Fréttablaðið - 31.12.2006, Side 1

Fréttablaðið - 31.12.2006, Side 1
Bakar himneska súkkulaðiköku Stútfullt blað af atvinnuauglýsingum Opið 10–13 í dag Skotið var á bíl lögreglu- manns á Blönduósi aðfaranótt laug- ardags. Enginn var í bílnum þegar skotið var. Lögregla telur víst að um kúlnagöt sé að ræða, en kúlan fór inn um vinstri hliðarrúðu að framan og út um hina hægri. Engin vitni voru að því er hleypt var af og kúlan hefur ekki fundist. Nær allt starfslið lögreglunnar á Blönduósi vinnur að rannsókn máls- ins. „Við lítum þetta mjög alvarleg- um augum, hvort sem um slysa- skot eða viljaverk er að ræða,“ segir Hermann Ívarsson, varð- stjóri lögreglunnar á Blönduósi. Hann hvetur almenning til þess að leggja lögreglunni lið við rannsókn þessa máls. Lögreglumaðurinn sem hlut á að máli segist ekki eiga svarna óvini og að aldrei nokkurn tímann hafi honum verið hótað lífláti. Bíllinn er í eigu fjölskyldu lögreglumannsins og stóð í inn- keyrslu við hús í miðjum bænum þegar skotið hljóp af. Allt bendir til þess að stórt skotvopn hafi verið notað, ann- aðhvort stór riffill eða skamm- byssa. Að sögn Hermanns var ölvun í bænum ekki óvenjulega mikil aðfaranótt laugardagsins. Skotið á bíl lögregluþjóns Skotið var á bíl lögreglumanns á Blönduósi aðfaranótt laugardags. Bíllinn stóð mannlaus í innkeyrslu þegar árásin átti sér stað. Engin vitni voru að skotunum. MÁ BJÓÐA ÞÉR NÝTT STARF Á NÝJU ÁRI ? Hugbúnaðarsérfræðingur starfar á viðskiptalausnasviði fyrirtækisins og annast þarfagreiningu, hönnun, forritun, ráðgjöf og innleiðingu á Microsoft Dynamics AX viðskiptahugbúnaði. Fjöldi áhugaverðra verkefna eru fyrirliggjandi. Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði, viðskiptafræði eða sambærilega menntun. Reynsla af forritun og innleiðingu á Microsoft Dynamics kerfum er nauðsynleg. Áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð, metnað til árangurs, lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hópi. Í boði er áhugavert starf fyrir öflugan og metnaðarfullan einstakling. HUGBÚNAÐARSÉRFRÆÐINGUR MICROSOFT DYNAMICS AX Sölu- og markaðsráðgjafi hefur umsjón með söluverkefnum á Ópusallt.NET viðskiptalausn, sem hefur í áratugi verið ein vinsælasta viðskiptalausn landsins, kynningum og tilboðsgerð auk þess að annast gerð og frágang samninga. Hann tekur þátt í áætlanagerð auk þess að sjá um gerð og viðhald markaðsefnis. Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi marktæka reynslu á sviði sölu- og markaðsmála, þekkingu á sviði viðskiptalausna og háskólamenntun er nýtist í umræddu starfi. Áhersla er lögð á gott vald á íslensku í ræðu og riti, fagleg og skipuleg vinnubrögð h f í mannlegum samskiptum og metnað til árangurs í starfi.Í boði er áhugavert starf, sem krefst frumkvæði Ópusallt sem b SÖLU- OG MARKAÐSRÁÐGJAFI ÓPUSALLT Ráðgjafar á sviði orkulausna sinna krefjandi verkefnum fyrir raforkufyrirtæki á Íslandi, en HugurAx hefur um árabil verið samstarfsaðili íslenskra orkufyrirtækja. Verkefnin snúa að ráðgjöf og verkefnastjórnun varðandi ýmsa þætti í starfsemi raforkufyrirtækja, s.s. ferlið frá mælingu að reikningagerð, utanumhald mæligagna, ferlagreiningar og skeytasamskipti. Störfin krefjast mikils samstarfs við sérfræðinga erlendis og fer þekkingaruppbygging og þjálfun að hluta til fram erlendis. Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi háskólapróf á sviði verk- eða tæknifræði, tölvunar- eða kerfisfræði og/eða viðskiptafræði. Framhaldsmenntun er æskileg. Þekking á raforkugeiranum er kostur ásamt marktækri þekkingu og reynslu á sviði tölvu- og upplýsingatækni. Áhersla er lögð á góða samskiptahæfileika, sjálfstæð og fagmannleg vinnubrögð, áhugasemi og metnað til árangurs í starfi. RÁÐGJAFAR Á SVIÐI ORKULAUSNA HugurAx er eitt af leiðandifyrirtækjum landsins á sviði hugbúnaðargerðar,hugbúnaðarþróunar og innleiðingu hugbúnaðarlausna. Fyrirtækið sinnir bæði stórumog smáum fyrirtækjum íflestum atvinnugreinumlandsins. Hjá HugAx starfa nú yfir 130starfsmenn. HugurAx býðurstarfsmönnum sínum úrvalsstarfskjör og möguleika á aðþroskast og þróast í starfi. Höfuðstöðvar HugarAxeru í nýju og glæsilegu húsnæði að Guðríðarstígí Grafarholti í Reykjavík,þar sem kappk – – – Íslandsdeild Amnesty International mótmælir harðlega aftöku Saddams Hussein, fyrrverandi forseta Íraks. „Amnesty International berst gegn dauðarefsingum í öllum tilvikum og telur dauðarefsingar vera ómannúðlegar, niðurlægjandi og brjóta gegn réttinum til lífsins,“ segir í fréttatilkynningu frá samtökunum. Amnesty telur tækifærið til að skapa stöðugleika í Írak farið forgörðum. Samtökin segjast hafa fagnað því á sínum tíma að sækja ætti Saddam til saka, en að það hafi átt að gerast með sanngjörn- um réttarhöldum. Fordæmir af- töku Saddams Útvarpsstöðin Kántríbær hættir útsendingum í dag um óákveðinn tíma. Ástæðan er fjárhagsörðugleikar í rekstri. Kostnaður vegna endurnýjunar endurvarpssendis á Sauðárkróki vegur þar þyngst. „Við erum búin að reka þessa stöð í menningarlegum tilgangi í fjórtán ár og þegar ekkert kemur inn á móti er erfitt að rúlla boltanum,“ segir Hallbjörn Hjartarson, kúreki norðursins og eigandi stöðvarinnar. „Mér finnst að sýslurnar í kringum okkur ættu að geta styrkt útvarpið eitthvað, það þarf ekki stórar upphæðir. Það tala allir um menningu en þegar hún er úti á landi er hún einskis virði,“ segir hann. Kántríbær hættir útsendingum Rás 1 er líka fyrir ungt fólk

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.