Fréttablaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 98

Fréttablaðið - 10.12.2006, Blaðsíða 98
Finnst George Bush fyndnastur allra „Ég hef það bara ljómandi fínt, vakti í alla nótt og kláraði lagið, hef því ekki yfir neinu að kvarta,” segir tónlistarmaðurinn Sigurður Laufdal sem oftast er kallaður Siggi Lauf. Hann sendir frá sér nýtt lag í þessari viku og ber það heitið Í frelsarans nafni. „Lagið er svona mín túlkun á svörtu bókinni góðu,” segir Siggi og á þá við Biblíuna. Í laginu er að finna afar beinskeytta og kómíska texta sem snúa allir út úr sögum Biblíunnar á einn eða annan hátt. Sem dæmi má nefna: „Jesú var bara hippi, á geðtrufluðu kókaín trippi“ og „í eyðimörkinni var hann súr enda á 40 daga kókaín kúr,“ og er þá gamanið bara rétt að byrja og lítið gefið í kraftaverk frelsarans, því í kjölfarið fylgir lýsing á því hvernig lærisveinarn- ir tólf borðuðu ofskynjunarsveppi og sáu í framhaldninu Jesú ganga á vatni. Faðir Sigurðar er enginn annar en tónlistarmaðurinn og predikar- inn Guðlaugur Laufdal sem þekkt- astur er fyrir störf sín á sjón- varpsstöðinni Omega. Sigurður segir að faðir sinn hafi ekki haft mikið út á lagasmíðarnar að setja, þrátt fyrir að efni lagsins gæti skarast á við predikanir föðurins. „Hann hringdi og óskaði mér til hamingju með lagið, spurði mig svo hvort mér þætti textinn ekki skrítinn, en ég sagði honum að hann yrði að gera það upp við sig sjálfur og meira var það ekki.” Sigurður hefur samið tónlist síðan hann var 14 ára gamall en í dag er hann 23 ára. Hann segir undanfarið ár hafa verið nokkurs konar vendipunkt fyrir sig í tón- list, en nú í ár, „er ég fyrst orðinn sáttur við sjálfan mig,” segir hann af einlægni. Siggi var mjög dug- legur við að spila í allt sumar og alveg fram á haust. Í síðasta mán- uði lagði hann í langferð norður á land þar sem hann spilaði á nokkr- um stöðum og svo kom hann einn- ig fram á Gullkindarverðlaunum útvarpsþáttarins Capone. „Annars ætla ég bara að koma sterkur inn á nýju ári.“ Nafn lagsins Í frelsar- ans nafni átti upphaflega að vera nafn á fyrstu plötu Sigurðar en sú er hugmynd farin af borðinu núna. „Nýju lögin mín eru flest á ensku, svo að ég ætla að bíða og sjá hvort sniðugra verði að hafa titil plöt- unnar á sama tungumáli,“ en nán- ari áform um útgáfu eru enn ekki klár. Eins og flesta aðra tónlistar- menn dreymir Sigurð að geta haft ofan í sig með tónlistinni eingöngu, en annað biður hann ekki um. Helstu áhrifavaldar hans eru Bubbi Morthens og Nir- vana-goðið sjálft, Kurt Cobain, en hann segir tónlist sína þó vart líkj- ast þeirra. ...fær Snæbjörn Arngrímsson, bókaútgefandi hjá Bjarti, sem setur mark sitt á jólabókasöl- una í Danaveldi um þessar mundir og hefur nýverið opnað útibú í Noregi. „Yfirvöld í Kasakstan hafa miklar áhyggjur af því hvernig það er kynnt fyrir umheiminum og kvik- myndin um blaðamanninn Borat er kannski helsta ástæðan fyrir því,“ segir Svavar Halldórs sem á dögunum fylgdi íslensku glímuliði til Kasakstans en sýnt verður frá ferðinni í fréttaskýringa- þættinum Kompás í kvöld. Kasakstan hefur verið mikið í fréttum að undan- förnu eftir að kvikmynd gamanleikarans Sasha Baron Cohen, Borat: Cultur- al Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan, sló heldur betur í gegn um allan heim. Yfirvöld í Kasakstan segja leikarann hafa haft þjóðina að fífli og sáu sig meðal annars tilneydda til að birta tveggja opnu auglýsingu í New York Times þar sem staðreynda- villur Borats voru leiðréttar. „Borat bregður ekki upp raun- særri mynd af landinu þótt vissulega sé eitthvað sann- leikskorn í einhverju,“ segir Svavar sem komst í kast við lögregluna þegar myndavél- arnar voru dregnar upp. „Við vorum færðir inni á lítilli lögreglu- stöð og látnir útskýra dvöl okkar í landinu í löngu máli,“ segir Svavar og bætir við að ekki megi þó eingöngu skella skuld- inni á Sasha Baron Cohen og fífla- læti hans. „Kasakstan er ekki full- komið lýðræðisríki þótt myndin hafi ekki bætt úr skák,“ segir Svavar. Fréttamaðurinn segir það hafa komið sér í opna skjöldu hversu mikið bil var á milli ríkra og fátækra. „Við hittum þarna fólk í lægstu þrepum þjóðfélagsins, ólöglega innflytjendur með rétt tæpar þrjú þúsund krónur á mán- uði,“ segir hann. „En svo kynnt- umst við líka auðmönnunum sem eru í innsta hring forseta Kasak- stans.“ Kompás á slóðum Borats í Kasakstan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.