Fréttablaðið - 31.12.2006, Síða 6

Fréttablaðið - 31.12.2006, Síða 6
 Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, var við völd frá 16. júlí árið 1979 til 9. apríl 2003. Hann var meðal illræmdustu einræðis- herra sögunnar og á sér fáa mál- svara á Vesturlöndum. Frá upphafi leit Saddam á sjálf- an sig sem byltingarleiðtoga sem vildi gera viðamiklar félagslegar umbætur í Írak. Veraldleg arabísk þjóðernisstefna var jafnan megin- lína Baath-flokksins, sem Saddam gekk til liðs við strax tvítugur að aldri. Eftir að hann komst til valda árið 1979 kom hann fljótlega upp lýðræðisstofnunum í vestrænum anda og beitti sér af fullum krafti bæði til að halda íhaldsáhrifum íslams í skefjum og til að halda saman hinum ólíku þjóðernishóp- um landsins – sjíum, súnníum og Kúrdum. Sjálfur var Saddam súnní-mús- lími, fæddur í Tikrit árið 1937, og á valdatíð hans hafa súnní-múslímar í raun verið allsráðandi í landinu þótt þeir séu í minnihluta. Hann kom félögum sínum og ættingjum í helstu valdastöður og stjórnaði þeim með harðri hendi. Hann náði fljótt sterkum tökum á öllum valda- stofnunum landsins, stofnaði sína eigin öryggislögreglu og sýndi óvin- um sínum vægðarlausa grimmd. Hikaði jafnvel ekki við að láta myrða eigin ættingja ef þeir féllu úr náðinni. Hann kvæntist þrisvar sinnum, eignaðist sex börn og tveir sona hans, Uday og Qusay, þóttu engir eftirbátar hans í grimmdinni. Þeir féllu fyrir byssukúlum bandarískra hermanna árið 2003. Víða í heimi araba og múslíma naut Saddam Hussein óblandinnar aðdáunar fyrir að standa uppi í hár- inu á bæði Ísrael og Bandaríkjun- um. Frá upphafi stefndi hann að því að gera Írak að forystulandi í Mið- Austurlöndum en náði þó aldrei því markmiði. Þrjú meiriháttar stríð og harðar refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna hafa gengið nærri írösku þjóðinni á valdatíð Saddams. Fyrst áttu Írakar í stríði við nágrannaríkið Íran árin 1980 til 1988. Árið 1990 hófst síðan Persaflóastríðið við Bandaríkja- menn, sem réðust inn í Írak eftir að Írakar höfðu ráðist inn í Kúveit. Í framhaldi af því stríði voru lagðar þungar efnahagslegar refsiaðgerð- ir á Íraka sem lömuðu allt þjóðlíf, þar á meðal alla heilbrigðisþjónustu og verslun. Á síðustu árum, meðan áhrifa refsiaðgerðanna gætti hvað mest, tók Saddam Hussein hins vegar upp á því að skrifa skáldsögur, hefur samið fjórar slíkar og kom sú fyrsta út árið 2000 en þá síðustu er hann sagður hafa lokið við í mars árið 2003, fáeinum dögum áður en bandarískir hermenn réðust inn í landið. Hún kom svo út í Japan fyrir skömmu. Það var síðan í mars árið 2003 sem Bandaríkjamenn og Bretar réðust inn í Írak undir því yfirskini að þar væri að finna gereyðingar- vopn sem heiminum stafaði hætta af. Ekkert reyndist hæft í því en sú styrjöld hefur kostað hundruð þús- unda Íraka lífið og með henni lauk jafnframt valdaferli einræðisherr- ans illræmda, sem nú hefur verið tekinn af lífi. Saddam Hussein ríkti í aldarfjórðung Fyrrverandi einræðisherra Íraks hefur verið tekinn af lífi, þremur árum eftir að bandarískir hermenn fundu hann í felum í neðanjarðarskýli skammt frá Tikrit. Saddam Hussein, fyrrver- andi forseti Íraks, var tekinn af lífi fyrir sólarupprás í gærmorgun, 69 ára að aldri. Fyrir tæpum tveimur mánuðum var Saddam fundinn sekur af írösk- um dómstólum fyrir þátt sinn í dauða 148 sjía-múslíma frá Dujail. Hæstiréttur hafnaði áfrýjun hans og skipaði að hann yrði tekinn af lífi innan þrjátíu daga. Réttarhöld yfir honum vegna þjóðarmorðs á Kúrd- um munu líklega halda áfram þrátt fyrir aftökuna. Saddam var svartklæddur og hélt á Kóraninum þegar hann gekk sín seinustu skref í fylgd með írösku böðlunum. Hann hafnaði boði þeirra um að fá hettu yfir höfuðið. „Allah er mikill, þjóðin mun sigra og Palestína er arabaríki,“ hrópaði Saddam þegar snaran var sett um háls hans. Einræðisherrann virtist rólegur á sinni hinstu stundu við gálgann. Talið er að Saddam verði jarð- settur nálægt heimabæ sínum, Tik- rit, á næstunni. „Hann óskaði einsk- is,“ sagði al-Askari. „Hann vildi að Kóraninn sem hann hélt á yrði afhentur manni að nafni Bander.“ Saddam hengdur fyrir sólarupprásrás Að minnsta kosti 46 Írak- ar létust í sprengingum í Írak í gær. Einni sprengju hafði verið komið fyrir í sendiferðabíl á fisk- markaði í hverfi sjía-múslíma í bænum Kufa, suður af Bagdad. Maðurinn sem sakaður var um að hafa lagt bifreiðinni var króað- ur af og drepinn af trylltum múg þegar hann gekk burt frá spreng- ingunni. Önnur sprenging olli dauða 15 óbreyttra borgara og særði 25 í öðru hverfi í Bagdad. Ekki er víst að árásirnar hafi verið bein afleiðing aftöku Sadd- ams Hussein, en ein helsta hátíð sjía-múslíma, Eid al-Adha, er gengin í garð og fjöldi manns var á ferli að kaupa inn fyrir fjögurra daga hátíðahöld. Búist var við miklum átökum í kjölfar aftökunnar, en ofbeldi hefur ekki færst í aukana síðan Saddam var tekinn af lífi, en nokk- uð var um friðsamleg mótmæli. Bandaríkjaher tilkynnti í gær um dauða fimm hermanna, en dauðsföll bandarískra hermanna í Írak í mánuðinum eru orðin 108 talsins. Fleiri bandarískir her- menn hafa nú látist í desember en í nokkrum öðrum mánuði ársins. Alls hafa að minnsta kosti 2.997 bandarískir hermenn lát- ist frá upphafi stríðs í mars árið 2003. Að meðaltali hafa 76 Írakar látist á dag í átökum í desember- mánuði, samkvæmt talningu AP fréttastofunnar. Veist þú hvar Stykkishólmur er? Horfir þú á áramótaskaupið? „Palestína er arabaríki,“ voru seinustu orð Saddams Hussein áður en hann var tekinn af lífi í gærmorgun. Fjöldi Palestínumanna er harmi sleginn yfir andláti fyrrverandi Íraksforseta, en hann var einn þeirra helsti bandamaður í frelsisbaráttunni. „Við heyrðum af píslarvættis- dauða hans og ég sver til guðs að ég var djúpt hrærður,“ sagði Khadejeh Ahmad í Qadora- flóttamannabúðunum á Vestur- bakkanum. Saddam studdi við Palestínu- menn á margvíslegan hátt, til dæmis með fjárútlátum til fjölskyldna fallinna hermanna og sjálfsmorðsárásarmanna. Harmi slegnir yfir aftökunni Múammar Gaddafi, leiðtogi Líbýu, lýsti í gær yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna aftöku Saddams Hussein og afboðaði öll hátíðarhöld vegna helgihá- tíðar múslíma Eid al-Adha. Fánar landsins voru einnig dregnir í hálfa stöng. Í fyrradag hafði Gaddafi lýst því yfir að réttarhöldin yfir Saddam hefðu verið ólögleg og að hann hefði átt að svara til saka fyrir alþjóðlegum dómstól. Abdul-Kader Bajammal, forsætisráðherra Yemen, tók í sama streng og biðlaði til Banda- ríkjaforseta að þyrma lífi Saddams. Fánar í hálfa stöng í Líbýu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.