Fréttablaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 77
Hnefaleikakappinn Mike Tyson
var handtekinn á föstudaginn
fyrir að aka bifreið undir áhrif-
um áfengis. Tyson var að yfir-
gefa næturklúbb í Scottsdale,
Arizona og fóru lögreglumenn að
elta hann þegar hann var næst-
um því búinn að keyra utan í lög-
reglubifreið. Að sögn lögregl-
unnar í Scottsdale var Tyson
allur af vilja gerður þegar lög-
regluþjónn bað hann um að gang-
ast undir ölvunarpróf, en hafi
brugðist illa við þegar lögreglan
hóf að leita í bíl hans. Í bílnum
fannst lítilræði af kókaíni, en
meira af efninu fannst svo í
fórum Tysons. Í kjölfarið var
farið með hnefaleikakappann í
fangageymslur og mætti hann
fyrir rétt á föstudaginn, en var
svo fljótlega sleppt gegn trygg-
ingu. Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem Tyson kemst í kast við lögin,
en hann hefur ítrekað verið
kærður fyrir líkamsárás og
þurfti að dúsa í fangelsi um mið-
bik tíunda áratugarins eftir að
hann var dæmdur fyrir nauðgun.
Mike Tyson hefur svo gott sem
lagt hnefaleikahanskana á hill-
una, en í þau fáu skipti sem hann
berst núna, er það gegn óverðug-
um andstæðingum og sjaldnast í
viðkenndum viðureignum.
Tyson handtekinn fullur og með kókaín
Plata tónskáldsins Jóhanns
Jóhannssonar, IBM 1401 - A User’s
Manual, er í 6. sæti á lista heima-
síðunnar Almost Cool yfir bestu
plötur ársins 2006. Í dómi um plöt-
una á síðunni segir að tónlist
Jóhanns sé „gullfalleg nýklassík
og enn eitt stórkostlegt afrek
þessa unga tónskálds“.
Jóhann er eini Íslendingurinn
sem kemst á einn af árslistum
helstu erlendra gagnrýnenda í
tónlistarbransanum í ár, en í fyrra
komst Sigur Rós ofarlega hjá
mörgum með plötu sína Takk og
var meðal annars efst á árslista
tímaritsins Filter.
Jóhann í 6.
sæti árslista
Parið Tori Spelling og Dean
McDermott tekur kærleiksboð-
skap jólahátíðarinnar greinilega
til sín. Mcdermott bað Spelling að
giftast sér á jóladag í fyrra, og
endurtók svo leikinn ári síðar.
Sumum gæti þótt það óþarfi, þar
sem parið gekk í það heilaga á Fiji-
eyjum í maí, en ekki McDermott.
Hann gaf spúsu sinni safírshring
og bað hennar upp á nýtt, sem
þeim þótti báðum rómantískt með
eindæmum. Spelling, sem ber
fyrsta barn þeirra saman undir
belti, sagðist hafa farið að hágráta
yfir herlegheitunum. Henni þætti
það svo sérstakt að þegar McDerm-
ott bað hennar fyrst hafi barn
aðeins verið fjarlægur draumur,
en nú væri það raunverulega á
leiðinni.
Fékk bón-
orð aftur
Beyoncé Knowles saknar vin-
kvenna sinna úr hljómsveitinni
Destiny‘s
Child. Hljóm-
sveitin hætti í
fyrra og síðan
hefur Beyoncé
samið tónlist
upp á eigin
spýtur. „Ég
elskaði þetta
systrabanda-
lag,“ segir
Beyoncé sem
segist hafa
orðið þung-
lynd þegar bandið hætti. „Ég borð-
aði ekki og fór ekkert út. Þetta var
hræðilegt.“
Saknar
stelpnanna