskylda búa í London og hún hefur haft annan fótinn þar í gegnum tíðina. Hún segist þó ekki getað hugsað sér að flytja frá Íslandi. „Ekki ennþá að minnsta kosti. Margir vinir mínir eru að flytja út um þessar mundir en mér líður vel hérna heima og er ekki tilbúin að flytja út strax.“ Fyrir utan tónleika erlendis í janúar og febrúar er næsta ár óskrifað blað í huga Lovísu. „Það er ekkert ákveðið. Ætli ég verði ekki bara að spila og vinna í Skíf- unni. Fyrir þann sem hefur ástríðu fyrir tónlist er eiginlega ekki hægt að hugsa sér betri stöðu en þá sem ég er í einmitt núna. Og ég er virki- lega þakklát fyrir það.“ Veit ekki hvað ég er búin að koma mér í Lovísu Elísabetu Sigrúnardóttur þekkja kannski ekki margir en flestir kann- ast við listamannsnafnið Lay Low, söngkonunnar sem hefur verið á vörum svo margra undanfarnar vikur. Í samtali við Bergstein Sigurðsson ræðir Lovísa um frægð á ofurhraða og hvernig það er að vera leitandi sál á krossgötum. Þetta hef- ur gerst svo hratt að ég er enn að reyna að átta mig á hvað ég er búin að koma mér í og hvert ég vil fara.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.