Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 13

Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 13
FIMMTUDAGUR 18. janúar 2007 13 sTokkhólMUR, Ap Tryggingastofn- un Svíþjóðar hyggst leggja niður 1.400 störf vegna niðurskurðar, sem eru tæp níu prósent starfsmanna. „Við verðum að nota þau fjárráð sem skattgreiðendur veita okkur á árangursríkan og skynsamlegan hátt,“ sagði Curt Malm- borg, yfirmaður stofnunarinnar, sem taldi niðurskurðinn geta valdið vandamálum í byrjun en mundu til lengri tíma litið leiða til meiri skilvirkni. Helmingur fólksins er niðurskurðurinn tekur til mun fá uppsagnarbréf en hinum helmingn- um verður boðið að segja upp eða fara á eftirlaun, samkvæmt tilkynningu sem stofnunin sendi frá sér í gær. - sdg Svíar spara í félagslega kerfinu: Leggja niður 1.400 kerfisstörf Carl MalMborg vígalegar valkyrjur Þessar tvítugu konur miða á skotmark í sextíu metra fjarlægð í Toshiya-bogfimikeppninni í Kína. Alls tóku tvö þúsund keppendur núna þátt í þessari árlegu keppni. nordicphoTos/Afp sTjóRnsýslA Mörður Árnason, alþingismaður Samfylkingar, vill að Geir Haarde forsætisráðherra upplýsi hvaða ráðherra ríkis- stjórnarinnar fékk afnot af Ráðherrabústaðnum við Tjarnar- götu að kvöldi föstudagsins 29. september 2006. Þetta kvöld kvaddi þingflokkur framsóknar- manna Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formann Framsóknarflokksins. Að sögn framsóknarmanna var sú veisla sem haldin var í ráðherra- bústaðnum þetta kvöld greidd af þeim sjálfum. „Telur forsætisráð- herra eðlilegt að ráðherra útvegi Ráðherrabústaðinn til boðs á vegum aðila utan Stjórnarráðsins, til dæmis þingflokks?“ spyr Mörður enn fremur í fyrirspurn sinn. - gar Fyrirspurn til forsætisráðherra: Hver má nota ráðherrabú- staðinn? FélAGsMál Ungt fólk er í miklum meirihluta þeirra sem sækja starfsendurhæfingu hjá geðsviði Landspítalans. Þetta segir Elín Ebba Ásmundsdóttir, forstöðu- maður iðjuþjálfunar á geðdeild Landspítala. Hún segir helming skjólstæðinga sinna undir 25 ára aldri og 80 prósent þeirra yngri en 35 ára. Í nýrri rannsókn kom fram að hvergi á Norðurlöndum er jafn mikið af ungum öryrkjum og á Íslandi. Einnig er bent á að öryrkj- um vegna geðraskana hefur mikið fjölgað og er talið að þeirri þróun verði ekki snúið við nema til breyt- inga komi á kerfinu. Elín segir að nauðsynlegt sé að skoða þessi mál ítarlega og bendir á að henni þyki engan veginn rétt- lætanlegt að starfsendurhæfing sé hýst á Landspítalanum, sem eigi fyrst og fremst að vera bráða- sjúkrahús. Ekki sé gott fyrir ungt fólk að fara inn á sjúkrahús í starfsendurhæfingu. Pétur Blöndal alþingismaður segir þróunina uggvænlega, bæði fyrir þjóðfélagið sem og það fólk sem verður öryrkjar. Nefnd á vegum forsætisráðuneytisins, sem Pétur starfar innan, hyggst skila tillögum að nýjum lausnum í öryrkjamálum innan skamms. „Markmiðið er að horfa á örorku út frá öðrum sjónarhorn- um, rækta getu öryrkja og sjá til þess að þeir haldi tengslum við vinnumarkaðinn. Einnig hefur verið bent á að kerfið sé óskaplega flókið og úr því þarf að bæta,“ segir Pétur. - kdk Ungt fólk er í meirihluta þeirra sem sækja um endurhæfingu á geðdeild LSH: Helmingur fólksins yngri en 25 ára TæknI PlayStation 3 leikjatölvan, sem Sony fyrirtækið setti á markað í Bandaríkjunum og Japan í nóvember, hefur selst í meira en tveimur milljónum eintaka. Markmið Sony er að hafa selt sex milljónir véla fyrir lok mars á þessu ári. Fyrsta þess mánaðar fer leikjatölvan í sölu í Evrópu og verður hún þá fáanleg hér á Íslandi. PlayStation 2 er söluhæsta leikjatölva allra tíma en PlayStation 3 er sú útgáfanna þriggja sem hraðast hefur náð tveggja milljóna króna markinu. - sdg Kemur á markað hér 1. mars: PlayStation 3 vélar rokseljast nepAl, Ap Fyrrverandi skæruliðar maóista í Nepal hófu í gær að afhenda vopn sín friðargæsluliðum á vegum Sameinuðu þjóðanna, eftir að fulltrúar byltingarsinna sóru eiða sem fulltrúar á bráða- birgðaþjóðþing landsins. Með 83 sæti af 330 mynda maóistar næststærsta þingflokkinn. Með afvopnun skæruliðanna er tímamótafriðar- samkomulag að komast til framkvæmda í Nepal eftir áratugarlangan óróa og borgarastríð sem kostað hefur um 13.000 manns lífið. Maóistar, sem nutu stuðnings stórs hluta sveitafólks, héldu úti uppreisn gegn konungsstjórninni í landinu en féllust á að hætta vopnaðri baráttu eftir að Gyanendra konungur hætti að reyna að stjórna landinu sem einráður. Þá tókst samkomulag milli þeirra sjö flokka sem fengu fulltrúa kjörna á þing í síðustu kosningum og maóista um að koma saman nýju bráðabirgðaþingi og bráðabirgðaríkisstjórn með aðild allra flokkanna. Fulltrúar allra flokkanna hafa enn fremur komið sér saman um nýja stjórnarskrá, sem verður í gildi til bráðabirgða uns næsta réttkjörna þing kemur saman, sem hafa mun lýðræðislegt umboð til að samþykkja varanlega stjórnarskrá og gera þar með út um það hvort landið verði áfram konungsríki eða ekki. - aa Sóru eiða Maóistar sverja eið sem fulltrúar á nepalska þing- inu í Katmandú í gær. Mynd/Ap Tímamótafriðarsamkomulag að komast til framkvæmda í Nepal: Afvopnun skæruliða er hafin elín ebba ÁSMundSdóttir forstöðumaður iðjuþjálfunar á geðdeild Landspítala segir helming skjól- stæðinga undir 25 ára aldri og 80 prósent þeirra yngri en 35 ára.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.