Fréttablaðið - 31.12.2006, Síða 45

Fréttablaðið - 31.12.2006, Síða 45
MÁ BJÓÐA ÞÉR NÝTT STARF Á NÝJU ÁRI ? www.hugurax.is Hugbúnaðarsérfræðingur starfar á viðskiptalausnasviði fyrirtækisins og annast þarfagreiningu, hönnun, forritun, ráðgjöf og innleiðingu á Microsoft Dynamics AX viðskiptahugbúnaði. Fjöldi áhugaverðra verkefna eru fyrirliggjandi. Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði, viðskiptafræði eða sambærilega menntun. Reynsla af forritun og innleiðingu á Microsoft Dynamics kerfum er nauðsynleg. Áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð, metnað til árangurs, lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hópi. Í boði er áhugavert starf fyrir öflugan og metnaðarfullan einstakling. HUGBÚNAÐARSÉRFRÆÐINGUR MICROSOFT DYNAMICS AX Sölu- og markaðsráðgjafi hefur umsjón með söluverkefnum á Ópusallt.NET viðskiptalausn, sem hefur í áratugi verið ein vinsælasta viðskiptalausn landsins, kynningum og tilboðsgerð auk þess að annast gerð og frágang samninga. Hann tekur þátt í áætlanagerð auk þess að sjá um gerð og viðhald markaðsefnis. Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi marktæka reynslu á sviði sölu- og markaðsmála, þekkingu á sviði viðskiptalausna og háskólamenntun er nýtist í umræddu starfi. Áhersla er lögð á gott vald á íslensku í ræðu og riti, fagleg og skipuleg vinnubrögð, hæfni í mannlegum samskiptum og metnað til árangurs í starfi. Í boði er áhugavert starf, sem krefst frumkvæðis og sjálfstæðis, en um þessar mundir er að hefjast dreifing og sala á nýrri kynslóð Ópusallt, sem byggir á nýjustu tækni í hugbúnaðargerð. SÖLU- OG MARKAÐSRÁÐGJAFI ÓPUSALLT Verkefnastjóri / ráðgjafi veitir stjórnendum íslenskra fyrirtækja ráðgjöf er varðar lykiltölur reksturs, greiningu og framsetningu upplýsinga til ákvarðanatöku um rekstur fyrirtækja. Hann annast einnig verkefnastjórn í innleiðingarverkefnum fyrir stjórnendaupplýsingalausnir. Verkefnastjóri / ráðgjafi tekur jafnframt þátt í verkefnaöflun og áframhaldandi uppbyggingu þessa sviðs innan HugarAx. Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi haldbæra reynslu og þekkingu á sviði fjármála, reksturs, áætlanagerðar og upplýsingatækni. Háskólamenntun er skilyrði og framhaldsmenntun kostur. Áhersla er lögð á sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð, marktæka innsýn á sviði viðskipta- og markaðsmála, skilvís vinnubrögð, styrk í mannlegum samskiptum og metnað til framkvæmda. Í boði er afar áhugavert starf fyrir metnaðarfullan og áhugasaman einstakling, sem vill öðlast þekkingu á Cognos hugbúnaðinum og reynslu til að geta beitt þeim lausnum til að fullnægja þeim kröfum er gerðar eru til upplýsinga, skýrslugerðar og greiningar. VERKEFNASTJÓRI / RÁÐGJAFI Á SVIÐI COGNOS VIÐSKIPTAGREINDAR OG STJÓRNENDAUPPLÝSINGA Ráðgjafar á sviði orkulausna sinna krefjandi verkefnum fyrir raforkufyrirtæki á Íslandi, en HugurAx hefur um árabil verið samstarfsaðili íslenskra orkufyrirtækja. Verkefnin snúa að ráðgjöf og verkefnastjórnun varðandi ýmsa þætti í starfsemi raforkufyrirtækja, s.s. ferlið frá mælingu að reikningagerð, utanumhald mæligagna, ferlagreiningar og skeytasamskipti. Störfin krefjast mikils samstarfs við sérfræðinga erlendis og fer þekkingaruppbygging og þjálfun að hluta til fram erlendis. Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi háskólapróf á sviði verk- eða tæknifræði, tölvunar- eða kerfisfræði og/eða viðskiptafræði. Framhaldsmenntun er æskileg. Þekking á raforkugeiranum er kostur ásamt marktækri þekkingu og reynslu á sviði tölvu- og upplýsingatækni. Áhersla er lögð á góða samskiptahæfileika, sjálfstæð og fagmannleg vinnubrögð, áhugasemi og metnað til árangurs í starfi. RÁÐGJAFAR Á SVIÐI ORKULAUSNAHugurAx er eitt af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði hugbúnaðargerðar, hugbúnaðarþróunar og innleiðingu hugbúnaðarlausna. Fyrirtækið sinnir bæði stórum og smáum fyrirtækjum í flestum atvinnugreinum landsins. Hjá HugAx starfa nú yfir 130 starfsmenn. HugurAx býður starfsmönnum sínum úrvals starfskjör og möguleika á að þroskast og þróast í starfi. Höfuðstöðvar HugarAx eru í nýju og glæsilegu húsnæði að Guðríðarstíg í Grafarholti í Reykjavík, þar sem kappkostað hefur verið að gera vinnuaðstöðu starfsmanna eins vel úr garði og kostur er. HugurAx rekur jafnframt starfsstöðvar á Akureyri, Egilsstöðum og í Vestmannaeyjum. – Umsóknarfrestur er til og með 12. janúar nk., vinsamlega athugið að fyrirspurnum verður eingöngu svarað hjá STRÁ MRI, Suðurlandsbraut 6, sími 588 3031, www.stra.is. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Guðný Harðardóttir og Hrund Þorgeirsdóttir hjá STRÁ MRI veita nánari upplýsingar, en viðtalstími er frá kl. 13-15. Vinsamlega sendið eigin starfsferilskrár til stra@stra.is ásamt viðeigandi prófgögnum. – –
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.