Fréttablaðið - 24.12.2006, Page 32
Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, prestur í Langholts- og
Bústaðakirkju, nam guðfræði við Háskóla Íslands og
útskrifaðist þaðan árið 1996.
Fyrsti hluti námsins er þriggja ára BA nám í guðfræði.
Síðan bætast við tvö ár í viðbót. Námi lýkur síðan með emb-
ættisprófi eða Cand. theol gráðu.
Fyrirkomulag guðfræðinámsins hefur þó örlítið breyst
og þeir sem innritast frá og með næsta hausti fá masters-
gráðu, Mag. theol sem veitir embættisgengi.
Það eru þó ekki allir guðfræðingar sem verða prestar.
„Til að gerast prestur þarf að fara í gegnum ákveðið ferli
hjá kirkjunni samhliða námi til að gerast prestur. Þessi
starfsþjálfun er á vegum Biskupsstofu og kallast samfylgd-
arkefi,“ segir Arna.
Margir guðfræðingar vinna við ýmis spennandi störf, til
dæmis við kennslu eða stjórnun og bæta jafnvel við sig
öðru námi. Innan samfylgdarkerfisins taka guðfræðinemar
þátt í safnaðarstarfi undir handleiðslu prests. Til dæmis
predika þeir eða taka þátt í fermingarfræðslu eða öðru
barna- og unglingastarfi. Arna tók sjálf mikið þátt í kristi-
legu starfi sem barn og unglingur og fann snemma löngun
til að gerast prestur. „Trú mín á Jesú Krist er grundvöllur
fyrir starfsvalinu,“ segir Arna.
Útskrifaðir guðfræðingar með embættispróf verða þó
ekki sjálfkrafa prestar. „Til að gerast prestur þarf að vígj-
ast í tiltekið embætti þar sem auglýst er eftir presti. Eftir
það er maður prestur ævilangt hvort sem maður er starf-
andi eður ei,“ segir Arna sem sjálf var vígð til prests á
Raufarhöfn árið 2000. Arna hefur verið starfandi í Reykja-
vík síðan í sumar og segir starf prestsins vera mjög fjöl-
breytt. „Maður tekur þátt í öllum stærstu stundunum. Bæði
í gleði og sorg eins og skírn, fermingum, brúðkaupum og
jarðarförum. En síðan sinnir presturinn líka almennu
messuhaldi, kyrrðar- og helgistundum ásamt öðru starfi í
sókninni. „Sálgæslustarfið snýst oft um áfallahjálp við slys
og dauðsföll, en einnig um ráðgjöf við brúðkaup og skilnað.
Það er oft erfitt, en í senn mjög gefandi,“ segir Arna.
Presturinn er embættismaður sem þarf á miklum skipu-
lagshæfileikum að halda. „Við þurfum að skrá allt í kirkju-
bækur og láta Hagstofu fá upplýsingar um skírn, giftingar,
skilnað og dauðsföll, auk þess að halda utan um allt það
starf sem fer fram í kirkjunni,“ segir Arna. Það eru margir
sem koma að starfi kirkjunnar, eins og tónlistarfólk, kórar,
organistar og fleiri og það eru margir þræðir sem prestur-
inn þarf að halda í. Prestar sinna fjölmörgum öðrum verk-
efnum og eru meðal annars á sjúkrahúsum, í fangelsum og
á hjúkrunarheimilum. Það er öflugt starf í kirkjum landsins
fyrir hátíð ljóss og friðar og Arna hlakkar mikið til. „Jólin
eru góður tími og það er ofsalega gaman að vera prestur í
desember,“ segir Arna brosandi.
Gaman að vera
prestur um jól
Tölvunarfræðingur / Kerfisfræðingur
Norðurál óskar að ráða starfsmann til framtíðarstarfa í tölvudeild. Við leitum að einstaklingi
sem er tilbúinn til að takast á við fjölþætt verkefni og vaxa í starfi.
Í hverju felst starfið?
Almennum rekstri netkerfis
Uppsetningu vélbúnaðar
Umsýslu netþjóna
Ráðgjöf og aðstoð við notendur
Þátttöku í verkefnahópum og ýmsum tilfallandi
verkefnum
Hvaða kröfur gerum við?
Góð þekking MS Windows kerfum
Þekking á Cisco svissum
Gagnagrunnsþekking
Þekking á ERP kerfum, helst SAP
Góð enskukunnátta
Góð samskiptahæfni og þjónustulund
Áreiðanleiki og metnaður
Hvað er í boði?
Góður aðbúnaður og góð aðstaða hjá fyrirtæki
í mikilli sókn
Kraftmikill og góður hópur samstarfsfólks
Traustar tekjur og laun að hluta árangurstengd
Jafnrétti
Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla
og kvenna til starfa hjá Norðuráli.
Hvernig sækir þú um?
Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir 9. janúar
n.k. Þú getur sótt um á vef fyrirtækisins: www.nordural.
is, sent umsókn þína á netfangið umsokn@nordural.is
eða póstlagt umsóknina, merkta: tölvudeild.
Trúnaður
Við förum með umsókn þína og allar persónulegar
upplýsingar sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum
verður svarað.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Sigurður Jón Björnsson,
fjármálastjóri, og Emil Hilmarsson, deildarstjóri
tölvudeildar, í síma 430 1000.
Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is
Norðurál
Norðurál framleiðir árlega 220.000 tonn af áli til útflutnings. Um þessar mundir er unnið
að stækkun álversins sem felur í sér að framleiðslugeta verður aukin í 260.000 tonn á
árinu 2007. Hjá okkur starfa nú um 360 manns að margvíslegum verkefnum og gert er
ráð fyrir að starfsfólki fjölgi enn frekar á næsta ári.
Leyfðu okkur
að aðstoða.
Skráðu þig á
www.hhr.is.
» Ráðningarþjónusta
HH Ráðgjöf, Ráðningarþjónusta • Fiskislóð 81 • 107 Reykjavík
Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Ert þú í
atvinnuleit?
A
ug
l.
Þó
rh
ild
ar
2
20
0.
33
7
Íþróttamiðstöð
S E L T J A R N A R N E S B Æ R
Íþróttamiðstöð Seltjarnarness
Óskum að ráða starfsfólk
Sundlaug Seltjarnarness
• Óskum eftir afleysingamanni í þrjá
mánuði og hugsanlega áframhaldandi
vinnu eftir það. Í starfinu felst m.a. umsjón
með búningsklefa karla. Um er að ræða
vaktavinnu og fullt starf frá áramótum.
Íþróttahús Seltjarnarness
• Óskum eftir starfsmanni í gæslu
búningsklefa kvenna. Um er að ræða
vinnu frá kl. 08:00 - 16:00 virka daga.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi starfs-
mannafélags Seltjarnarness og launa-
nefndar sveitarfélaga.
Upplýsingar gefur Haukur Geirmundsson
í síma 898-9490 eða 561-1700.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi
Viltu sýn’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg