Fréttablaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 64
Gleðilega hátí
ð
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Höfum eitt á hreinu. Jól eru ekki kristin hátíð. Orðið „jól“
hefur verið í málinu mun lengur
en kristnin í þjóðinni, það er svo
fornt að uppruni þess er í raun
hulin ráðgáta. Heiðnir menn héldu
hátíð í tilefni af vetrarsólstöðum
og kölluðu hana „jól“.
annað á hreinu. Við
vitum ekki hvenær ársins Jesús
fæddist. Líkurnar á að það hafi
verið 24. desember eru einn á móti
365. Hafi hann fæðst þennan dag
er það hrein tilviljun. Auk þess
fæddist Jesús löngu áður en tíma-
tal okkar var búið til og afar óvís-
indalegt er að ætla að reikna ein-
stakar dagsetningar aftur í tímann
langt aftur fyrir upphaf þess.
loks á hreinu að Jesús,
sá er fæddur var af Maríu þeirri
sem kölluð er „Mey“ og píndur á
dögum Pontíusar Pílatusar, var til.
Til að trúa því að persónan Jesús
Maríuson sé uppspuni frá rótum
þarf mun meiri trúgirni en til þess
að viðurkenna að hann hafi verið
til, heimildirnar eru bara of sann-
færandi. Hvað einstök æviatriði
hans, ætterni í karllegg og sagn-
fræðilegan áreiðanleika hinna
ýmsu frásagna Nýja testamentis-
ins varðar, þá verða menn hins
vegar að ákveða hver fyrir sig að
trúa postullegu trúarjátningunni
eða ekki – hún verður hvorki sönn-
uð né afsönnuð með þeim aðferð-
um sem við beitum hinn mælanlega
raunveruleika. Í trúarsannfær-
ingu felst nefnilega meðal annars
fullvissa um að til sé sannleikur
sem er dýpri og æðra eðlis en
sannleikshugtak efnisheimsins.
Þannig getur fjöldi manns til
dæmis vitnað um áhrif bænarinn-
ar á líf sitt þótt þau séu auðvitað
ekki mælanleg með neinum þekkt-
um aðferðum.
þegar upp er staðið þá er ekk-
ert skrýtið að kristið fólk skuli
velja jólin til að fagna fæðingu
frelsarans. Það er einfaldlega allt
of gráupplagt, öll táknfræðin æpir
beinlínis á það. Myrkur (fáfræð-
innar, dauðans, mannvonskunnar,
óttans og alls sem myrkrið getur
táknað) tekur að hopa fyrir birtu
(sannleikans, lífsins, kærleikans,
friðarins og alls þess sem Jesús
stendur fyrir).
vil ég óska
landsmönnum öllum árs, friðar og
gleðilegra jóla. Ennfremur óska
ég ykkur öllum til hamingju með
birtuna í lífi ykkar, hvaðan sem
hún er runnin.
Gleðileg jól