Fréttablaðið - 31.12.2006, Qupperneq 22
Viðburðarríkt ár er að baki. Glæstir sigrar, vonbrigði,
tækifæri, gleði og sorg – allt þetta
hafa landsmenn upplifað með ein-
hverjum hætti á árinu 2006.
Þannig er lífið í öllum sínum fjöl-
breytileika og enginn stöðvar tím-
ans þunga nið. Árið 2007 heilsar
brátt með öllum þeim viðfangs-
efnum og áskorunum sem fylgja
nýju ári. Ég vona að það verði
okkur öllum farsælt.
Stjórnmálin hafa verið einkar
fjörleg þetta árið, sveitarstjórnar-
kosningar á liðnu vori, breytingar
í ríkisstjórn í sumar í kjölfar þess
að Halldór Ásgrímsson ákvað að
hverfa af vettvangi stjórnmálanna
og síðan prófkjör flokkanna nú í
haust til undirbúnings fyrir kom-
andi alþingiskosningar. Þingkosn-
ingarnar í maí og aðdragandi
þeirra mun án efa tryggja fram-
hald líflegrar þjóðmálaumræðu.
Sumir halda að stjórnmál séu
aðeins linnulaust karp um dægur-
mál, keppni í ræðumennsku þar
sem sá vinnur sem talar hæst og
mest fer fyrir. Þannig kann það
raunar að virðast þeim fáu sem
aðeins fylgjast með skvaldurþátt-
um fjölmiðla og bloggsíðum
stjórnmálamanna eða misjafnlega
spakviturra álitsgjafa. En stjórn-
málin snúast auðvitað um annað
og meira. Stjórnmálabaráttan er
tæki til að þróa samfélagið áfram
til betri vegar í þágu borgaranna
allra. Það eru forréttindi að fá að
taka þátt í þeirri vegferð.
Við Íslendingar erum lánsöm
þjóð. Við búum í samfélagi þar
sem vandamálin eru í raun flest
smávægileg miðað við vanda
ýmissa annarra þjóða. Vandamál
okkar er flest hægt að líta á sem
viðfangsefni til úrlausnar þar sem
ágreiningur er fyrst og fremst um
leiðir en ekki markmið. Athyglis-
vert er að nú er helst deilt í stjórn-
málum á Íslandi um túlkun á tölum
og samanburð milli manna – og
milli þjóða. Íslenskt efnahagslíf
hefur á skömmum tíma tekið
algjörum stakkaskiptum og er nú
fyllilega samkeppnisfært við þau
lönd sem við viljum helst bera
okkur saman við. Íslensk fyrir-
tæki láta til sín taka á sviðum sem
óhugsandi hefði verið fyrir nokkr-
um árum að þau væru þátttakend-
ur í og þeim vex ásmegin, að því
er virðist, með degi hverjum. Við
viljum gera fyrirtækjunum kleift
að halda áfram á þessari braut því
það er í atvinnustarfseminni sem
þau verðmæti skapast sem þjóðin
lifir af.
Í pólitískri umræðu er málum
gjarnan skipt í flokka og vísað til
þeirra sem harðra eða mjúkra.
Velferðar- og fjölskyldumál falla
þá jafnan í mjúka flokkinn en
efnahags- og skattamál í hinn, svo
dæmi séu tekin. Þetta er hins
vegar ekki svona einfalt því mjúku
og hörðu málin skarast. Efnahags-
staða þjóðarbúsins á hverjum tíma
hefur þannig bein áhrif á afkomu
fjölskyldnanna í landinu og sama
er að segja um skattana. Ef þjóð-
arframleiðsan dregst saman fækk-
ar atvinnutækifærum sem og
möguleikum manna til að auka
tekjur sínar. Ef verðbólga eykst
og vextir hækka aukast útgjöld
fjölskyldunnar. Þar með minnkar
svigrúmið og erfiðara getur reynst
að láta enda ná saman.
Öruggur hagvöxtur, lítil verð-
bólga og efnahagslegur stöðug-
leiki eykur hins vegar tækifæri
fjölskyldunnar til að njóta lífsins í
víðasta skilningi. Trygg atvinna
og næg atvinnutækifæri eru und-
irstaða öryggis og hagsældar
hverrar fjölskyldu. Öflugur kaup-
máttur launatekna gefur fólki
jafnframt tækifæri til að draga úr
vinnuframlagi sínu og njóta betra
jafnvægis vinnu og einkalífs. Jafn-
vægi og hagsæld í efnahagsmál-
um tryggir líka stöðugar tekjur
ríkisins sem er undirstaða vel-
ferðarþjóðfélagsins og þess að
unnt sé að veita sjúkum, öldruðum
og öryrkjum þann stuðning sem
þeir þurfa á að halda. Þess vegna
er það eitt mikilvægasta verkefni
stjórnmálanna á hverjum tíma að
tryggja trausta efnahagslega und-
irstöðu.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla
tíð lagt á það áherslu að skapa ein-
staklingunum frjótt umhverfi til
athafna og framkvæmda. Síðastlið-
in tæp sextán ár hefur áhersla
verið lögð á að lækka skatta, ein-
falda ríkisreksturinn og auka frelsi
og samkeppni á öllum sviðum. Ég
tel gríðarlega mikilvægt að við
höldum einbeitt áfram þennan veg
til árangurs. Með því að einfalda
regluverk atvinnulífsins enn frek-
ar og halda áfram að lækka opin-
berar álögur sköpum við skilyrði
fyrir kröftugu atvinnulífi. Þannig
styðjum við best frumkvöðla og
nýsköpun um leið og við eflum þá
atvinnustarfsemi sem fyrir er.
Í stjórnmálum eru viðfangsefn-
in síbreytileg. Dægurmál líðandi
stundar munu hverfa en ný við-
fangsefni koma stöðugt til sög-
unnar. Þannig er lýðræðið í verki
og þannig færum við þjóðfélagið
stöðugt fram á við. Við Íslending-
ar búum einnig við forréttindi að
þessu leyti – okkar vandamál eru
úrlausnarefni – og við stefnum öll
að sama markinu, að gera okkar
góða þjóðfélag enn betra. Þó er
góður vilji ekki nægilegur til að ná
settu marki. Það þarf líka að fara
réttu leiðirnar.
Við sem höfum verið í forsvari
í ríkisstjórn umliðin ár getum litið
stolt yfir árangur nýliðinna ára,
þótt verkefninu ljúki að sönnu
aldrei. Við göngum til okkar verka
af sama krafti og áður, staðráðin í
því að halda áfram að gera okkar
besta. Stjórnarandstaðan hefur að
sama skapi það lýðræðislega hlut-
verk að gagnrýna og veita stjórn-
völdum aðhald. Það er mikilvægt
hlutverk og nauðsynlegt að því sé
ávallt sinnt af ábyrgð.
Við áramót er siður að líta yfir
farinn veg en búa sig jafnframt
undir áskoranir framtíðarinnar.
Hvað hefur áunnist og hvert ber
að stefna? Hátt, segi ég, hátt ber
að stefna – enn hærra en áður.
Ég þakka landsmönnum sam-
fylgdina á liðnum árum og óska
lesendum öllum velfarnaðar á
komandi ári.
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins
Einbeitt áfram til árangurs
Brunamálastofnun og slökkviliðin í landinu óska landsmönnum farsældar á nýju ári.
Eldsvoðar urðu okkur dýrkeyptir á árinu.
Gætum okkar betur á næsta ári!
Um leið minnum við ykkur á
og huga að nauðsynlegum brunavörnum.
að fara varlega með eld
Brunamálastofnun Skúlagata 21
101 Reykjavík
Sími 591 6000
Fax 591 6001
brunamal@brunamal.is
www.brunamal.is
Líf, heilsa, umhverfi, eignir
Markmi› Brunamálastofnunar og slökkvili›anna er
a› vernda líf, heilsu fólks, umhverfi og eignir me› flví
a› tryggja fullnægjandi eldvarnaeftirlit og vi›búna›
vi› eldsvo›um og mengunaróhöppum á landi.
Brunamálastofnun vinnur fyrir stjórnvöld, slökkvili›,
almenning og a›ra hagsmunaa›ila a› rá›gjöf, eftirliti
og umbótum á svi›i brunavarna.
G
A
R
Ð
A
R
G
U
Ð
JÓ
N
S
S
O
N
/
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
1
2
.0
4