Fréttablaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 18
„Í meðförum góðra skálda eru áhrif orða slík að við skiljum þau ekki til hlítar.“ Nóbelsverðlaunin afhent í fyrsta sinn „Þetta er nú bara eitt af því sem gerist í lífi allra sem fá að lifa meðalævi,“ segir Sigurður Skúlason leikari, skáld og þýðandi, um það að ná sextugsaldrinum í dag. Sigurður virðist líka hafa of mörgu skemmtilegu að sinna til þess að afmælið eigi hug hans allan. „Já það er nóg að gera en ég verð samt að játa að það er eitt og annað sem hangir á spýt- unni við afmælið. Ég er nú til að mynda að hætta sem fastráðinn leikari við Þjóð- leikhúsið en er samt fjarri því að hætta að leika.“ Á ferli sínum við Þjóð- leikhúsið hefur Sigurður leikið á annað hundrað hlut- verka og það allt síðan hann kom fyrst fram á sviðið í leikritinu Ferðinni til tunglsins, sem frumsýnt var 5. janúar 1957. En Sig- urður hefur ekki látið sköp- unarkraftinn nema staðar við leiklistina heldur einnig tekist á við að yrkja, þýða og sitthvað fleira. „Það er satt, ég hef alltaf verið hald- inn forvitni um tilveruna og manneskjuna og því fylgir ákaflega rík tjáningarþörf. Þörf til þess að tjá umhverfi sitt, upplifanir og tilfinn- ingar. Þessi sköpunarþörf er tengd sextugsafmælinu því um þessar mundir kemur út hljóðbók sem heit- ir „og líf vort aðeins leit“ en þar les ég ýmis ljóð og texta sem eru mér hugleiknir og hafa raunar verið margir hverjir um langa hríð.“ Á hljóðbókinni er að finna fjölbreytta flóru texta og meðal þess sem vekur athygli er „Fyrir Júlíu, fyrir Lennon“ en fyrir skömmu var Sigurður kynnir á stór- tónleikum sem haldnir voru til þess að heiðra minningu og list Lennons. „Það kom mér ánægjulega á óvart að lagið Julia var upphafslag tónleikanna svo mér gafst færi á að hefja kynninguna á lestri tengdan þessu fal- lega lagi. Ég hef haft sterk- ar taugar til Lennons, listar hans og lífssýnar allt frá því snemma á sjöunda ára- tugnum svo þetta var sér- staklega ánægjulegt.“ Það er greinilega í nógu að snúast hjá Sigurði um þessar mundir og orkan er mikil. „Já, starfsorkuna sæki ég meðal annars í reglulega hreyfingu, svo einfalt er það nú. Ég hreyfi mig alltaf eitthvað á hverj- um degi hvort sem það er badminton, sund, ganga eða annað og það er það sem heldur mér gangandi.“ Eins og Sigurðar er von og vísa er sköpunargleðin í aðal- hlutverki á afmælisdaginn en í dag kl. 15 verður efnt til kynningar á hljóðbók Sigurðar á Súfistanum og þangað eru allir velkomnir. Áskær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Stefán V. Þorsteinsson fyrrv. rafiðnfræðingur og kennari, Herjólfsgötu 40, Hafnarfirði, sem andaðist á gjörgæsludeild LSH Fossvogi mánudaginn 4. desember, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 12. desember kl. 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Fríkirkjunnar í Hafnarfirði eða líknarstofnanir. Erla Guðmundsdóttir Inga Þóra Stefánsdóttir Helga Björg Stefánsdóttir Rögnvaldur Guðmundsson Elfa Stefánsdóttir Haraldur J. Baldursson Víðir Stefánsson Elín R. Sigurðardóttir Magnús Hjörleifsson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát ástkærrar systur okkar, mágkonu og frænku, Sigríðar Gizurardóttur lífeindafræðings, Kvisthaga 29, Reykjavík. Lúðvík Gizurarson Valgerður Guðrún Einarsdóttir Bergsteinn Gizurarson Marta Bergman Sigurður Gizurarson Guðrún Þóra Magnúsdóttir Dagmar Sigríður Lúðvíksdóttir Trausti Pétursson Dóra Lúðvíksdóttir Einar Gunnarsson Einar Lúðvíksson Georgina Anne Christie Gizur Bergsteinsson Bylgja Kærnested Dagmar Sigurðardóttir Baldur Snæland Magnús Sigurðsson Júlía Sigurðardóttir Gizur Sigurðsson Ólafur Sigurðsson Ingibjörg Sigurðardóttir Arnar Loftsson LEGSTEINAR OG FYLGIHLUTIR Í MIKLU ÚRVALI Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður og afa, Árna Sigurðssonar Þrastargötu 8, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við færa Eiríki Jónssyni lækni og starfsfólki Landspítalans við Hringbraut. Guð blessi ykkur öll. Ingigerður R. Árnadóttir Árni Ragnar Árnason Elmar Freyr Árnason Kærar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og vinarhug vegna andláts eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Ólafs Þorlákssonar bónda á Hrauni í Ölfusi. Helga Sigríður Eysteinsdóttir Þórdís Ólafsdóttir Ólafur Þór Ólafsson Guðrún Ólafsdóttir Helgi Ólafsson Hjördís Ólafsdóttir Marc Origer Ásdís Ólafsdóttir Sverrir J. Matthíasson Þórhildur Ólafsdóttir Hannes Sigurðsson Herdís Ólafsdóttir Þórhallur B. Jósepsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, Gunnar Baldur Guðnason Hraunbæ 116, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 11. desember kl. 15.00. Sigrún Gunnarsdóttir Reinhold Richter Hrafn Norðdahl Herdís Hübner Hjörtur Elvar Hjartarson og barnabörn. Elsku dísin, litla dóttir okkar, systir og barnabarn, Svandís Þula Ásgeirsdóttir sem lést af slysförum laugardaginn 2. desember síð- astliðinn, verður jarðsungin frá Langholtskirkju mið- vikudaginn 13. desember kl. 11.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er vin- samlega bent á Barnaspítala Hringsins, í von um bata Nóna Sæs. S. 543 3724. Hrefna Björk Sigurðardóttir Ásgeir Ingvi Jónsson Pálmi Freyr Steingrímsson Nóni Sær Ásgeirsson Sigurður J. Pálmason Auður Eysteinsdóttir Sigríður Jónsdóttir Hjalti Svanberg Hafsteinsson Þóra Kristjánsdóttir Jón Guðmundsson og aðrir aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.