Fréttablaðið - 31.12.2006, Side 86

Fréttablaðið - 31.12.2006, Side 86
 Þrátt fyrir að skora 58 stig tókst Kobe Bryant og félögum hans í Los Angeles Lakers ekki að leggja Charlotte Bobcats að velli í NBA-deildinni í körfubolta í fyrrinótt. Leikur- inn var æsispennandi en í þrí- gang þurfti að framlengja viður- eignina sem lauk með 133-124 sigri Charlotte í sannkölluðum maraþonleik. „Áhorfendur fengu að sjá Kobe Bryant upp á sitt besta en að okkur hafi tekist að stöðva hann og vinna leikinn að lokum er stórkostlegt,“ sagði Gerald Wallace, leikmaður Charlotte, en hann var stigahæsti leikmaður þeirra með 28 stig. „Mig langar ekkert inn í bún- ingsherbergið,“ sagði hundfúll og örþreyttur Bryant eftir leik- inn. LeBron James skoraði 32 stig fyrir Cleveland sem vann Mil- waukee 109-99 og þá vann Wash- ington sinn fimmta leik í röð eftir nauman sigur á Orlando, 112-111. 10.September nk. 58 stig Bryants dugðu ekki Mikil rigning setti svip sinn á leikina á Englandi í gær, þá sér í lagi í London þar sem aðstæð- ur voru erfiðar og á Vicarige Road þurfti að flauta af leik Watford og Wigan vegna vatnselgs. Moritz Volz skoraði mark númer 15.000 í ensku úrvalsdeild- inni þegar hann kom Fulham yfir gegn Chelsea á Stamford Bridge. Frank Lampard jafnaði, Didier Drogba kom Chelsea yfir en á lokamínútunum náði Carlos Bocanegra að jafna metin og þar við sat, 2-2 jafntefli á Brúnni. „Ég verð að hrósa Fulham fyrir það hvernig þeir brugðust við eftir að hafa lent undir. Þeir vita að við gátum ekkert varist og því sóttu þeir á okkur, svo einfalt er þetta. Þetta er sama sagan fyrir okkur. Þegar lið sjá okkur gera mistök trúa þau að þau geti skorað mörk. Við erum búnir að fá á okkur tvö mörk, fjóra leiki í röð og það kemur mér ekkert á óvart,“ sagði Jose Mourinho, stjóri Chelsea, en greinilegt er að liðið saknar fyrir- liðans John Terry sárlega en hann er frá vegna meiðsla. „Þetta er frábært stig fyrir okkur og mér fannst frammistaða okkar á heildina litið vera frábær. Það er ekki hægt að biðja um meira en þetta af leikmönnunum,“ sagði Chris Coleman, stjóri Ful- ham. Manchester United er þar með komið með sex stiga forskot á Chelsea eftir 3-1 sigur á Reading. Cristiano Ronaldo skoraði tvívegis, mörk númer ellefu og tólf hjá honum í deildinni, Ole Gunnar Sol- skjær eitt en Ibrahima Sonko jafn- aði metin fyrir Reading og Leroy Lita minnkaði muninn á lokamínút- unum. Ívar Ingimarsson og Brynj- ar Björn Gunnarsson spiluðu báðir allan leikinn fyrir Reading. „Þetta var góður sigur en fæð- ingin var virkilega erfið. Reading átti góðan leik og við þurftum að hafa okkur alla við en að landa þrem stigum skipti mestu máli á endanum,“ sagði Alex Ferguson sem hrósaði Ronaldo svo í hástert. „Strákurinn hefur verið algjörlega magnaður undanfarið. Hann á hrós skilið og skilaði sínu hlutverki óað- finnanlega í þessum leik.“ Liverpool landaði þremur stig- um á White Hart Lane gegn Tott- enham, Luis Garcia skoraði eina markið undir lok fyrri hálfleiks en þrátt fyrir að pressa mikið undir lokin tókst Tottenham ekki að jafna metin. „Þetta var frábær frammistaða hjá okkur. Eftir tapið gegn Black- burn þurftum við að sýna karakt- er og það tókst í þessum leik. Við spiluðum vel í fyrri hálfleik og skoruðum á mjög góðum tíma. Tot- tenham setti okkur undir pressu undir lokin en vinnusemin í leik- mönnunum var frábær,“ sagði sig- urreifur Rafael Benítez, stjóri Liverpool, í leikslok. Charlton vann langþráðan sigur þegar það lagði Aston Villa að velli á heimavelli. Hermann Hreiðars- son var mikið í sviðsljósinu í leikn- um en hann braut á Gareth Barry innan vítateigs, Barry skoraði sjálfur úr spyrnunni áður en honum var vikið af velli í síðari hálfleik fyrir ljótt brot. Darren Bent jafn- aði metin með skalla og allt leit út fyrir jafntefli áður en Bryan Hug- hes tryggði Charlton sigurinn eftir skalla frá Hermanni. Sheffield United vann ótrúleg- an sigur á Arsenal þar sem Christi- an Nate skoraði eina markið. Paddy Kenny, markmaður Sheffi- eld þurfti að fara af velli og varn- armaðurinn Phil Jagielka stóð í markinu það sem eftir lifði leiks þar sem liðið var ekki með vara- markmann á bekknum. Hann stóð sig frábærlega þegar hann var kallaður til og Sheffield landaði þremur góðum stigum. Chelsea missteig sig annan leikinn í röð í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar meistararnir náðu aðeins jafn- tefli gegn Fulham. Manchester United heldur sínu striki og vann Reading og Liverpool vann Tottenham. Iceland-Express deild kk: Enska úrvalsdeildin: Létum jólamatinn ekki hindra okkur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.