Fréttablaðið - 24.12.2006, Qupperneq 1
Smáauglýsing í
Hrafnhildur Árnadóttir er bara þriggja ára gömul en
hún veit samt alveg um hvað jólin snúast.Hrafnhildur er orðin mjög spennt fyrir jólunum og hlakkar
mikið til að opna pakkana í kvöld. Hún man reyndar í fljótu
bragði ekki eftir neinu sérstöku sem hana langar að fá í
jólagjöf. „Ég er ekki búin að hugsa það,“ segir hún spek-
ingslega.
Jólasmákökur eru í miklu uppáhaldi hjá Hrafnhildi og
henni finnsti nammikökur bestar. Hún segist samt ekki
borða mikið nammi. „Ég geri það ekki. Bara mat og kökur.
Ég borða líka jólamat og svo opnum við pakkana.“
Hrafnhildur viðurkennir fúslega að henni finnist pakk-
arnir það skemmtilegasta við jólin. „Ég fæ marga pakka,
frá mömmu og pabba og Hermanni og Auði. Ég fékk einu
sinni Baby-born í jólagjöf. Ég ætla að gefa mömmu og
pabba pakka sem ég bjó til í leikskólanum.“ Hún veit samt
alveg að við höldum jólin ekki bara út af pökkunum. „Þau
eru af því að Jesúbarnið fæddist,“ segir hún.
Hrafnhildi finnst mjög gaman að vera í jólafríi og hún
ætlar að fara á jólaball. „Kannski kemur einn jólasveinn
sem heitir Gluggagægir eða Gáttaþefur með stóra nefið,“
segir hún og hlær. Í desember er Hrafnhildur búin að vera mjög þæg og
hún hefur því fengið ýmislegt skemmtilegt í skóinn frá jóla-
sveinunum. „Ég fékk hristu og Auður fékk Herra Jóla en
mamma las hana fyrir mig.“ Hún segist samt ekkert hafa
séð jólasveinana setja neitt í skóinn. „Ég fer bara undir
sæng og fel mig þegar þeir koma,“ segir hún en vill þó alls
ekki viðurkenna að hún sé hrædd við þá. „Stekkjastaur er
uppáhalds jólasveinninn minn og Gluggagægir og Gátta-
þefur og allir jólasveinarnir.“ Eftir jólin koma áramót og Hrafnhildur er ekki síður
spennt fyrir þeim en jólunum. „Mér finnst flugeldar
skemmtilegastir. Ég ætla líka að sprengja flugelda en þá
þarf að hafa gleraugu. Ég er alltaf með gleraugu þegar eru
áramót.“
Finnst pakkarnir
langbestir
Gleðileg jól!
Opið 10–13
Gjafabréf - harður pakki en samt mjúkur
Syngur eingöngu á
ítölsku
Viðbragðsáætlun
Flugmálastjórnar hefur verið
samþykkt af Alþjóðaflugmála-
stofnuninni. Áætlunin fjallar um
hvernig flugumferð verði stýrt í
kringum Ísland og á Norður-Atl-
antshafssvæðinu, með einungis 26
flugumferðarstjóra, en um sextíu
flugumferðarstjórar hafa ekki
viljað ganga til liðs við nýtt hluta-
félag, Flugstoðir ohf., sem tekur
við rekstrarhluta Flugmálastjórn-
ar eftir áramót.
Engar viðræður eru í gangi
milli Flugstoða og flugumferðar-
stjóranna, þrátt fyrir fyrirséðar
tafir á flugi og ýmislegt óhagræði
fyrir flugfélögin, en forsvars-
menn þeirra hafa lýst miklum
áhyggjum af gangi mála.
Loftur Jóhannsson, formaður
flugumferðarstjóra, hefur sent
fjölmiðlum tölvupóst frá Ólafi
Sveinssyni, stjórnarformanni
Flugstoða. Samkvæmt póstinum
virðist sem taka hafi átt kjaramál
til umræðu milli Flugstoða og
flugumferðarstjóra í september,
en það hefur verið bitbein deiluað-
ila hvort kaup og kjör skuli ræða.
Ólafur segir Loft hafa slitið orð
sín úr tölvupóstinum úr samhengi.
Í honum hafi einungis verið vísað
til skoðunar á kjarasamningsaðild
en ekki á kjarasamningnum sjálf-
um. „Það var skýrt tekið fram frá
fyrsta degi að við myndum ekki
opna launaliðinn,“ segir Ólafur.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra neitar ekki að hann hafi
vissar áhyggjur af deilunum, en
telur málið þó í eðlilegum farvegi:
„Það er búið að gera allt sem hægt
er til að þetta geti orðið áfalla-
laust.“ Bíða verði og sjá hversu
margir flugumferðarstjórar fáist
til starfa, segir Sturla: „Ég á þá
ósk heitasta að þetta ágæta fólk
komi til starfa.“ Samgönguráð-
herra er ekki í vafa um að rétt hafi
verið að málum staðið þegar farið
var út í að breyta rekstri Flug-
málastjórnar. Samningaviðræð-
urnar hafi í raun gengið ótrúlega
vel þar til flugumferðarstjórar
kynntu nýjar launakröfur. „En við
verðum að vona að þetta leysist.
Eins og staðan er núna er þetta allt
í eðlilegum farvegi. Svo stígum
við næstu skref.“
Flugmálin í eðlilegum farvegi
Gleðileg jól!
Einstæð móðir og
þrjú börn hennar komust heil á húfi
út úr brennandi húsi á Hvolsvelli
aðfaranótt Þorláksmessu. Móðirin
vaknaði við reykskynjara og reyndi
í fyrstu að slökkva eldinn sjálf.
Lögregla kom á vettvang fimm
mínútum eftir að tilkynning barst
og Brunavarnir Rangárþings
skömmu síðar. Eldurinn var í
svefnherbergi hússins og gekk vel
að ráða niðurlögum að sögn
lögreglu. Upptök eldsins eru ókunn.
Þykkur svartur reykur myndað-
ist við brunann og talsvert tjón
varð á innanstokksmunum vegna
reyks, sóts og vatns. Húsið er
óíbúðarhæft og dvelja móðirin og
börnin núna hjá vinafólki þar sem
þau munu halda upp á jólin.
Móðir og þrjú
börn björguð-
ust úr eldsvoða
Jólasveininum í
Finnlandi berast jafnan býsnin öll
af bréfum en sjaldan hafa bréfin
verið fleiri en í ár. Nú þegar eru
bréfin orðin 600 þúsund, og venjan
er sú að ekki færri en hundrað
þúsund bætist við eftir jólin.
Þetta segir Riitta Mattila,
yfirpóstálfur á Pósthúsi jóla-
sveinsins í norðanverðu Finn-
landi, þangað sem allur póstur
sem skrifaður er til jólasveinsins
berst. „Sífellt fleiri eru að skrifa
og við gætum náð nýju meti,“
bætti Riitta við.
Bretar eru manna duglegastir
við skrifin, en um það bil helming-
ur bréfanna kemur frá Bretlands-
eyjum. Ítalir og Pólverjar láta
ekki heldur sitt eftir liggja og
senda jafnan fjölmargar línur til
sveinka í Finnlandi.
Fær 700 þús-
und bréf í ár
10
6
7
6
7