Fréttablaðið - 31.12.2006, Side 26

Fréttablaðið - 31.12.2006, Side 26
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Edison sýnir ljósaperuna Gaspur er hvimleiður fylgifiskur hins opna samfélags. Hjálparsveit skáta í Reykjavík var fyrst hjálpar- og björgunarsveita á landinu til að hefja flugeldasölu. Eirík- ur Karlsson var nýgenginn í hjálpar- sveitina þegar salan hófst árið 1968 og hefur komið að henni á hverju ári síðan. „Ég stóð við búðarborðið til að byrja með en hef svo komið að ýmsu öðru. Síðustu árin hefur hópurinn minn séð um auglýsingaskiltin,“ sagði Eirík- ur. Eiríkur segir hjálparsveitina hafa rennt nokkuð blint í sjóinn með flug- eldasöluna til að byrja með. „Hjálpar- sveitin tók yfir rekstur Skátabúðar- innar þetta haust. Það var ákveðið að fara að selja flugelda og við byrjuðum af mikilli bjartstýni, að okkur fannst,“ sagði hann. „Þessu var stillt út í búð- ina, og svo sáum við það fljótlega að þetta myndi seljast upp,“ sagði Eirík- ur. Leitað var logandi ljósi að fleiri flugeldum, en á þessum tíma voru flugeldaverksmiðjur á Akranesi og í Garðabæ. „Þetta endaði á því að það sem seldist ekki komst fyrir í einum skókassa,“ sagði Eiríkur. Á þessum tíma segir Eiríkur það fyrst og fremst hafa verið verslanir á borð við Geysi, Ellingsen og Segla- gerðina Ægi sem seldu flugelda. „Þær búðir voru allar að selja neyðarblys og rakettur fyrir skip og báta og voru þess vegna með tengslin sem til þurfti,“ sagði hann. Í dag eru hjálpar- og björgunarsveitir hins vegar ansi stór hluti af markaðnum. „Íþróttafé- lögin hafa líka verið með sölu í gegn- um tíðina, og svo hafa ýmsir einkaaðil- ar skotið upp kollinum. Sumir hafa verið í stuttan tíma og aðrir hafa enst lengur og oft á tíðum verið mjög agressífir og að okkur finnst óbilgjarn- ir,“ sagði Eiríkur, en flugeldasalan er afar mikilvægur liður í fjáröflun hjálp- arsveitarinnar sem byggir rekstur sinn alfarið á sjálfsaflafé. Eiríkur segir skotgleði landsmanna hafa tekið stakkaskiptum frá því að hann seldi fyrsta flugeldinn. „Eigum við ekki bara að segja að þetta sé eins og svart og hvítt,“ sagði hann og hló. „Ég veit ekki hvers konar mælikvarða maður ætti að nota á þetta, en ég myndi segja að þá hefðu flestir reynt að ná sér í eina rakettu, eitt blys og stjörnu- ljós fyrir börnin. Það voru fáir sem skutu miklu og engar tívolíbombur eða tertur til. Það voru bara rakettur með priki og stjörnuljós,“ sagði hann. Flugeldasala Hjálparsveitar skáta stendur yfir til 16 í dag. Móðir mín, amma og langamma, Kristjana Ragnheiður Ágústsdóttir frá Búðardal, sem andaðist á Landspítala - háskólasjúkrahúsi föstudaginn 23. desember, sl. verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju 2. janúar nk. kl. 13.00. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Fyrir hönd aðstandenda, Elísabet Magnúsdóttir, Íris Hrund Grettisdóttir, Magnús Þór Guðmundsson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, María Sigmundsdóttir lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni 23. desember. Útförin fer fram frá Digraneskirkju mið- vikudaginn 3. janúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Ásgeir J. Guðmundsson Sigmundur Ásgeirsson Kristín Ottesen Guðmundur Ásgeirsson Helga Ólafsdóttir Þóra Ásgeirsdóttir Þorvaldur Gíslason Ásgeir J. Ásgeirsson Berglind Harðardóttir barnabörn og barnabarnabarn.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.