Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 6

Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 6
6 18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR KjörKassinn FélAGsMál Skýrsla um fjármál Byrgisins sem unnin var árið 2002 af Aðalsteini Sigfússyni, félags- málastjóra í Kópavogi, og sýndi ótvírætt að fjármál Byrgisins höfðu verið í miklu ólagi um nokk- urt skeið, barst aldrei til Ríkis- endurskoðunar. Þetta staðfesti Sigurður Þórðar- son ríkisendurskoðandi í gær. Hann vildi þó ekki að svo stöddu tjá sig frekar um eftirlit stjórn- valda með fjármálum og faglegu starfi í Byrginu frá árunum 1999 til og með 2006. Páll Pétursson, sem var félags- málaráðherra er skýrslan var unnin, staðfesti í Fréttablaðinu á þriðjudag að skýrslan hefði komið til umræðu í félagsmálaráðuneyt- inu er hann var ráðherra en hún var unnin að frumkvæði utanríkis- ráðuneytisins. Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum óskaði Magnús Stef- ánsson félagsmálaráðherra eftir því 16. nóvember á síðasta ári að Ríkisendurskoðun tæki út fjármál Byrgisins eftir að Guðmundur Jónsson kom á fund Magnúsar og óskaði eftir fjárframlögum. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar, sem tekur aðeins til 2005 og 2006, kemur fram að fjármálaóreiða hafi einkennt starf í Byrginu og að forstöðumaður Byrgisins lengst af, Guðmundur Jónsson, hafi eytt fjármunum Byrgisins í einka- neyslu. Þá reyndist ekki vera hægt að gera grein fyrir rúmum 45 milljónum króna, það er mismuni tekna og gjalda á tímabilinu sem Ríkisendurskoðun hafði til rann- sóknar. Fjárlaganefnd og félagsmála- nefnd Alþingis funda í dag með ríkisendurskoðanda vegna mál- efna Byrgisins. Birkir Jón Jónsson, formaður fjárlaganefndar, sagðist reikna með því að reynt yrði að ræða um málefni Byrgisins frá öllum hlið- um þar sem augljóst væri að eftir- liti með fjármálum Byrgisins hefði verið stórlega ábótavant. „Ég tel að röð mistaka hafi átt sér stað sem leiddu til þess að eftirlit með fjármálum Byrgisins var stórlega ábótavant. Við munum fara vel yfir þessi mál en mér finnst ekki viðeigandi að tjá mig um þessi mál frekar fyrr en að fundinum loknum. Þá verður búið að fara yfir þessi málefni og skoða þau heildstætt,“ sagði Birkir Jón. Samhjálp og velferðarsvið Reykjavíkurborgar vinna í sam- einingu að því að taka við verkefn- um Byrgisins. Vistmönnunum í Byrginu, sem voru sex undir það síðasta, hefur verið boðið pláss í meðferðarheimilinu í Hlaðgerðar- koti þar sem fer fram stíf meðferð fyrir langt leidda vímuefnaneyt- endur. Árið 2005 voru 25 vistmenn í Byrginu að jafnaði og 28 árið 2006. magnush@frettabladid.is Skýrslan barst ekki Ríkisendurskoðun Félagsmálanefnd og fjárlaganefnd funda um málefni Byrgisins í dag ásamt Ríkisendurskoðun. Skýrsla frá 2002, þar sem fjármálaóreiða í Byrginu var til umræðu, barst aldrei ríkisendurskoðanda. Eftirliti var stórlega ábótavant. sigurður Þórð- arson Fékk ekki að sjá skýrslu um fjármál Byrgisins. FréttaBlaðið/gva BirKir jón jóns- son Stýrir starfi fjár- laganefndarinnar. FréttaBlaðið/valli guðmundur jónsson Samkvæmt því sem fram kemur í skýrslu ríkisendurskoðun- ar misnotaði guðmundur aðstöðu sína stórlega sem forstöðumaður Byrgisins. Hann hefur auk þess verður kærður af tveimur konum fyrir kynferðislega misnotkun. FréttaBlaðið/SteFán Sæludagar framundan Veldu létt og mundu eftir ostinum! Fluttir endurgjaldslaust viðbótarframlag af geisladiski til minningar um Svandísi Þulu, fimm ára stúlku sem lést í bílslysi í byrjun desember, er á leið til landsins. Jónar transport flytja diskana til landsins og tollafgreiða þá endurgjaldslaust. allur ágóði er til stuðnings nóna Sæ, átta ára bróður Svandísar Þulu, sem slasaðist alvarlega. Kvennalisti 100 ára Borgarstjórn reykjavíkur hefur samþykkt að skipa nefnd til að gera tillögur um það hvernig þeirra tímamóta verði minnst að 100 ár eru liðin frá því að fyrstu konurnar voru kjörnar af kvennalista í bæjarstjórn reykjavíkur. reyKjavíK söFnun Hefur þú tekið strætó á árinu? já 20% nei 80% spurning dagsins í dag: Átt þú DVD-spilara? Segðu skoðun þína á visir.is lÖGREGlUMál Grunur leikur á að 26 ára karlmaður hafi nauðgað fimm ára stúlku á leikvelli í Voga- hverfi síðdegis á mánudag. Að sögn Friðriks Smára Björgvins- sonar, yfirlögregluþjóns hjá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu, var farið með stúlkuna á sjúkra- hús eftir árásina þar sem henni var veitt aðstoð og lífssýni var tekið úr henni. Stúlkan var skelfd eftir árásina en ekki voru sjáan- legir líkamlegir áverkar á henni að sögn Friðriks. Einnig var tekið lífssýni úr manninum. Síðdegis í gær var ekki komin niðurstaða úr sýna- tökunum. Karlmaðurinn reyndi að lokka þrjár aðrar stúlkur: 7, 11, og 12 ára, upp í bíl sinn en án árangurs. Ekki er talið að hann hafi snert þær. Maðurinn var yfirheyrður á þriðjudag og er málið í rannsókn hjá lögreglunni. Guðbjörg Halldórsdóttir, skóla- stjóri Vogaskóla, segir að eftir að athæfi mannsins spurðist út hafi stjórnvöld skólans sent tölvupóst til foreldra þar sem brýnt var fyrir þeim að vara börn sín við því að fara upp í bíla hjá ókunnugum. Að sögn Guðbjargar var starfs- dagur í skólanum á mánudag og því voru fleiri börn úti að leika sér um daginn en venjulega. Tvær af stúlkunum eru í Vogaskóla að sögn Guðbjargar. Hún segir að starfs- fólk skólans sé slegið yfir þessum atburði og muni veita stúlkunum sem urðu fyrir barðinu á mannin- um aðstoð ef þess þurfi. - ifv Karlmaður á þrítugsaldri áreitti fjórar barnungar stúlkur í Vogahverfi: Grunur leikur á nauðgun vogasKóli grunur leikur á að maður hafi nauðgað fimm ára stúlku á leikveilli vogaskóla. sjávARúTvEGUR Samninganefndir Íslendinga, Norðmanna og annarra strandríkja sem nýta norsk- íslenska síldarstofninn sátu enn á rökstólum í gærkvöldi. Samnings- drög lágu ekki fyrir en það að samninganefndirnar höfðu setið degi lengur við borðið en áætlað var túlkað sem vísbending um að samkomulag geti náðst. Norskir fjölmiðlar telja að leng- ing samningalotunnar bendi til þess að norsk stjórnvöld hafi ákveðið að gefa eftir. Haft er eftir formanni norsku nefndarinnar að náist ekki samningar nú sé ólíklegt að samið verði um skiptingu síldarkvótans í bráð. - shá Norsk-íslenska síldin: Samkomulag er ekki útilokað ákæRA Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, segist ætla að kæra stúlku fyrir nauðgun, sem sjálf hefur kært hann fyrir nauðgun. Hann segir stúlkuna hafa byrlað sér smjörsýru og komið vilja sínum fram meðan hann kom engum vörnum við. Áður hafði Guðmundur staðfast- lega neitað því í viðtölum að hafa nokkurn tímann átt kynferðislegt samneyti við stúlkuna. Hún var á sínum tíma vistmaður í Byrginu. „Ég fer á morgun til lögreglunn- ar og mun kæra kynferðislega misnotkun,“ sagði Guðmundur í gærkvöldi. - sþs Guðmundur í Byrginu: Ætlar að kæra nauðgun á móti UTAnRíkIsMál Bandarísk flugvél sem talið er að sinnt hafi fangaflutningum fyrir bandarísku leyniþjónust- una CIA lenti í Keflavík á sunnudag eftir viðkomu í Noregi. Tveir flugmenn hennar gistu á hóteli í Reykjanesbæ áður en þeir héldu áfram för sinni á mánudag. Vélin hefur komið til Keflavíkur einu sinni áður en ekki er talið að fangar hafi verið um borð í vélinni í þau skipti sem hún hefur haft viðdvöl hérlendis. Flugvélin, sem hefur skráningarnúmerið N196D, kemur við sögu í skýrslum um fangaflug frá bæði Evrópuþinginu og mannúðarsamtökunum Amnesty International. Einnig hefur verið rætt um þessa sömu flugvél á kanadíska og danska þinginu í tengslum við slík flug. Aðalheiður Sigursveinsdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, segir að leitað hafi verið upplýs- inga um ferðir vélarinnar vegna þeirrar umræðu sem hefur spunnist um hana, en ekkert hafi bent til að um fangaflug hafi verið að ræða. Aflað var upplýsinga um ferðir vélarinnar aftur til ársins 1992. Aðalheiður segir að samkvæmt skýrslu Evrópuráðs- ins hafi ekki verið sannað að vélin hafi flutt fanga á milli landa. Íslensk yfirvöld veittu upplýsingar um komur flugvéla hingað við þá rannsókn og þótti ekki ástæða til framhaldsrannsóknar hér, eins og var gert í nokkrum öðrum Evrópuríkjum. - shá Meint bandarísk fangaflugvél sem lenti í Keflavík á sunnudag: Flugmennirnir voru einir um borð FangaFlugvélin n196d Flugvélin hefur tvisvar haft viðkomu á Keflavíkurflugvelli.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.