Fréttablaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
FIMMTUDAGUR
18. janúar 2007 — 17. tölublað — 7. árgangur
Smáauglý i
Helen hefur breiðan fatasmekk en dregur línuna við
skófatnað kúasmala.
Helen Svava Helgadóttir hefur lengi haft áhuga á tísku.
Hún hefur gaman af því að kaupa sér vandaðan fatnað en
verslar yfirleitt bara í einni búð í Reykjavík - Kron Kron.
„Mér finnst vanalega bara fínustu fötin þar og er alltaf
ánægðust eftir að hafa verslað í Kron Kron,“ segir hún.
Kjólinn sem Helen klæðist á myndinni er keyptur í Kron
Kron og skórnir líka en þeir eru hannaðir af Vivienne West-
wood, sem er einn af uppáhaldshönnuðum hennar.
Helen Svava fylgist almennt vel með því sem er að ger-
ast í tískuheiminum, bæði í umhverfi sínu og fjölmiðlum.
„Ég fletti blöðum, tek eftir þessu í sjónvarpi og úti á götu,“
segir hún og hvað varðar flottar konur sem hún tekur sér-
staklega eftir nefnir Helen fyrirsætuna Kate Moss og leik-
konuna Chloë Sevigny. „Þær eru báðar mjög flottar og til
fyrirmyndar og Hugrún sem á Kron Kron er alltaf tipp-
topp.“
Fatasmekkur Helenar er breiður, en hún dregur þó lín-
una við kúrekastígvél og segir að hún myndi aldrei ganga í
slíkum skófatnaði. „Og þó... ég þarf að passa mig á því
hvaða yfirlýsingar ég kem með vegna þess að oftast þegar
ég hef sagt eitthvað svona þá fer ég flíkina næsta dag,“
segir hún og hlær. Maðurinn skapar fötin og fötin skapa manninn. Helen
segist yfirleitt klæða sig eftir líðan og kýs fremur að vera
„þunglynd“ í fínum kjól heldur en stórri hettupeysu. „Ef
mig langar að komast í einhverja ákveðna líðan þá get ég
klætt mig eftir því og ég held að það sé miklu skemmtilegra
að vera fallega klædd í þunglyndiskasti heldur en að vera
púkaleg. Það virkar í það minnsta betur svona út á við.“
Aldrei í kú-rekastígvél
HELEN SVAVA HELGADÓTTIR
Vill aldrei fara
í kúrekastígvél
Tíska Heilsa Heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Þegar Svíar höfnuðu evrunni
„Hvað gekk Svíum til? Var þetta
uppreisn almennings gegn
yfirgangi stjórnmálaflokka og
hagsmunasamtaka? – líkt og þegar
Norðmenn höfnuðu aðild að ESB
í tvígang gegn tilmælum helztu
stjórnmálaflokka þar. Kannski,“
segir Þorvaldur Gylfason.
Í DAG 28
[ SÉRBLAÐ UM HM Í HANDBOLTA – FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2007 ]
Strákarnir okkar á HM
Áttleysi og útþrá
Kristinn E. Hrafnsson
myndlistarmaður
sýnir í gallerí i8.
MENNING 40
STJÓRNMÁL Samningar hafa tekist
um viðskipti með landbúnaðar-
afurðir milli Íslands og Evrópu-
sambandsins.
Samningarnir byggja að megin-
efni á samkomulagi sem náðist í
lok árs 2005 og taka átti gildi um
síðustu áramót. Í kjölfar ákvörð-
unar ríkisstjórnarinnar um
aðgerðir til að lækka matvælaverð
var ákveðið að fresta gildistöku
samkomulagsins og freista þess
að ná fram hagstæðari samningi.
Að mati stjórnvalda hefur það tek-
ist. „Ég held að þetta sé skref í þá
átt að lækka matarverð og tel
ánægjulegt hve skamman tíma
samningaviðræðurnar tóku,“ segir
Valgerður Sverrisdóttir utanríkis-
ráðherra.
Helsta nýmæli í samningnum
er að Ísland lækkar tolla á kjöti og
kjötafurðum um allt að fjörutíu
prósent og heimilar tollfrjálsan
innflutning á samtals tæplega 800
tonnum af tilteknum búvörum. Þá
var samið um tollfrjálsan útflutn-
ing íslenskra búvara (skyr, smjör
og pylsur) til Evrópusambands-
ríkja upp á samtals rúm 800 tonn.
Áður hafði samist um útflutning á
1.850 tonnum af lambakjöti.
Valgerður Sverrisdóttir telur
að sóknarfæri fyrir íslenskan
landbúnað felist í samningnum og
horfir þar helst til ákvæðanna um
útflutning á skyri og smjöri.
„Skyrið er að gera stormandi
lukku og það er mikið talað um
hve gott íslenska smjörið er.“ Um
leið telur hún athyglisvert að Evr-
ópusambandið sé reiðubúið að
heimila innflutning á smjöri því í
ríkjum þess sé til nægt smjör. Val-
gerður segir að vinna þurfi að
markaðssetningu íslenskra búvara
í Evrópu enda gerist ekkert af
sjálfu sér í viðskiptaheiminum.
Kvótar á innfluttum búvörum
verða boðnir út. Spurð hvort ekki
sé ástæða til að óttast að sam-
keppni innflytjenda leiði til þess
að hátt gjald þurfi að greiða fyrir
kvótana, sem svo leiði til hærra
verðlags, segist Valgerður meðvit-
uð um að svo kunni að fara. „Þetta
er eitt af því sem er umdeilt, ég
geri mér grein fyrir því. En þetta
er niðurstaðan.“
Samningurinn á að taka gildi 1.
mars og er stefnt að undirritun í
febrúar.
bjorn@frettabladid.is
Búvörutollar lækka
um allt að 40 prósent
Tollar á kjöti og kjötafurðum frá ríkjum Evrópusambandsins lækka um allt að
40 prósent og liðkað er fyrir útflutningi valinna búvara til Evrópu. Samkomu-
lag Íslands og framkvæmdastjórnar ESB um tollamál hefur verið staðfest.
BT bæklingur fylgir Fréttablaðinu í dag
Létt súrmjólk
með skógarberjum
Nýjung
!
VINDASAMT - Norðaustan
13-20 austan til nú í morgunsárið
með snjókomu. 8-15 m/s annars
staðar. Él á landinu norðanverðu en
nokkuð bjart veður suðvestan til.
Frost 0-10 stig, kaldast til landsins.
VEÐUR 4
Foreldrar frumsýnd
Nanna Kristín
Magnúsdóttir og
Ragnar Bragason
segja að kvikmyndir
eigi að segja frá
lykilaugnablikum í lífi
fólks. BÍÓ 44
HELSTU ÁKVÆÐI
SAMKOMULAGSINS
■ Fullt tollfrelsi verður í viðskiptum
Íslands og ESB með hesta, hrein-
dýrakjöt, tómata, agúrkur og vatn.
■ Fullt tollfrelsi í viðskiptum með
blóm og plöntur, þar með talin jóla-
tré (ekki afskorin blóm eða potta-
plöntur undir 1 metri á hæð).
■ Ísland lækkar tolla á kjöti og kjöt-
afurðum um allt að 40% í 2. kafla í
tollskránni.
■ Tollar af frosnu grænmeti verða
felldir niður.
Boðnir verða út kvótar á innflutningi
á eftirtöldum vörum tollfrjálst:
100 tonnum af nautakjöti
200 tonnum af svínakjöti
200 tonnum af alifuglakjöti
50 tonnum af pylsum
50 tonnum af unnum kjötvörum
50 tonnum af skinku
100 tonnum af kartöflum
20 tonnum af rjúpum
100 tonnum af ostum
Boðnir verða út kvótar á útflutningi
á eftirtöldum vörum tollfrjálst:
1.850 tonnum af lambakjöti
380 tonnum af skyri
30 tonnum af smjöri
100 tonnum af pylsum
SÉRSVEITARMENN Í MOSKVU Rússar hertu viðbúnaðarstig gegn hryðjuverkum í gær og sendu meðal annars þessa sérsveitar-
menn út af örkinni í Moskvu. Þarna sjást þeir athafna sig skammt frá Rauða torginu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
RÚSSLAND, AP Löggæsluyfirvöld í
stærstu borgum Rússlands
stórefldu öryggiseftirlit í gær,
einkum á flugvöllum, lestar-
stöðvum og öðrum umferðar-
miðstöðvum. Fólk sem var á
ferli var hvatt til þess að vera á
varðbergi vegna hugsanlegrar
hættu á hryðjuverkaárás.
Í Moskvu, þar sem síðast var
gerð mannskæð hryðjuverka-
árás árið 2004, var gripið til
þess óvenjulega ráðs að slökkva
á farsímasendum í jarðlesta-
kerfinu. Tilgangurinn virðist
hafa verið að hindra að hægt
væri að nota farsíma til að
sprengja sprengju sem kynni að
hafa verið komið þar fyrir.
Í árásinni árið 2004 urðu
tvær sprengjur yfir fimmtíu
manns að bana. - aa
Meint hryðjuverkaógn:
Moskvubúar
varaðir við
AUKABLAÐ UM HM Í HANDBOLTA
Strákarnir okkar í
Þýskalandi
Allt um HM í handbolta
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
LÖGREGLUMÁL Rúmlega fertugur
síbrotamaður, Garðar Garðarsson,
var handtekinn af lögreglu á Litla-
Hrauni síðasta föstudag.
Hæstiréttur hafði fellt gæslu-
varðhaldsúrskurð yfir manninum
úr gildi klukkan fjögur þann dag
en honum hafði ekki verið sleppt
þegar hann var handtekinn nokkr-
um klukkustundum síðar.
Klukkan 19.50 á föstudagskvöld
dæmdi síðan héraðsdómur mann-
inn í gæsluvarðhald á ný. Upphaf-
legi úrskurðurinn var felldur úr
gildi á þeim forsendum að forræði
málsins hefði færst til ríkissak-
sóknara og lögreglustjóri væri því
ekki bær til að krefjast gæslu.
Hilmar Ingimundarson, hæsta-
réttarlögmaður og verjandi
mannsins, segir þessi vinnubrögð
óviðunandi. „Gæsluvarðhaldsúr-
skurðurinn hafði verið ógiltur en
samt slepptu þeir honum ekki,“
segir hann. „Þá var gripið á það
ráð að fara austur og handtaka
hann. Maðurinn var þarna í haldi
án þess að fyrir lægi löglegur
úrskurður þess efnis,“ segir hann.
Garðar var dæmdur í fimm ára
fangelsi um miðjan desember
fyrir þjófnað, skjalafals, fjársvik,
nytjastuld og brot gegn ávana- og
fíkniefnalöggjöfinni auk umferðar-
lagabrota. Dómnum hefur verið
áfrýjað til Hæstaréttar. - sþs
Gæsluvarðhald yfir síbrotamanni var fellt úr gildi en manninum ekki sleppt:
Var handtekinn á Litla-Hrauni
Aðeins leynd hjá KSÍ
Engin leynd hvílir yfir
launum formanna
HSÍ, KKÍ sem og
forseta ÍSÍ. Laun
formanns KSÍ
koma hvergi fram.
ÍÞRÓTTIR 54
VEÐRIÐ Í DAG