Fréttablaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 22
Viðburðarríkt ár er að baki. Glæstir sigrar, vonbrigði, tækifæri, gleði og sorg – allt þetta hafa landsmenn upplifað með ein- hverjum hætti á árinu 2006. Þannig er lífið í öllum sínum fjöl- breytileika og enginn stöðvar tím- ans þunga nið. Árið 2007 heilsar brátt með öllum þeim viðfangs- efnum og áskorunum sem fylgja nýju ári. Ég vona að það verði okkur öllum farsælt. Stjórnmálin hafa verið einkar fjörleg þetta árið, sveitarstjórnar- kosningar á liðnu vori, breytingar í ríkisstjórn í sumar í kjölfar þess að Halldór Ásgrímsson ákvað að hverfa af vettvangi stjórnmálanna og síðan prófkjör flokkanna nú í haust til undirbúnings fyrir kom- andi alþingiskosningar. Þingkosn- ingarnar í maí og aðdragandi þeirra mun án efa tryggja fram- hald líflegrar þjóðmálaumræðu. Sumir halda að stjórnmál séu aðeins linnulaust karp um dægur- mál, keppni í ræðumennsku þar sem sá vinnur sem talar hæst og mest fer fyrir. Þannig kann það raunar að virðast þeim fáu sem aðeins fylgjast með skvaldurþátt- um fjölmiðla og bloggsíðum stjórnmálamanna eða misjafnlega spakviturra álitsgjafa. En stjórn- málin snúast auðvitað um annað og meira. Stjórnmálabaráttan er tæki til að þróa samfélagið áfram til betri vegar í þágu borgaranna allra. Það eru forréttindi að fá að taka þátt í þeirri vegferð. Við Íslendingar erum lánsöm þjóð. Við búum í samfélagi þar sem vandamálin eru í raun flest smávægileg miðað við vanda ýmissa annarra þjóða. Vandamál okkar er flest hægt að líta á sem viðfangsefni til úrlausnar þar sem ágreiningur er fyrst og fremst um leiðir en ekki markmið. Athyglis- vert er að nú er helst deilt í stjórn- málum á Íslandi um túlkun á tölum og samanburð milli manna – og milli þjóða. Íslenskt efnahagslíf hefur á skömmum tíma tekið algjörum stakkaskiptum og er nú fyllilega samkeppnisfært við þau lönd sem við viljum helst bera okkur saman við. Íslensk fyrir- tæki láta til sín taka á sviðum sem óhugsandi hefði verið fyrir nokkr- um árum að þau væru þátttakend- ur í og þeim vex ásmegin, að því er virðist, með degi hverjum. Við viljum gera fyrirtækjunum kleift að halda áfram á þessari braut því það er í atvinnustarfseminni sem þau verðmæti skapast sem þjóðin lifir af. Í pólitískri umræðu er málum gjarnan skipt í flokka og vísað til þeirra sem harðra eða mjúkra. Velferðar- og fjölskyldumál falla þá jafnan í mjúka flokkinn en efnahags- og skattamál í hinn, svo dæmi séu tekin. Þetta er hins vegar ekki svona einfalt því mjúku og hörðu málin skarast. Efnahags- staða þjóðarbúsins á hverjum tíma hefur þannig bein áhrif á afkomu fjölskyldnanna í landinu og sama er að segja um skattana. Ef þjóð- arframleiðsan dregst saman fækk- ar atvinnutækifærum sem og möguleikum manna til að auka tekjur sínar. Ef verðbólga eykst og vextir hækka aukast útgjöld fjölskyldunnar. Þar með minnkar svigrúmið og erfiðara getur reynst að láta enda ná saman. Öruggur hagvöxtur, lítil verð- bólga og efnahagslegur stöðug- leiki eykur hins vegar tækifæri fjölskyldunnar til að njóta lífsins í víðasta skilningi. Trygg atvinna og næg atvinnutækifæri eru und- irstaða öryggis og hagsældar hverrar fjölskyldu. Öflugur kaup- máttur launatekna gefur fólki jafnframt tækifæri til að draga úr vinnuframlagi sínu og njóta betra jafnvægis vinnu og einkalífs. Jafn- vægi og hagsæld í efnahagsmál- um tryggir líka stöðugar tekjur ríkisins sem er undirstaða vel- ferðarþjóðfélagsins og þess að unnt sé að veita sjúkum, öldruðum og öryrkjum þann stuðning sem þeir þurfa á að halda. Þess vegna er það eitt mikilvægasta verkefni stjórnmálanna á hverjum tíma að tryggja trausta efnahagslega und- irstöðu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð lagt á það áherslu að skapa ein- staklingunum frjótt umhverfi til athafna og framkvæmda. Síðastlið- in tæp sextán ár hefur áhersla verið lögð á að lækka skatta, ein- falda ríkisreksturinn og auka frelsi og samkeppni á öllum sviðum. Ég tel gríðarlega mikilvægt að við höldum einbeitt áfram þennan veg til árangurs. Með því að einfalda regluverk atvinnulífsins enn frek- ar og halda áfram að lækka opin- berar álögur sköpum við skilyrði fyrir kröftugu atvinnulífi. Þannig styðjum við best frumkvöðla og nýsköpun um leið og við eflum þá atvinnustarfsemi sem fyrir er. Í stjórnmálum eru viðfangsefn- in síbreytileg. Dægurmál líðandi stundar munu hverfa en ný við- fangsefni koma stöðugt til sög- unnar. Þannig er lýðræðið í verki og þannig færum við þjóðfélagið stöðugt fram á við. Við Íslending- ar búum einnig við forréttindi að þessu leyti – okkar vandamál eru úrlausnarefni – og við stefnum öll að sama markinu, að gera okkar góða þjóðfélag enn betra. Þó er góður vilji ekki nægilegur til að ná settu marki. Það þarf líka að fara réttu leiðirnar. Við sem höfum verið í forsvari í ríkisstjórn umliðin ár getum litið stolt yfir árangur nýliðinna ára, þótt verkefninu ljúki að sönnu aldrei. Við göngum til okkar verka af sama krafti og áður, staðráðin í því að halda áfram að gera okkar besta. Stjórnarandstaðan hefur að sama skapi það lýðræðislega hlut- verk að gagnrýna og veita stjórn- völdum aðhald. Það er mikilvægt hlutverk og nauðsynlegt að því sé ávallt sinnt af ábyrgð. Við áramót er siður að líta yfir farinn veg en búa sig jafnframt undir áskoranir framtíðarinnar. Hvað hefur áunnist og hvert ber að stefna? Hátt, segi ég, hátt ber að stefna – enn hærra en áður. Ég þakka landsmönnum sam- fylgdina á liðnum árum og óska lesendum öllum velfarnaðar á komandi ári. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins Einbeitt áfram til árangurs Brunamálastofnun og slökkviliðin í landinu óska landsmönnum farsældar á nýju ári. Eldsvoðar urðu okkur dýrkeyptir á árinu. Gætum okkar betur á næsta ári! Um leið minnum við ykkur á og huga að nauðsynlegum brunavörnum. að fara varlega með eld Brunamálastofnun Skúlagata 21 101 Reykjavík Sími 591 6000 Fax 591 6001 brunamal@brunamal.is www.brunamal.is Líf, heilsa, umhverfi, eignir Markmi› Brunamálastofnunar og slökkvili›anna er a› vernda líf, heilsu fólks, umhverfi og eignir me› flví a› tryggja fullnægjandi eldvarnaeftirlit og vi›búna› vi› eldsvo›um og mengunaróhöppum á landi. Brunamálastofnun vinnur fyrir stjórnvöld, slökkvili›, almenning og a›ra hagsmunaa›ila a› rá›gjöf, eftirliti og umbótum á svi›i brunavarna. G A R Ð A R G U Ð JÓ N S S O N / M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN 1 2 .0 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.