Fréttablaðið - 18.01.2007, Qupperneq 12
12 18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR
SAMGönGUMál Nefnd um einka-
framkvæmd í samgöngum telur
brýnt að finna fjáröflunarleiðir til
að sinna mikilvægum samgöngu-
framkvæmdum. Með einkafram-
kvæmd, sem byggist á veggjöld-
um, megi auka tekjur til vegamála.
Þetta kemur fram í skýrslu sem
nefndin hefur skilað til samgöngu-
ráðherra.
Í niðurstöðum segir að einka-
framkvæmd sé álitleg leið ef hún
að núvirði sé ódýrari kostur en
eigin framkvæmd, ef hagkvæm
leið til gjaldtöku sé fyrir hendi og
vegfarendur geti valið aðra leið
þegar sértækri gjaldtöku sé beitt.
Nefndin telur koma til greina að
vinna einstök, arðsöm eða brýn
verkefni í einkaframkvæmd þótt
veggjald og bein framlög þriðja
aðila standi ekki undir öllum
kostnaði og vill samstarf um
einkaframkvæmd ef áhugaaðili
tryggir fjármagn í formi veggjalds
eða beinna framlaga sem standi
undir kostnaði að langmestu leyti.
Í niðurstöðum nefndarinnar
segir að auka þurfi gagnsæi
ákvarðanatöku og breyta vinnu-
lagi við röðun framkvæmda.
Ýmsum brýnum verkefnum verði
ekki sinnt nema til komi aukin
fjárframlög. Auk einkafram-
kvæmdar hefur verið bent á „nýja
gjaldtöku af umferðinni sem mið-
ist við stað og stund notkunar
vegakerfisins,“ segir einnig. - ghs
við Hvalfjarðargöng Nefnd
samgönguráðherra telur að einkafram-
kvæmd sé álitleg leið ef möguleikar til
gjaldtöku séu fyrir hendi, svipað og gert
er við Hvalfjarðargöngin.
Nefnd um einkaframkvæmd í samgöngumálum um fjáröflun til vegamála:
Einkaframkvæmd álitleg leið
bAnDARíkIn, Ap Meira en fimmtíu
manns hafa látist í níu ríkjum
Bandaríkjanna í miklum vetrar-
hörkum undanfarna daga sem
hafa haft í för með sér ísingu,
snjókomu, flóð og hvassviðri.
Þúsundir manna hafa leitað í
neyðarskýli eftir að rafmagn fór
af víða vegna kuldans. Seinni-
partinn í gær voru um 340 þús-
und heimili og fyrirtæki ennþá
án rafmagns.
Í Kaliforníu hefur frost eyði-
lagt þrjá fjórðu af sítrusupp-
skerunni, að eins milljarðs dala
virði. Ríkisstjórinn, Arnold
Schwarzenegger, hefur í kjölfar-
ið beðið alríkisstjórnvöld um
neyðaraðstoð.
Bandaríska veðurstofan spáði
áframhaldandi frosti í dag en von
væri á sólskini sem ynni á ísnum á
fimmtudag eða föstudag. - sdg
Ríkisstjórinn í Kaliforníu hefur beðið bandarísku alríkisstjórnina um neyðaraðstoð:
Fimmtíu látnir í vetrarhörkum
vetrarríki Rafmagnslínur þola illa þungann af ísingunni eins og sjá má af þessari
rafmagnslínu í Oklahoma sem ber nánast við veginn. myNd/ap550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Við höldum með þér!
... ef þú kemur við á næstu Olís-stöð og
lætur fylla bílinn af eldsneyti. Þannig færðu
fría áfyllingu á rúðupissið í kaupbæti.
Meðan við fyllum á geturðu svo fengið þér
pylsu og kók á tilboði.Þorratilboð
á þjóðarrétti Íslendinga
pylsa og kók
199kr.