Fréttablaðið - 18.01.2007, Page 2
2 18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR
Spurning dagSinS
Siggi, ertu búinn að jafna þig?
„Já, ég er sæll og glaður. Þetta
reyndist bara vera stormur í vatns-
glasi. Óveðrið er gengið yfir og það
viðrar vel á sigurvegarann í þessu
máli.“
Sigurður Þ. Ragnarsson, eða Siggi storm-
ur eins og hann er kallaður, stóð fyrir
ljósmyndasamkeppni á Stöð 2. Öfundar-
raddir voru háværar um sigurmyndina og
vildu einhverjir meina að hún hefði verið
fölsuð. Rannsókn hefur leitt í ljós að svo
var ekki.
DAnMöRk, AP Fleming Rose, menn-
ingarritstjóri Jótlandspóstsins
sem átti frumkvæði að því að
birta tólf skopteikningar af
Múhameð spámanni sem síðan
ollu and-dönsku fári um gervallan
heim múslima, segist búast við
því að umræðan um sjálfsritskoð-
un í fjölmiðlum og ótta lista-
manna við að móðga íslam muni
halda áfram næstu árin.
„Teikningarnar hafa hrundið
af stað mjög mikilvægri umræðu
sem mun halda áfram árum
saman,“ sagði Rose á blaða-
mannafundi í Kaupmannahöfn í
gær í tilefni af því að ár er síðan
fárið fór af stað fyrir alvöru.
- aa
Ár frá upphafi teikningafárs:
Sjálfsritskoðun
heldur áfram
Ár frÁ fÁri Múslimar víða um heim
mótmæltu með því að brenna danska
fánann.
MIðbæRInn Almenningssalernið
Núllið í Bankastræti fær fall-
einkunn fyrir öryggismál í skýrslu
sem unnin var fyrir framkvæmda-
svið Reykjavíkurborgar.
Skýrslan var lögð fram á fundi
hjá framkvæmdasviði. Í fundar-
gerð segir að skýrslan sé „svört“
og að vinnustaðurinn fái „fall-
einkunn fyrir öryggi“ og að vilji
sé til þess að loka Núllinu.
Ekki fæst aðgangur að skýrsl-
unni um Núllið. „Við höfum ekki
vilja birta hana. Við erum að skoða
hvernig við leysum þessi mál í
Bankastrætinu og skýrslan er inn-
legg inn í það,“ segir Sighvatur
Arnarson, sviðstjóri hjá fram-
kvæmdasviði. Verði Núllinu lokað
segir Sighvatur að leysa þurfi
hlutverk þess með öðrum hætti.
Karlaklósettið á Núllinu hefur
verið sagt lokað vegna viðgerða
frá í haust en í raun er ástæðan sú
að ekkert gengur að fá starfsfólk.
Núllið mun þykja vera skjól fyrir
alls kyns undirheimastarfsemi,
jafnvel vændi og eiturlyfja-
neyslu.
Staðan varðandi almennings-
salerni í miðbænum virðist vera
fremur slæm. Jóhannes S. Kjarval,
miðborgararkitekt hjá skipulags-
sviði, segir í umsögn að mjög
brýnt sé að móta heildarstefnu í
þessum efnum:
„Hvorki getur staður kallað sig
borg, né þá menningarborg, ef
þessi þáttur borgarmenningar er
ekki leystur á viðunandi hátt og
því fer víðs fjarri í dag.“
Fyrirtækið AFA, sem rekur bið-
skýli fyrir Strætó bs., á fimm sal-
erni sem opin eru almenningi í
miðbænum, meðal annars á
Hlemmi þar sem Strætó hefur
lokað sínum salernum.
Samningur AFA við borgina
kveður á um að fyrirtækið reki
alls sex salerni en illa gengur að
finna sjötta salerninu stað.
„Undanfarið hafa menn bent hver
á annan og enginn viljað taka af
skarið,“ er haft eftir fulltrúum
AFA á fundi hjá framkvæmda-
sviði.
Skömmu eftir að eitt salerni
AFA var sett upp í Mæðragarðin-
um við Lækjargötu í vetur óskaði
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg-
arstjóri eftir því á fundi með full-
trúa AFA að salernið yrði fjarlægt.
Af því varð þó ekki enda hefur
fyrirtækið tilskilin leyfi. Skipu-
lagsráð Reykjavíkur hefur nú
óskað eftir því við mannréttinda-
nefnd borgarinnar að athuga hvort
salerni AFA séu vettvangur fyrir
ofbeldisverk og annað vafasamt
athæfi.
gar@frettabladid.is
Núllið í Bankastræti
fékk falleinkunn
Lokun á Núllinu í Bankastræti er í skoðun eftir svarta skýrslu. Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson borgarstjóri vildi að almenningssalerni sem einkafyrirtæki setti
upp í Mæðragarðinum við Lækjargötu yrði fjarlægt þrátt fyrir tilskilin leyfi.
núllið Salerni karla er lokað vegna manneklu en
bæði kynin nýta kvennasalernið.
fRéttablaðið/RÓSa
VilhjÁlmur Þ. VilhjÁlmS-
Son borgarstjórinn vildi
almenningssalerni burt úr
Mæðragarðinum.
fRéttablaðið/VilhelM
í mæðragarðinum almenningssalernið sem
staðið hefur í Mæðragarðinum frá í haust.
fRéttablaðið/RÓSa
helgi B. KÁraSon helgi
b. Þorláksson hefur starfað
í Núllinu frá 1999 og líkar
það vel. Í klefa sínum á
kvennaklósettinu hefur
helgi öryggishnapp sem
hann notaði síðast á
Þorláksmessu vegna óláta í
drukknum mönnum.
fRéttablaðið/RÓSa
sTjóRnMál Kristinn H. Gunnars-
son, þingmaður Framsóknar-
flokksins, verður ekki í framboði
fyrir flokkinn í
kosningunum í
vor.
Hann tilkynnti
þá ákvörðun í
gær.
Í yfirlýsingu
segist Kristinn
ætla að halda
ótrauður áfram
að tala fyrir þeim
sjónarmiðum sem fram á síðustu
öld hafi verið ofan á í
Framsóknarflokknum.
Kristinn sagðist í samtali við
Fréttablaðið ekki hafa tekið
ákvörðun um frekari skref en
kvaðst ætla að hugsa þau mál af
alvöru á næstunni.
Kristinn var kjörinn á þing
fyrir Alþýðubandalagið 1991 en
gekk í Framsóknarflokkinn 1999.
- bþs
Kristinn H. Gunnarsson:
Ekki í framboð
fyrir Framsókn
KriStinn h.
gunnarSSon
DóMsMál Fimm manns voru dæmdir í þriggja til
fjögurra ára fangelsi fyrir innflutning á tveimur
kílóum af mjög sterku kókaíni í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Þyngsta dóminn hlaut Elísabet
Arnardóttir, sem í dómnum er sögð hafa haft „tögl
og hagldir“ varðandi skipulagningu og framkvæmd
innflutningsins og að hlutverk hennar hefði verið
það mikilvægt að án hennar þátttöku hefði verkið
aldrei orðið að veruleika. Því þótti fjögurra ára
fangelsi hæfileg refsing.
Þrír karlmenn; Friðjón Veigar Gunnarsson, Arnar
Sindri Magnússon og Guðmundur Andri Ástráðsson,
hlutu þriggja ára dóm fyrir aðild sína að innflutn-
ingnum. Þeir voru allir taldir hafa átt stóran þátt í
skipulagningu á brotinu og átt að hafa hagnast á því.
Elva Hlín Hauksdóttir, sem er einungis 18 ára,
hlaut einnig þriggja ára fangelsisdóm en rétt þótti
að skilorðsbinda refsingu hennar þar sem þáttur
hennar var að mestu bundinn flutningi á efnunum án
þess að hún kæmi að skipulagningu innflutningsins.
Lögreglumaður sem vann að rannsókn málsins
sagði fyrir dómi að Davíð Garðarsson, sem er
eftirlýstur á alþjóðavettvangi vegna ýmissa brota,
væri grunaður um að hafa staðið að baki innflutn-
ingnum. Hann flúði land í desember 2005 og hefur
enn ekki fundist.
Við yfirheyrslur var Arnar spurður um tengsl sín
við Davíð. Sagðist hann þekkja hann en hafa engin
tengsl við hann í dag. Voru þá spilaðar hljóðritanir
úr síma hans með ætluðum samræðum hans við
Davíð. Arnar kvaðst þá ekkert hafa um þær
upptökur að segja. - þsj
Fimm manns dæmdir fyrir innflutning á tveimur kílóum af mjög hreinu kókaíni:
Lykilkona í fjögurra ára fangelsi
dæmd fyrir fíKniefnainnflutning friðjón Veigar Gunnars-
son og elva hlín hauksdóttir við aðalmeðferð málsins fyrr í
mánuðinum. fRéttablaðið/heiða
Skýli fyrir heimilslausa
finna á lóð eða hús undir gistiskýli
fyrir heimilislausa karla og heimilis-
lausar konur miðsvæðis í Reykjavík
samkvæmt tillögu sem borgarstjórn
hefur vísað til velferðarráðs.
Útvarpsstöð rak tíu starfsmenn
eftir að kona lét lífið í leik á vegum
stöðvarinnar sem gekk út á að drekka
mikið magn af vatni. Vatnseitrun var
talin dánarorsökin.
BandaríKin
reknir vegna dauðsfalls
reyKjaVíK
jeRúsAleM, AP Vaxandi þrýstingur
var í gær á Ehud Olmert forsætis-
ráðherra og Amir Peretz varnar-
málaráðherra um að segja af sér
vegna hrakfara ísraelska hersins í
Líbanonstríðinu í sumar í kjölfar
þess að Dan Halutz yfirherforingi
tilkynnti skyndilega um afsögn sína.
Halutz sá sér ekki annað fært
en að segja af sér eftir að innan-
búðarmenn í hernum höfðu gert
tugi rannsókna á því sem misfórst
í Líbanonstríðinu.
„Þessi ákvörðun Halutz var
óhjákvæmileg, en hann var ekki
sá eini sem bar ábyrgð á mistök-
unum í stríðinu - ríkisstjórnin bar
líka ábyrgð,“ sagði Ophir Pinez-
Paz, þingmaður Verkamanna-
flokksins, sem er flokkur Peretz
varnarmálaráðherra.
Samkvæmt skoðanakönnun
sem birt var í síðustu viku eru
ekki nema fjórtán prósent kjós-
enda ánægð með Olmert forsætis-
ráðherra og myndi flokkur hans,
Kadima, bíða mikið afhroð ef
kosningar yrðu haldnar nú.
Staða Peretz er ekki mikið
skárri og ólíklegt þykir að hann
nái kjöri til þess að vera áfram
formaður Verkamannaflokksins
eftir formannskosningarnar sem
haldnar verða í maí.
Stríðið í Líbanon kostaði 1.200
manns lífið, flesta í Líbanon. - gb
ehud olmert forsætisráðherra Ísraels á
ekki sjö dagana sæla um þessar mundir.
fRéttablaðið/aP
Æðsti herforingi ísraelska hersins sagði af sér í gær:
Þrýst á Olmert að segja af sér
sTjóRnMál Stjórnarandstaðan
hefur boðist til að greiða fyrir
afgreiðslu frumvarpsins um
Ríkisútvarpið gegn því að
gildistaka laganna frestist.
Össur Skarphéðinsson,
þingflokksformaður Samfylking-
arinnar, segir þeim skilaboðum
hafa verið komið til forseta
þingsins.
„Við höfum boðið forseta að
afgreiða málið með skjótum hætti
gegn því að gildistakan verði ekki
1. apríl heldur 1. júlí. Með því
gæti ný ríkisstjórn breytt
lögunum áður en þau taka gildi,“
segir Össur. Engin viðbrögð hafi
fengist við tilboðinu.
- bþs
Össur Skarphéðinsson:
Sáttatilboð um
meðferð RÚV-
frumvarpsins
sTjóRnMál Samfylkingin hefur
farið fram á að málefni Byrgisins
verði rædd utan dagskrár á
Alþingi.
Þingforseti hefur ekki ákveðið
hvenær umræðan fer fram og var
frá því greint í þinginu í gær að
ákvörðun þar að lútandi myndi
fyrst liggja fyrir eftir fund
fjárlaga- og félagsmálanefnda
með ríkisendurskoðanda sem
haldinn er í dag.
Stjórnarandstæðingar sögðu
mikilvægt að ræða málið enda
væru ráðherrar á hlaupum undan
ábyrgð í því.
- bþs
Stjórnarandstaðan á Alþingi:
Vill umræður
um Byrgið