Fréttablaðið - 31.12.2006, Side 80

Fréttablaðið - 31.12.2006, Side 80
Maðurinn er berfættur og á boln- um í köldu haustmyrkrinu; andlitið er skelft og augun þanin. Ég þekki hann ekki, rétt kannast við hann, brosmilt andlitið, hann vill inn. Ég er í maníu, geturðu gefið mér að borða? stynur hann upp. Ég býð honum inn, geng á eftir honum upp, set hann niður, ber í hann mjólk, brauð álegg: hann gleypir matinn eins og krakki sem er að flýta sér út í leik; svona er bráðahungrið, hugsa ég. Við segj- um fátt. Viltu ekki fara á deildina? spyr ég. Kannski eftir nóttina, segir hann, stendur upp, réttir mér hönd og fer: hverfur niður og út í myrk- ur kvölds og sálar. Ógnir og töfrar útisetunnar eru fæstum kunnuglegir en væru öllum hollir. Svarti hundurinn sest ein- hverntíma að í flestum, þó fólk almennt þekkist hann ekki. Skipan rökleysunnar, andhverfan, er með nokkrum hætti könnuð á slóð ungu stúlkunnar í sviðsetningu Bene- dikts Erlingssonar á leikverki Ant- ony Neilson; framandleikinn í fyrstu, svo grimmdin, götótt til- vera þráhyggjunnar: höfundurinn notar sögu Carroll af Lísu í Undra- landi sem kort, stikar sig eftir henni, en á algerlega nútímalegan hátt. Stúlkan er miðja, einhvers- konar núllpunktur, allt hverfist um hana, hún er við og við hún. Rök- semdir hennar fluttar á okkur á kænlegan hátt. Gamansemi geðveikinnar, hvernig rökin snúast öll, verða okkur lengi framanaf á sýningunni skemmtiefni – ó-öryggisverðirnir og gátlistar þeirra afhjúpa á kostu- legan hátt fáranleika nýja reglu- verksins í millilandaflugi – sjónar- hornið er skondið á skjön. Áhorfendur skemmtu sér vel á frumsýningu: einkum eru það sjömenningarnir sem mörg hlut- verk leika sem fara á kostum í þess- ari sýningu, leikmátinn er afar tempraður og stilltur en hnitaður og fjölbreytilegur – flott frammi- staða LR. Þessu lágstemmda temp- ói er síðan haldið áfram í hinum óumflýjanlega þriðja þætti verks- ins. Ilmur er ekki síðri, en hún speglar meira en gerir sem er list út af fyrir sig. Allt umhverfi verksins er sett inn í enn einn hvíta kassann eftir Gretar Reynisson, að þessu sinni ofanbyggðan ljósalofti. Eins og oft- ast áður heldur hvít líkingin, nú lyfturými, frábærlega um óstýri- látan heim verksins, Gretar er studdur í sínu verki af glæsilegri ljósa- og hljóðvinnu þeirra Halldórs Arnar og Ólafs Thoroddsen. Allt umhverfi leiksins er markað hrein- legum stíl, en sundurlausum, sem rímar við klíniska endastöðina á ferð Lísu: búningar Helgu Stefáns, gervi Sigríðar Rósu. Það er topp- vinna í þeirri deildinni. Sviðsetning Benedikts er víðast hvar vel heppnuð og því hugsuð – þó sviðsetningar beri jafna í sér einhvern vott af glópaláni. Það dett- ur niður kraftur í nokkrum atriða fyrri hluta hans, meðal annars vegna þess að samtöl verða óskýr – það ræðst af lokun á hljóðrými í kassanum: Hrokafullir leikstjórar geta svo sem gefið skít í að það heyrist í sýningum þeirra manns- ins mál – en flestir áhorfendur vilja heyra hvað sagt er. Og borga fyrir það. Og þegar samtölin eru að auki órökvís og þvælukennd er þess mikilvægara að haldið sé um það. Það er hollráð í æfingum í leikmynd sem þessari að láta leikmyndahöf- undinn alltaf sitja í ystu sætum rað- anna. Bæði fyrir hann og sýning- una. Sálarháskinn sem við lifum öll við, þó mörg okkar haldi sig fjarska normal, er viðvarandi mannlegt mein. Við getum ekki lokað hann úti – hann er allt um kring um okkur: sjáið bara maníuna í græðg-ina sem flestir útrásarmennirnir eru haldn- ir af. Þráhyggjuna í stjórnmálalíf- inu. Allt sem gert er til að upplýsa okkur um útisetuna er til góða. Þetta er falleg sýning, samstillt, skopleg, grimm og grátleg. Tveggja heima sýn og allra átta Kristinn Sigmundsson óperu- söngvari syngur á árlegum hátíð- artónleikum í Hallgrímskirkju síðdegis í dag. Með honum leika Hörður Áskelsson orgelleikari og trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson sem skipa sveit er þeir kalla Trompeteria. Á efnisskránni eru bassaaríur úr Messíasi og Jólaóratoríunni auk verka eftir Bach og Albinoni. Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur að tónleikunum en félags- skapur sá fagnar 25 ára starfsaf- mæli sínu um þessar mundir. Tón- leikarnir hefjast kl. 17. Árið kvatt með söng Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00. SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur Lau. 6/1 kl. 11:00 uppselt, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 14/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt. Kúlan Smíðaverkstæðið kl. 20:00 PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker. Lau. 6/1 nokkur sæti laus, fös. 12/1 kl. 16:30 nokkur sæti laus, lau. 13/1 örfá sæti laus, lau. 20/1. Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis. Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is. STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter Lau. 6/1, lau. 13/1 nokkur sæti laus, lau. 20/1, lau. 27/1. SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson. Lau. 6/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00, lau. 13/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 20/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 21/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus. BAKKYNJUR eftir Evrípídes 4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 5/1 örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 11/1 örfá sæti laus, 7. sýn. fös. 12/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fim. 18/1. Stóra sviðið kl. 20:00 fl group er aðalstyrktaraðili sinfóníuhljómsveitar íslands SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS græn tónleikaröð í háskólabíói Hljómsveitarstjóri ::: Christopher Warren-Green Einsöngvari ::: Þóra Einarsdóttir MIÐVIKUDAGINN 3. JANÚAR KL. 19.30 LAUS SÆTI Vínartónlist eftir Johann Strauss yngri, Johann Strauss eldri, Carl Millöcker og Richard Heuberger Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar eru í huga margra jafn ómissandi hluti af því að fagna nýju ári og flugeldar og brennur. Líklega verður uppselt á Vínartónleika venju samkvæmt og því er ráðlegt að tryggja sér miða í tíma á www.sinfonia.is tónleikar utan raða í háskólabíói FIMMTUDAGINN 4. JANÚAR KL. 19.30 LAUS SÆTI FÖSTUDAGINN 5. JANÚAR KL. 19.30 ÖRFÁ SÆTI LAUS LAUGARDAGINN 6. JANÚAR KL. 17.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS Vínartónleikar 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.