Fréttablaðið - 24.12.2006, Side 53
Á jólunum er gleði og gaman,
Heims um ból og Göngum við í
kringum eru vinsæl jólalög sem
Íslendingar þekkja flestir frá
barnæsku. Árni Björnsson þjóð-
háttafræðingur fjallar meðal ann-
ars um texta jólalaga í bók sinni,
Sögu jólanna, en þeir hafa margir
valdið heilabrotum.
„Fúm, fúm, fúm er bara eins og
hó, hó, hó eða eitthvað slíkt og
þýðir ekki neitt,“ segir Árni
Björnsson, en bók hans Saga
jólanna kom út nú fyrir jólin.
„Babbi í
„Babbi segir“
þýðir svo
bara
pabbi,
en
börn
segja
þetta oft meðan þau eru lítil og
höfundurinn notar þetta til að
stuðla.“
Heims um ból hefur vakið
athygli fyrir óvenjulegan texta
Sveinbjörns Egilssonar. „Mann-
kindin liggur sem sagt meinvill í
myrkrinu af því að hún var ramm-
villt áður en Kristur kom í heim-
inn,“ segir Árni.
Margir hafa
jafnframt velt
því fyrir sér
af hverju
Adam sáir
í kvæðinu
um hann
og syni
hans sjö.
„Það
voru til
tvö dönsk
kvæði um
Adam, í öðru
sáir hann,
en hitt
fjallar
um syni
hans.
Ein-
hvern
tímann
var kvæð-
unum slengt saman á íslensku og
þess vegna er þetta svona kjána-
legt. Danshreyfingin við að sá er
skrítin, af því að maður á að fara í
bænastellingu. Mér er ekki kunn-
ugt um hvernig það kom til,“ segir
Árni.
Að sögn Árna er það ekki jóla-
hefð að ganga í kringum einiberja-
runn. „Mikið af þessum leikjum
eru komnir úr dönsku. Í Dan-
mörku var þetta ekki jólalag, en á
Íslandi kom fólk aðallega saman á
jólunum og þess vegna var lagið
sungið þá.“
Nú skal segja er einnig úr
dönsku. „Textinn hefur alltaf verið
að mestu eins, nema hvað strák-
arnir gera,“ segir Árni. „Þeir
ýmist sparka bolta, slá á trommu
eða blása í lúður.“ Stelpurnar hafa
hins vegar alltaf vaggað brúðu og
hneigt sig.
„Kynjahlutverkin voru mjög
greinileg í þessum textum,“ segir
Árni og nefnir þar meðal annars
„Hann fékk bók, en hún fékk nál
og tvinna“ úr laginu Hátíð í bæ.
Sama gildir um mömmu sem er í
eldhúsinu á meðan pabbinn bisar
við flibbahnappinn.
„Enginn veit hverjir Andrés og
Jón á Völlunum í Jólasveinar einn
og átta eru. Einn og átta þýðir
heldur ekki endilega níu. Þetta
þýðir bara margir jólasveinar og
er notað til að stuðla. En margir
textanna eru ekki skráðir fyrr en
á 19. öld og því ekki endilega víst
að við þekkjum upphaflegu kvæð-
in,“ segir Árni, en meira má lesa
um íslensk jólalög í bókinni hans.
Skemmtistaðurinn Gaukur
á Stöng lokaði endanlega
síðastliðið föstudagskvöld
þegar Jet Black Joe tróð þar
upp í hinsta sinn. Fjölmarg-
ar hljómsveitir hafa gert
garðinn frægan á Gauknum
í gegnum tíðina, þar á meðal
Sóldögg, Skítamórall, Jet
Black Joe og Dikta.
Að sögn Sigurðar Hólm Jóhanns-
sonar, sem hefur rekið Gaukinn
undanfarin þrjú ár, stóð reksturinn
ekki undir sér. Þurfti hann að greiða
1750 þúsund krónur í leigu á mán-
uði og innkoman frá gestum staðar-
ins náði ekki að brúa bilið.
„Þetta er slæmt fyrir öll þessi
bönd sem við erum búnir að vera að
ala upp núna. Miðasalan hefur ekki
verið til staðar lengur, sérstaklega
eftir að sveitaballaböndin fóru að
hætta,“ segir hann og segir jaðar-
böndin sem hafi spilað á Gauknum
ekki fá nægan stuðning frá stjórn-
völdum. „Þetta er það sem við erum
að hlusta á allan daginn í útvarpinu
og öllum þykir sjálfsagt að þessi
jaðarbönd séu að spretta upp. Ég sé
ekki hvernig þau geti farið á
erlenda grund og spilað fyrir fólk
ef þau geta ekki spilað hér fyrst.
Það þarf eitthvað að gera. Ég er
búinn að reyna mitt besta í næstum
þrjú og hálft ár.“
Ekki er vitað hvað tekur við í
húsnæði Gauksins. Orðrómur hefur
þó verið uppi um að minjagripasala
verði á staðnum og einnig að veit-
ingastaðurinn Hard Rock verði
opnaður þar.
Myndbandavefurinn YouTube.
com nýtur mikilla vinsælda meðal
netverja, en þar má finna ýmiss
konar skemmtun, meðal annars
heimatilbúin myndbönd og brot
úr frægum sjónvarpsþáttum og
kvikmyndum. Íslendingar hafa
ekki látið sitt eftir liggja og fræg
atriði úr Fóstbræðraþáttunum
vinsælu eru meðal þess sem
Íslendingar hafa lagt til á vefinn.
Vinsælasta myndband allra
tíma á síðunni er þó dansatriðið
„Evolution of Dance“ með grínist-
anum Judson Laipply, þar sem
hann dansar sig gegnum danssög-
una á sex mínútum. Tæplega 37
milljónir manns hafa skoðað
myndbandið síðan það birtist fyrst
fyrir átta mánuðum.
Danssagan
á YouTube
Árið 2001 stofnuðu æskufélagarnir
Akiva Schaffer, Jorma Taccone og
Andy Samberg hópinn Lonely
Island. Nýútskrifaðir úr úr háskóla,
þar sem þeir lærðu kvikmyndagerð
og leiklist, ákváðu þeir að taka
höndum saman til þess að skapa
vandað gamanefni. Þeir bjuggu til
sketsa, tónlistarmyndbönd, stutt-
myndir og fleira grín og settu það
allt á heimasíðu sína, thelonelyis-
land.com. Fljótlega slógu þeir ræki-
lega í gegn á meðal netverja og
innan skamms voru sjónvarpsstöðv-
ar farnar að falast eftir gríni þeirra.
Þannig fór að Akiva Schaffer og
Jorma Taccone réðu sig sem hand-
ritshöfunda í einn þekktasta gam-
anþátt Bandaríkjanna, Saturday
Night Live og var Andy Samberg
ráðinn sem leikari. Saturday Night
Live hefur getið af sér marga af
þekktustu grínleikurum samtím-
ans. Segja margir að drengirnir úr
Lonely Island hafi frískað rækilega
upp á þáttinn og gert hann sam-
keppnishæfan öðrum gamanþáttum
á ný, en eftir 30 ár í loftinu var
ferskleikinn ekki lengur í öndvegi. Í
vændum er kvikmynd frá þeim
félögum og ber hún heitið Hot Rod.
Heimasíða þeirra pilta er ennþá
starfrækt og er þar hægt að nálgast
alls kyns grínefni og nýjustu fréttir
af félögunum. Þeir Andy, Akiva og
Jorma eru tvímælalaust þeir grín-
arar sem fólk ætti að fylgjast með
næstu árin, bjartasta von grín-
heimsins, ferskir, fyndnir og alveg
ótrúlega sniðugir.
Næstir til þess að
slá í gegn
DOA kl. 6 - 8 B.i.12
SAW 3 kl. 10:50 B.i.16
SKOLAÐ Í BURTU Ísl tal. kl. 1:20 - 3:30 Leyfð
SANTA CLAUSE 3 kl. 1:20 - 3:30 - 5:40 - 8 Leyfð
JÓNAS M/- Ísl tal kl. 2 Leyfð
BÆJARHLAÐIÐ M/- Ísl tal kl. 4 Leyfð
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 2 - 5 - 8 - 10:50 B.i.16
FLAGS OF OUR FATHERS VIP kl. 8 - 10:50
FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl.1 - 3:20 - 5:40 Leyfð
FRÁIR FÆTUR VIP kl. 1 - 3:20 - 5:40
HAPPY FEET M/-Ensk tal kl. 5:40 - 8 - 10:20 Leyfð
DÉJÁ VU kl. 8 - 10:50 B.i.12
THE DEPARTED kl. 10:20 B.i. 16
FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl. 1:20 - 3:40 - 5:30 - 6 Leyfð
HAPPY FEET M/-Ensk tal. kl. 3:20 - 5:30 - 8:10 - 10:30 Leyfð
SKOLAÐ Í BURTU M/- Ísl tal. kl. 1:30 - 3:40 Leyfð
DÉJÁ VU kl. 8 - 10:30 B.i.12
THE HOLIDAY kl. 8 - 10:40 B.i. 7
BÆJARHLAÐIÐ M/- Ísl tal kl. 2 Leyfð
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 - 10:30 B.i. 16
FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl. 3 - 5:30 Leyfð
ERAGON kl. 3 - 5:30 - 8 B.i. 12
DÉJÁVU kl. 10:10 B.i. 12
FLAGS OF OUR FATHERS kl 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 16
FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl. 2 - 4 - 6 Leyfð
SKOLAÐ Í BURTU M/- Ísl tal kl. 2 Leyfð
HAPPY FEET M/-Ensk tal. kl. 4 - 8:30 Leyfð
DÉJÁ VU kl 10:30
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI / KEFLAVÍK
NATIVITY STORY kl. 5:50 B.i.6
SANTA CLAUSE 3 kl. 3:40 Leyfð
BOSS OF IT ALL kl. 8 - 10:10 B.i.7
SKOLAÐ Í BUR.. Ísl tal kl. 2:30 Leyfð
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 3 - 4:30 - 7:30 - 9 - 10:30 B.i. 16
FRÁIR FÆTUR Ísl tal. kl. 2:30 - 4:45 Leyfð
HAPPY FEET Ensk tal. kl. 2:30 - 4:45 - 9 Leyfð
DÉJÁ VU kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12
Háskólabíó
Clint Eastwood
hlaut tilnefningu til
Golden Globe
verðlauna fyrir bestu
leikstjórn.
Mynd eftir Óskarsverðlaunahafann Clint Eastwood.
Sannkallað meistaraverk sem kvik-
myndað var að mestum hluta á Íslandi.
SÝNINGARTÍMAR 26. DES
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Ein besta teiknimynd ársins sem enginn má missa af er komin. Frábært grin og skemm-
tun fyrir alla fjölskylduna. Tilnefnd til Golden Globe sem besta teiknimynd ársins.
Hér er á ferðinni frumlegasti
spennuhasar ársins
DENZEL WASHINGTON VAL KILMER
KVIKMYNDIR.IS
H.J. -MBL
MÖRGÆSAÆÐIÐ
ER HAFIÐ!
-H.J. MBL
„SNJÖLL OG BRÁÐFYNDIN“
ENDURUPPLIFUNIN
FORSTJÓRI HEILA KLABBSINSHINIR FRÁFÖLLNU
FÁNI FEÐRANNA
Framleidd
af Steven
Spielberg
/ AKUREYRI
Gleðileg bíójól
Sýnd í SAMbíóunum Kringlunni