Fréttablaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 95

Fréttablaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 95
 Suður-Afríkumaðurinn Charl Schwartzel heldur forskoti sínu á Alfred Dunhill-mótinu í Suður- Afríku. Birgir Leifur datt úr leik í fyrradag en Schwartzel hefur tveggja högga forskot þegar einn hringur er eftir. Schwartzel fékk fimm fugla í gær og einn örn en varð að sætta sig við þrjá skolla þar að auki og lék á 68 höggum. Hann hefur leik- ið alla dagana á 68 höggum og er samtals á 12 höggum undir pari. Mark Pilkington frá Wales lék vel í gær og fór hringinn á 65 höggum. Pilkington er í öðru sæti ásamt Englendingnum Lee West- wood á 10 höggum undir pari. Schwartzel byrjaði einstaklega vel og fékk þrjá fugla og örn á fyrstu sex holunum. „Þetta var mjög misjöfn spilamennska hjá mér í dag. Ég byrjaði betur í dag en ég hef áður gert en svo fékk ég þessa skolla um miðbik hringsins. Ég var að hitta boltann ágætlega þegar ég fékk þessa skolla en greinilega ekki nógu vel samt,“ sagði Schwartzer sem vann þetta mót árið 2004 og endaði í öðru sæti í fyrra. Ernie Els, sigurvegari mótsins frá því í fyrra, lék á þremur högg- um undir pari í gær og á því litla möguleika á að verja titil sinn að þessu sinni. Schwartzel eykur forskot sitt í S-Afríku Thierry Henry er ennþá sannfærður um að Arsenal geti náð toppliðunum Manchester United og Chelsea. Arsenal er 19 stigum á eftir Manchester United og mætir Chelsea í dag, þar sem Henry verður fjarri góðu gamni vegna meiðsla. „Við höfum allt til þess að bera til að keppa við Chelsea og Manchester United. Til þess ná þeim þurfum við að hafa stöðug- leika í okkar leik, jafnvel þótt við höfum ekki sama jafnvægi í leik okkar og Chelsea,“ sagði Henry við breska blaðið Daily Express. Gengi Arsenal hefur verið mjög brokkgengt á leiktíðinni og leikurinn í dag mjög mikilvægur fyrir titilbaráttu liðsins á þessari leiktíð. Getum enn orðið meistarar John McEnroe er ekki dauður úr öllum æðum. Hann tapaði fyrir Chilemanninum Marcelo Rios á BlackRock Masters í tveimur settum, 6-3 og 6-2, og eftir að hafa gagnrýnt Rios eftir leikinn kenndi hann sjálfum sér um tapið þegar reiðin var runnin af honum. „Ég spilaði ekki nógu vel og það veldur mér vonbrigðum því ég átti ágæta möguleika. Hluti af því er vegna þess að hann hreyfir sig mjög vel. Ég hitti boltann mjög vel, hreyfði mig mjög vel og maður skyldi ætla að ég ætti að geta gert betur á lykilaugna- blikum. Ég er samt ekkert ósáttur. Mér fannst eins og ég ætti að geta spilað betur en ég veit ekki af hverju ég gerði það ekki,“ sagði McEnroe sem er skaphundur mikill. McEnroe allt annað en sáttur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.