Fréttablaðið - 18.01.2007, Síða 8

Fréttablaðið - 18.01.2007, Síða 8
8 18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR LíknARDRáp Fyrrverandi eiginkona kvikmyndaleikstjórans Ingmars Bergman, Ellen Bergman, vill fá aðstoð til að deyja með reisn. Hún er 87 ára gömul og hefur verið sjúklingur frá árinu 1999. Ellen var lögð inn á sjúkrahús í Stokk- hólmi síðastliðinn mánudag. Hún hefur hvorki bragðað vott né þurrt síðan um áramótin; markmið henn- ar með því er að flýta dauða sínum. Að sögn Ellenar hefur hún viljað deyja frá því árið 2003. Ellen, sem var gift Bergman 1945-1950, hefur skrifað heil- brigðisráðherra Svíþjóðar, Maríu Larsson, bréf og beðið hana um setja lög sem kveða á um rétt fólks til að fá aðstoð við að deyja. „Af hverju eigum við að þurfa að þjást áður en við deyjum? Dauðinn gæti þess í stað verið fallegur endir,“ sagði Ellen við sænska dagblaðið Express- en. Hún vill innbyrða deyfilyf sem draga hana til dauða í svefni. María Larsson segist vera hrærð út af baráttu Ellenar Berg- man en að hún muni ekki undirbúa lagasetningu sem kveði á um rétt- mæti líknardrápa. Mikil umræða hefur verið um málið í Svíþjóð, en samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var meðal sænsks almenn- ings árið 2005 eru 8 af hverjum 10 Svíum hlynntir líknardrápi. Á Spáni hefur einnig verið rætt um líknardráp í fjölmiðlum því síðastliðinn föstudag batt 69 ára gömul kona af frönskum uppruna, Madeleine Z., enda á líf sitt sam- kvæmt spænska blaðinu El País. Hún þjáðist af banvænum lömunar- sjúkdómi af völdum taugahrörn- unar og var bundin við hjólastól. Hún var hrædd við að verða alger- lega lömuð og ósjálfbjarga. Tveir meðlimir samtaka sem kallast „Rétturinn til að deyja með reisn“ voru með henni þegar hún dó en tóku ekki virkan þátt. Konan tyllti sér á rúmið sitt og borðaði ís sem hún hafði blandað deyfilyfjum út í: „Ég get ekki sagt að þetta sé uppá- halds eftirrétturinn minn,“ sagði Madeleine á dánarbeðinu. Eftir að hafa borðað ísinn sagði hún við sjálfboðaliðana að hún væri ánægð og glöð að þeir væru hjá henni þegar hún dæi. Sjálf- boðaliðarnir föðmuðu hana að sér. Hún lagðist út af og vaknaði ekki aftur. Að sögn Arnar Bjarnasonar, fyrrverandi yfirlæknis, hafa slík tilfelli ekki komið upp á Íslandi og því hefur ekki mikið verið rætt um réttmæti líknardrápa hér á landi. Hann segir að Holland sé eina land- ið í Evrópu þar sem samþykkt hafi verið lög sem leyfi líknardráp. „Í löndum Evrópu hafa orðið til sam- tök sem eru hlynnt líknardrápi þó að þau séu bönnuð samkvæmt lögum. Meðlimir þeirra hjálpa fólki sem vill deyja við að taka of stóra skammta af deyfilyfjum. Til dæmis eru til samtök á Englandi sem heita The Hemlock Society sem berjast fyrir rétti manna til að deyja með reisn, en þau taka ekki virkan þátt þegar fólk bindur enda á líf sitt,“ segir Örn. ingifreyr@frettabladid.is Fyrrum kona Bergmans vill deyja Ellen Bergman vill fá aðstoð við að deyja frekar en að þjást áfram. Íslenskur læknir segir að Holland sé eina Evrópulandið þar sem lög leyfi líknardráp. EllEn BErgman Fyrrverandi eiginkona Ingmars Bergman vill fá aðstoð til að deyja með reisn. Hún hefur verið sjúklingur frá árinu 1999. mynd/scanpIx Af hverju eigum við að þurfa að þjást áður en við deyjum? Dauðinn gæti þess í stað verið fallegur endir. EllEn BErgman Enginn viðbættur sykur Engin viðbætt vítamín Engin rotvarnarefni Engin litarefni Engin bragðefni Knorr Vie 100% náttúrulegt ávaxta- og grænmetisskot 200 g af því besta og hollasta úr ávöxtum og grænmeti* F í t o n / S Í A F I 0 1 9 8 9 7 * Sk v. r áð le gg in gu m L ý ð h ei ls u st ö ð va r Ferskt úr kæli Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is Fínn kjarakaupadaga-afsláttur og mörg sértilboð í gildi nú í vikunni. Láttu sjá þig og gerðu góð kaup. Umboðsmenn um land allt. A T A R N A – S T ÍN A M . / F ÍT 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI DÓMSMáL Nítján ára piltur sem stakk öryggisvörð á Select Shell- stöðinni í Suðurfelli í brjóstkass- ann með hnífi og kýldi hann í andlitið hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Öryggisvörðurinn hafði haft afskipti af piltinum og félaga vegna óláta og vísaði þeim út úr versluninni. Atvikið átti sér stað hinn 10. september síðastliðinn. Við ákvörðun refsingarinnar horfði Héraðsdómur Reykjavík- ur til aldurs mannsins, til þess að hann gaf sig sjálfviljugur fram, greiddi öryggisverðinum umsamdar bætur og þykir hafa reynt að bæta ráð sitt. Pilturinn þarf að greiða sakarkostnað í málinu að upphæð rúmlega 300 þúsund krónur. - ifv Veittist að öryggisverði: Skilorð fyrir að stinga öryggis- vörð með hnífi bíLAR Jón Örn Pálsson vélvirki varð fyrir því óláni að bíl hans var stolið þar sem hann stóð á bílasölu JR bíla á Bíldshöfða í Reykjavík. Bílnum var stolið um miðjan desember, en Jón komst ekki að því fyrr en hann ætlaði að gá að bílnum fyrir jól. Enginn á bílasöl- unni lét hann vita að bíll hans væri horfinn. Bíllinn er af tegundinni Mer- cedes Benz og er metinn á tæpar tvær milljónir. Hann var upphaf- lega tuttugu manna rúta en Jón Örn breytti honum sjálfur í húsbíl. Lögreglan rannsakar nú stuldinn. „Ég ætlaði að kíkja á bílinn rétt fyrir jól en þá var hann ekki á svæðinu,“ segir Jón Örn. „Þegar ég talaði við starfsmennina á bíla- sölunni sögðust þeir hafa haldið að ég hefði tekið hann eitthvert kvöldið.“ Páll Vikar, sölustjóri hjá JR bílum, segir eigendur bíla á bíla- sölunni sífellt vera að sækja þá í tíma og ótíma. „Við erum með lyklana að þessum bíl og héldum því bara að eigandinn hefði komið og sótt bílinn eins og gerist svo oft,“ segir hann. „Þess vegna létum við eigandann ekki vita.“ Benzinn hans Jóns er gull- sanseraður og með stórum geymslukassa aftan á bílnum. Þeir sem gætu hafa séð hann eru beðnir um að hafa samband við lögregl- una á höfuðborgarsvæðinu. - sþs Stórum húsbíl var stolið af bílasölu á höfuðborgarsvæðinu rétt fyrir jól: Létu eiganda bílsins ekki vita Bíllinn Jón Örn, sem er vélvirki, gerði bílinn sjálfur upp og breytti honum úr tuttugu manna rútu í fullbúinn húsbíl. icelandair útnefnt Icelandair hefur verið útnefnt til Íslensku vefverðlaunanna í tveimur flokkum; fyrir besta útlit og viðmót og bestu fyrirtækis- eða stofnanavefi. Icelandair keppir í þessum flokkum við miði.is, Leirvogstungu ehf, Trygg- ingamiðstöðina, Landsbanka Íslands, Glitnir, 66° north og Íbúðalánasjóð. ViðurkEnning
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.