Fréttablaðið - 24.12.2006, Side 26
Jólamáltíðin úti í garði
JÓL AÐ HEIMAN
Ekki eru allir Íslendingar hér á landi um jól og áramót, og halda hátíðina
utan landsteinanna. Sigríður Hjálmarsdóttir hafði samband við fólk sem
heldur jólin í ár á fjarlægum slóðum.
Steindór og fjölskylda hans búa í Hong Kong og halda jólin þar
eins og undanfarin ár en þar hafa
þau búið vel á sjötta ár. Þeim þykir
sumartíminn betri til að heim-
sækja Ísland en taka á móti vinum
og ættingjum á heimili sínu á
aðfangadag jóla.
Steindór er framkvæmdastjóri
og einn af eigendum Nautilus
Holdings ltd. sem sérhæfir sig í
fjárfestingum í sjávarútvegsgeir-
anum. Hulda, konan hans, er ljós-
móðir og rekur sitt eigið fyrirtæki
með þjónustu fyrir verðandi og
nýbakaðar mæður. Þau eiga börn-
in Starra, 9 ára, og Freyju, 8 ára.
„Jólin í Hong Kong eru auðvit-
að að mörgu leyti frábrugðin því
sem gerist á Íslandi. Hér er mikil
samsuða trúarbragða og þjóðerna
svo í raun eru stórviðburðir helstu
trúarbragða frídagar hjá okkur,
hvort sem um er að ræða kristna,
múslima eða búdda,“ segir Stein-
dór og bætir því við að flestir virð-
ist nýta sér jólin til að gera sér
glaðan dag óháð trúarbrögðum,
enda sé þar lögbundið frí bæði á
jóladag og annan í jólum.
„IKEA er gjarna sá staður sem
við sækjum nauðsynjar til jólanna,
þar fáum við jólatré, skreytingar,
síld, piparkökur og rækjur, en við
höfum reyndar ekki viðhaldið
þeim sið að baka ómælt magn af
smákökum fyrir jólin, enda ein-
hvern veginn ekki nógu kalt hér til
að njóta sykursjokksins sem fylgir
góðri smáköku og bolla af kakói,“
segir Steindór og viðurkennir að
rjómahnallþórur hljóti sömu örlög.
„Þær passa eiginlega ekki inn í
umhverfið. Nóa konfekt fáum við
þó alltaf sent frá Íslandi með jóla-
pökkunum, en það skipar svo
sterkan sess í jólastemningunni að
þó tertur og kökur vanti, þá heldur
Nói gamli velli.“
Steindór segir jólahaldið ósköp
íslenskt í ár og þá sérstaklega
aðfangadagskvöld. „Við fáum rjúp-
ur sendar frá Íslandi þetta árið, en
aðalréttur jólanna verður kalkúnn,
nú sem síðustu ár. Í gegnum netið
hlustum við yfirleitt á jólakveðjur
Ríkisútvarpsins á Þorláksmessu,
en sökum tímamismunar er morg-
unútvarpið og fram að hádegis-
fréttum sá tími sem við náum frá
Íslandi, enda klukkan orðin 4 síð-
degis hér þegar fólk vaknar á
Íslandi.“
Tíðarfarið á þessum árstíma
sem telst vetur í Kína er yfirleitt
gott að sögn Steindórs. „Hitastigið
er í kringum 20 stig og sólríkt svo
við munum borða jólamáltíðina úti
í garði. Það verður gestkvæmt
þessi jólin hjá okkur, en á aðfanga-
dag verðum við með sex íslenska
gesti í mat hjá okkur. Hluti af þeim
er systkinahópur Huldu, konunnar
minnar, sem flest búa hér og nokkr-
ir vinir að auki sem flugu hingað
niður eftir yfir hátíðarnar.“
Hlaðborð af krásum
Parið Guðbergur Þór Garðars-son og Inácio Pacas da Silva
Filho, sem jafnan eru kallaðir
Beggi og Pacas, ætla að vera í
Brasilíu um jólin ásamt börnunum
sínum.
„Pacas á börn í Brasilíu og við
ætlum að vera hjá þeim um jólin,“
segir Beggi og bætir við að þeir
ætli að hafa brasilísk jól í ár. „Við
verðum með börnunum mínum og
börnunum hans en það sem er lík-
lega mest öðruvísi við þessi jól er
að það er meiri hiti og annað and-
rúmsloft,“ bætir Beggi við en
segir Pacas mun betur til þess fall-
inn að segja frá jólahefðunum í
Brasilíu því hann er fæddur og
uppalinn þar í landi.
Pacas segir jólin hefjast á
hádegi á jóladag í Brasilíu og yfir-
leitt sé þá hlaðborð af jólakrásum.
„Samkvæmt hefðinni verðum við
með jólakalkún auk ýmiss konar
meðlætis og drykkja. Stundum hef
ég farið í miðnæturmessu með
ömmu minni en annars bara sla-
kað á yfir drykk með fjölskyld-
unni,“ segir hann en jólin munu
þeir félagarnir halda hjá systkin-
um Pacas í Arares.
Börn Pacas eru sextán og sautj-
án ára en börnin hans Begga eru
sjö og fjórtán ára þannig að tími er
kominn til að þau hittist, að þeirra
mati. „Við ætlum að kíkja á strönd-
ina en þar verða allir að vera í
hvítum fötum á jólunum,“ segir
Pacas og bætir því við að í Brasilíu
sé ekki eytt eins miklum pening
fyrir jólin og hér á landi.
„Jólin í Brasilíu eru ekki sér-
staklega hátíð barnanna en þó fá
þau einn pakka frá jólasveininum
að morgni jóladags. Þann pakka
finna þau undir rúminu sínu þegar
þau vakna,“ segir Pacas.
Pacas segist hafa steingleymt
að taka með hangikjöt og laufa-
brauð til Brasilíu en það komi þó
ekki að sök því það verði svo mikið
af kjöti og kræsingum þar hvort
eð er. „Jólin eru löng hátíð í Brasil-
íu en þar er etið og drukkið í marga
daga í um 40 gráðu hita,“ segir
Pacas og óskar gleðilegra jóla.
Í Betlehem um jólin
Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og formaður félagsins Ísland-
Palestína, ætlar að eyða jólunum í
Palestínu ásamt yngstu dóttur
sinni, Kristínu, sem er fimmtán
ára.
„Það er liðið um það bil ár síðan
ég var síðast í Palestínu en ég hef
aldrei verið þar á jólum. Það varð
því úr að ég og yngsta dóttir mín,
sem er fimmtán ára, mín færum
þangað núna og yrðum yfir jólin,“
segir Sveinn en þau feðginin munu
halda til í Jerúsalem. „Á aðfanga-
dagskvöld ætlum við til Betlehem
og vera þar eitthvað fram á jóla-
nótt,“ bætir hann við.
Spurður hvort það séu yfirleitt
margir í Betlehem yfir jólin segir
Sveinn: „Það var þannig hér áður
fyrr en ég er hræddur um að það
sé ákaflega lítið núna því hernám-
ið hefur algjörlega eyðilagt fyrir
ferðamannaþjónustunni. Það er
því sáralítið um ferðamenn, sér-
staklega á Vesturbakkanum,
miðað við það sem var. Ísraels-
stjórn bannar ferðir útlendinga
og raunar líka Ísraela um Vestur-
bakkann, þó menn komist nú þang-
að,“ segir Sveinn og bætir því við
að mikill múr umlyki nú Betle-
hem. „Það er háð hernámsyfir-
völdum hvort hliðið inn í Betleh-
em verður opið eða ekki þannig að
það er ekkert víst að við komumst
inn í borgina. Ég reikna samt með
því og vona að það gangi.“
Sveinn sér fyrir sér að jólin
verið hátíðleg í Betlehem. „Ég
reikna með að það verði mikil
upplifun að vera á þessum helga
stað á jólanóttina. Stað sem maður
hefur heyrt svo mikið um allt frá
blautu barnsbeini og alist upp við
trúna á Jesú og fæðingu hans í
Betlehem. Þannig að þetta verður
vonandi bara yndislegt.“
Spurður hvort þau sakni þess
ekkert að vera heima yfir jólin
segir Sveinn að það sé nú alltaf
hægt að velta sér upp úr því ef
maður vill. „Ég verð til dæmis
ekki hjá fyrsta barnabarninu um
jólin en það fæddist á þessu ári og
svona en við erum búin að fá
okkar litlu jól með fjölskyldunni
og verðum í huganum með þeim,
eins og þau með okkur,“ segir
Sveinn.