Fréttablaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 27
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Hrafnhildur Árnadóttir er bara þriggja ára gömul en
hún veit samt alveg um hvað jólin snúast.
Hrafnhildur er orðin mjög spennt fyrir jólunum og hlakkar
mikið til að opna pakkana í kvöld. Hún man reyndar í fljótu
bragði ekki eftir neinu sérstöku sem hana langar að fá í
jólagjöf. „Ég er ekki búin að hugsa það,“ segir hún spek-
ingslega.
Jólasmákökur eru í miklu uppáhaldi hjá Hrafnhildi og
henni finnsti nammikökur bestar. Hún segist samt ekki
borða mikið nammi. „Ég geri það ekki. Bara mat og kökur.
Ég borða líka jólamat og svo opnum við pakkana.“
Hrafnhildur viðurkennir fúslega að henni finnist pakk-
arnir það skemmtilegasta við jólin. „Ég fæ marga pakka,
frá mömmu og pabba og Hermanni og Auði. Ég fékk einu
sinni Baby-born í jólagjöf. Ég ætla að gefa mömmu og
pabba pakka sem ég bjó til í leikskólanum.“ Hún veit samt
alveg að við höldum jólin ekki bara út af pökkunum. „Þau
eru af því að Jesúbarnið fæddist,“ segir hún.
Hrafnhildi finnst mjög gaman að vera í jólafríi og hún
ætlar að fara á jólaball. „Kannski kemur einn jólasveinn
sem heitir Gluggagægir eða Gáttaþefur með stóra nefið,“
segir hún og hlær.
Í desember er Hrafnhildur búin að vera mjög þæg og
hún hefur því fengið ýmislegt skemmtilegt í skóinn frá jóla-
sveinunum. „Ég fékk hristu og Auður fékk Herra Jóla en
mamma las hana fyrir mig.“ Hún segist samt ekkert hafa
séð jólasveinana setja neitt í skóinn. „Ég fer bara undir
sæng og fel mig þegar þeir koma,“ segir hún en vill þó alls
ekki viðurkenna að hún sé hrædd við þá. „Stekkjastaur er
uppáhalds jólasveinninn minn og Gluggagægir og Gátta-
þefur og allir jólasveinarnir.“
Eftir jólin koma áramót og Hrafnhildur er ekki síður
spennt fyrir þeim en jólunum. „Mér finnst flugeldar
skemmtilegastir. Ég ætla líka að sprengja flugelda en þá
þarf að hafa gleraugu. Ég er alltaf með gleraugu þegar eru
áramót.“
Pakkarnir
langbestir
sunnudaga kl. 21:00
90% heimila ná Sirkus TV á ADSL kerfinu, Breiðbandinu, Digital Ísland
en einnig er hægt að ná Sirkus TV með venjulegu UHF loftneti